Guðrún, Ólafur Birkir og Katrín Þóra
Guðrún, Ólafur Birkir og Katrín Þóra
 
 
 

Fyrstu árin

Fæðingin

Ég fæddist þann 1. desember 2008 klukkan 15:57.
Fæðingin fór fram á Landspítalanum.
Fyrstu hríðir komu deginum áður (mamma þá komin nákvæmlega 42 vikur) og tók fæðingin um sólarhring.
Hárið mitt var skollitað og augun voru dökk blá
Þegar ég fæddist var ég 4040 grömm eða 16 merkur og 50,5 cm að lengd.
Eftir að ég fæddist fór ég á Hreiðrið með mömmu og pabba og svaf þar fyrstu nóttina.
Sama dag og ég fæddist þá var bjartur en kaldur vetrardagur.

Skírnin

Skírnin fór fram þann 24. janúar heima hjá ömmu Gurrý og afa Óla í Birkigrundinni.
Séra Sigfús Kristjánsson skírði mig og við það tilefni fékk ég nafnið Guðrún.
Skírnarvottar voru Heiða Steinunn Ólafsdóttir og Þuríður Helga Ingvarsdóttir
Doddi og Þuríður, systkini pabba spiluðu 2 sálma á píanó og fiðlu í athöfninni

Afmæli

Fyrsta afmælið mitt var á þriðjudegi, þann 1. desember árið 2009.
Kaffiboð var haldið eftir vinnu. Veislan var haldin heima í Eskihlíðinni góðu.
Alls mættu 34 manns í afmælið.
Í afmælinu hegðaði ég mér mjög vel og sátt við alla þessa athygli.
Ég vil þakka fyrir allar fallegu gjafirnar sem ég fékk!

Helstu viðburðir fyrstu árin

Fyrsta brosið kom snemma
Fyrsta hjalið kom svo á 5 viku
Sat með stuðningi fyrst í apríl 2009
Sat án hjálpar þann 23. apríl, sumardaginn fyrsta (að verða 5 mánaða)
Fyrsta tönnin fannst 2. maí (5 mánaða) í afmælisveislu hjá Gullu. Amma Gurrý fann tönnina
Stóð fyrst upp hjálparlaust þann 4. júlí á afmælisdegi pabba sins (ný orðin 7 mánaða)
Fyrsta orðið var "datt" og var sagt vísvitandi á Bergstöðum í júlí
Byrjaði að skríða í byrjun júlí í heimsókn fyrir sunnan. Hún gat ekki lengur setið kyrr og fór að eltast við frændsystkini sín
Fyrstu sporin voru tekin 14. október, tók 4 skref. Síðan bættust við fleiri og fleiri skref og fljótlega var hún farin að labba

Hæð og þyngd

Við fæðingu var ég 50,5 cm og vó 4040 grömm.
6 vikna var ég 56,7 cm og vó 4860 grömm.
2ja mánaða (9. vikna) var ég 59.0 cm og vó 5240 grömm.
3ja mánaða var ég 61.7 cm og vó 5935 grömm.
4ra mánaða var ég 64.0 cm og vó 6655 grömm.
5 mánaða var ég 67.0 cm og vó 7220 grömm.
6 mánaða var ég 68.5 cm og vó 7780 grömm.
8 mánaða var ég 70.7 cm og vó 8.300 grömm.
10 mánaða var ég 71.7 cm og vó 8.720 grömm.
12 mánaða var ég 73 cm og vó 8.900 grömm.

Mataræði

Ég byrjaði að borða fastan mat þann 24. maí, pabbi gaf mér 4 teskeiðar af rísgraut og vildi ég helst sjálf stjórna skeiðinni