

það er nú gaman að geta skoðað svona margar myndir af labbakútinum og sja hvað hann er glaður með það að vera til. hlakka til að sja hann
Til hamingju með nýju síðuna þína, litli prins :) Ótrúlega gaman að skoða myndirnar af þér, þú ert duglegur að setja upp skemmtilega svipi og koma þér í dansstellingar! Mamma þín og pabbi eiga ótrúlega fallegt barn :)
Hæ litli rúlli,
rosalega ertu fallegur, sléttur og óaðfinnanlegur. Þú ert alveg svakalega blandað "eintak" (ef maður má segja svoleiðis ;)) og á sumum myndunum ertu alveg eins og pabbi, en á öðrum svakalega líkur mömmu. M&p hljóta að vera gjörsamlega í 7. himni yfir svona prinsi eins og þér. Mamma þín lítur líka rosalega vel út, sæt eins og ávallt.
Hlakka til að fylgjast með þér stækka og dafna, lilli nabbi.
Kv. Bryndís Ýr & fjölskylda
Halló sætastur,
ég er komin hér eina ferðina enn að skoða myndirnar af þér, mikið ofsalega dafnar þú nú vel. Ég vildi óska að ég gæti komið til ykkar og knúsað ykkur öll!!!
Vá hvað hann er æðislegur. Þetta er svo yndislegt hvað hann er flottur og braggast vel. Það er frábært að getað fylgst með ykkur á netinu. kveðja frá Fáskrúðsfirði.
Til hamingju með litla kútinn, vonandi sjáumst við fljótlega svo maður geti skoðað gripinn. Kveðja frá Köben
Elskurnar mínar...það er ekki laust við að ég öfundi mömmu og Ellu að vera á leiðinni til ykkar - það væri nú ekki leiðinlegt að geta knúsað litla prinsinn rækilega:) Gaman að geta fylgst svona með honum (og ykkur...) fyrst þið þurfið endilega að vera svona langt í burtu. Gangi ykkur áfram svona vel og haldið áfram að dæla myndum á síðuna!! Love you, Kristín og co.
Bara aðeins að kíkja, fínar myndir og gaman að sjá hvað strákur tekur sig vel út í gömlu fötunum hans Kristjáns.
Kveðja Finnur og Begga
Ekkert smá sætur strákur sem þið eigið æðislegt að þið séuð með heimasíðu sem maður getur fylgst með :) Venlig Hilsen Björgvin, Sigurveig og Ísak Örn
Hæ elsku fjölskylda, var að ljúka við að skoða myndirnar af prinsinum ásamt þvílíkt ánægðum foreldrum enda megið þið vera það en ég er bara hálf klökk, finnst þið allt of langt í burtu og mig langar að fá að halda á honum en get það ekki...úff, Ktrín hugsaðu þér ég gæti verið amma hans þú ert jafngömul Örvari og þess vegna á ég enn meira í þér/honum.
Mér þótti gaman að sjá myndirnar af þér Katrín með kúluna ohhh þú hefur ekki verið neitt smá falleg ólétt kona.
En hafið þið það sem allra best elskurnar mína og verið dugleg að setja inn myndir af ykkur.
Knús og kossar til ykkar frá mér.
Verð að segja Örvari frá síðunni.
Bless bless.
Til hamingju með drenginn og hafið það gott þarna suðurfrá.
Fínn piltur.
Hæ hæ,og velkomin heim með litla prinsinn, mikið er hann fallegur, ekki við öðru að búast, vona að allt gangi vel hjá ykkur, góðar kveðjur héðan úr Hörpulundi til ykkar.
Hæ Hæ! Innilega til hamingju elsku Katrín og Björgvin með litla prinsinn. Hann er æðislegur og við fengum tár í augun við að skoða myndirnar. Högni skilur ekki af hverju hann getur ekki bara labað til ykkar og fengið að halda á honum en ég sagði við hann að við yrðum að fara í stóru flugvélina og lofaði honum að við myndum koma fljótlega. Við erum sammála um að hann er gott bland af ykkur báðum.Hafið það gott og gangi ykkur vel. Kossar og knús frá London, Svava,Hjörvar,Högni og Sandra
Halló fallegi litli drengur, mikið ofsalega ertu nú sætur og fínn.Myndirnar rosa flottar og það verður gaman að fylgjast með þér hérna. Ég vona að allt gangi ofsalega vel hjá þér.
