

margar góðar og ekki síður skemmtilegar myndir, takk fyrir að deila þeim með okkur.
Hæ, gaman að rifja upp páskafríið okkar saman :) Flottar myndir
Einnig gaman að sjá þegar afi og amma komu í heimsón og afæmlið. Ég væri nú alveg til í að fara í svona skíðaferð í sól og flottum skíðabrekkum (verst hvað ég er léleg á skíðum). Gaman að sjá jólin og áramótin hjá ykkur.
Hlakka síðan rosalega til að fá ykkur heim í ágúst :)
Takk fyrir frábærar nyjar myndir
Það er svo gaman og gott að sjá myndir frá sumrinu í öllum þessum vetri núna. Þ arna sér maður svart á hvítu hvað þið fóruð víða og alltaf jafn gaman. Frábærar myndir og skemmtileg upprifjun. Takk
Frábærar myndir og gaman að rifja upp góða daga
Flott breyting :)
Er ekki tími til komin að setja nafnið hennar Katrínar Þóru inn í titilinn á heimasíðunni?!! :)
Langt síðan að ég kíkti síðast. Alltaf gaman að renna yfir albúmin :)
Flottar myndir frá Legolandi og þið innan um stór og hættuleg dýr, magnað. Takk takk
Þetta var nú skemmtilegt að skoða. Er Óli búinn að klippa allar snuddur??
Takk fyrir þetta.
Jé minn hvað ég á sæta litla frænku þarna í Gautaborg :)
Stóru systkinin eru greinilega algjört yndi og góð við hana
Gaman að sjá fjölskyldu stemninguna hjá ykkur
Alltaf jafn gaman að skoða myndir, var að sýna afa Óla. Takk fyrir
Hæ hæ
Vorum að skoða nokkur albúm og það var svakalega gaman að rifja upp skemmtilega tíma frá því í sumar og að sjá hvað þið eruð að gera úti í Gautaborg. Við söknum ykkar alveg svakalega mikið og værum til í að fá að koma út að knúsa ykkur aðeins :)
Elsku Ólafur Birkir
Bestu kveðjur á 2ja ára afmælisdaginn þinn. Vonandi færðu góðan dag í dag og um helgina, og fullt af pökkum ;)
knús og kossar og ósk um bjarta framtíð
þín frændsystkin og stóra frænka
alltaf gaman að skoða myndir af ykkur, þið eruð svo hugmyndarík og krakkarnir duglegir að baka og finna sér skemmtilega hluti til dundurs. Einnig er ég hæst ánægð með Ólaf frænda og hversu móttækilegur hann er fyrir hinum ýmsu uppáklæðningum--eins og Emil frændi--þessar eldri systur eru náttúrulega einstakar :)
Þið eruð alltaf flott! Sakna ykkar. Verðið þið heima um paskana?
var að skoða nýjustu myndirnar. Alltaf svo gaman að skoða og sjá eitthvað nýtt.
Afi kíkti líka. Takk Takk
Hæ elsku Gunna
Èg, Nanna, er heima veik. Èg er með hálsbólgu og hita. Èg var að skoða myndirnar þínar, það var mjög gaman.
það hefur verið aldeilis gaman í afmælinu og flott afmæliskakan. Það hafa líka komið margir skemmtilegir dagar í framhaldi af afmæli með laufabrauðsbakstri og fá að hafa afa og ömmu einn auka dag Flott!!
var aðeins að kíkja og rifja upp í leiðinni. Frábært!!
Berlin er kominn enn hærra á óskalista yfir borgir-sem-ég-verð-að-skoða -þegar-ég-er -ekki-á-kafi-í-kúkableyjum
gaman að sjá myndir frá nóvember. Sakna ykkar samt gríðarlega þrátt fyrir myndirnar. Hafið það gott yfir áramótin
Gaman að skoða myndir :) hrikalegar myndir af Guðrúnu eftir slysið :/ en gott að allt fór vel. Knús frá Íslandi
Alltaf gaman að kíkja við hjá ykkur og skoða myndir :)
takk fyrir myndirnar :)
alltaf gaman að skoða myndir af ykkur. Bið að heilsa í kotið
flott að sjá hvað batinn er góður á þessari rúmu viku
Bestu batakveðjur frá okkur í vesturbæ Kópavogs. Ósköp að sjá fyrstu myndirnar en gott að sjá að batinn er góður.
Knús á ykkur í Svíþjóð.
Vel sloppið, elsku frænka, og mikið ertu dugleg og sæt og verður sennilega eldsnögg að ná þér. Hlakka til að sjá þig næsta sumar á Íslandi, og hvernig væri að keyra og sigla og koma við í Færeyjum
Sæl elsku frænka. Mikið var var þetta óheppilegt:( Við sendum bata kveðjur héðan fra drammen knús til ykkar.