Ég verð nú að nota tækifærið og óska mömmu þinni og pabba þínum til hamingju með litla fallega drenginn sinn.
Elsku Katrín og Böggi, gangi ykkur og litla prinsinum ykkar alveg ofsalega vel!!!
Baráttukveðjur
Sigga Rósa
hæ kæra fjølskylda og velkomin heim. Býst nú vid ad ég standist ekki mátid og fari ad rølta/hjóla af stad til ad kíkja... hann er allavega algjørt ædi.
kvedja dagny og fjølsk.
Hellú...var hér, sá allt og líkaði vel! Bið að heilsa Júníor Bé!
Til hamingju með litla prinsinn hann er frábrær og gott að hann beri eitt og eitt ættareinkenni sem er nauðsinlegt að viðhalda.Gangi ykkur allt haginn með prinsinn. kveðja úr Hveró Imba Valli Baldur og Ágúst.
Hæ hæ hvað ekki komnar fleiri myndir..!! ég vil fara að fara að fá meiri myndir..!! er það möguleiki eða hvað?? Bið að heilsa mömmu og pabba...!! sjaúmst eftir 20 daga..!!!
Komiðið sæl og blessuð og til hamingju með litla prinsinn;* ég vona að ykkur gangi vel í komandi framtíð og ykkur eigi eftir að heilsast vel.
Kveðja Haffi yngri
Æðislegur lítill pjakkur! Til hamingju með hann og hlakka til að geta fylgst með ykkur hérna. Kveðja af klakanum, Guðbjörg Rós
Innilega til hamingju með drenginn,það er svo gaman að skoða myndirnar af svona flottum strák..Gangi ykkur vel í framtíðinni..Bestu Jólakveðjur frá Fáskrúðsfirði..Guðfinna,Pétur og synirnir þrír.
elsku katrín og björgvin! innilega til hamingju með litla prinsinn!! hann er algjört æði!
gangi ykkur allt í haginn :)
kveðja
erla (var með katrínu í ME)
Halló elsku litli drengur voðalega ertu æðislegur.Myndirnar rosa flottar.Vonandi gengur allt vel hjá ykkur baráttukveðja.Oddrún á fásk
Hæ hæ til hamingju með prinsinn, hann er æðislegur og það er æðislegt að skoða myndirnar af ykkur og vonandi líður ykkur öllum vel;) við komum til með kíkja reglulega inn á síðunna
bestu kveðjur Dagný, Hjálmar og börn
Halló litli prins. Þú ert algert krútt, enda ekki við örðu að búast. Gaman að geta fylgst með þér og gamla settinu hér á klakanum. Kveðja Svava Þórey.
Frábært hjá ykkur að vera komin með síðu og eins gott að þið verðið dugleg að setja inn myndir. Hann er algjört gull!!! Hlökkum voða mikið til að fá að pota svolítið í hann í sumar.
gaman að þið séuð komin heim með labbakút Björgvinsson. Kappinn er bara nokkuð myndarlegur, enda kominn af góðum ættum.
Jedúddamía hvað þú ert mikið æði litli prins! Til hamingju með að vera kominn heim og það er nú gott að þetta gengur allt saman vel... Vonandi verða mamma og pabbi dugleg að setja inn myndir á þessa fínu síðu! :) Kveðja Tinna.
Rosalega er þetta fínn strákur;) Vildi bara kvitta fyrir mig og hlakka til að verða fastagestur hér í framtíðinni!
Ég er nú bara með gæsahúð að skoða litla prinsinn ykkar. Mikið er hann ofsalega fallegur. Reyndar bjóst maður svo sem ekkert við öðru ;o) Frábært að geta kíkt á ykkur hérna. Hafið það sem best.