

Rosalega ertu sæt og gerðarleg, elsku litla frænka. Gott að geta fylgst með þér úr fjarlægð.
Þóra afasystir í Færeyjum
Sæl nafna,
kíkti aðeins við til að sjá myndir af þér :) Bið að heilsa mömmu og pabba.
Kveðja frá Reykjavík
Hæ hæ, þú ert nú alveg sætust!
Hlakka mikið til að koma og leika aðeins við þig eftir prófin :)
Bið að heilsa gamla settinu...
Hæ sæta frænka, mikið ertu orðin stór og dugleg. Enginn smá sundgarpur :)
Hafðu það gott og knúsaðu mömmu þína í kaf frá okkur.
Halló skvísa,
Svakalega ertu orðin stór og mannaleg og ferlega dugleg í sundinu!
Knús á M&P
Hæhæ sæta skott...
Rosalega gaman að skoða myndirnar af þér og þínum;)
Kv. Hulda og Manúela
hæ sætust :)
gleðilegt sumar
Hæ hæ og gleðilegt sumar! Vonum að við hittumst einhverntíman flótlega. Láttið heyra í ykkur þegar þið komið næst í bæinn :0)
Sumarkveðjur
ahaha þetta "Voróps" myndband er nottla bara eeendalaust fyndið! Ótrúlegt að þessi hljóð geta komið úr þessu litla krútti :)
Sendi ykkur batakveðjur norður, vona að þið náið heilsu sem fyrst. Heyrumst :)
Systa
Hæ elsku Eygló mín.
Mikið ofsalega eru myndirnar skemmtilegar. Ótrúlegt hvað Guðrún stækkar hratt. Hlakka ofsalega til að sjá ykkur sem allra fyrst.
Kveðja frá Vilhjálmi Árna :)
Yndislegar myndir. Farin ad snúa sér, ádur en thid vitid af thá verdur hún farin ad ganga og segja "ég vil mjólk".
Klem frá Bergen
Flottar myndir. Operumyndbandið gott, skil hvað þú átt við núna:)
Sammála síðasta ræðumanni :) Æðislegar myndir og Emil Freyr er búin að horfa margoft á voropsatriðið og hlæja, thíhí. Söknum ykkar og vonumst til að sjá ykkur sem allra fyrst.
Heiða og Emil Freyr
Hæ hæ
Æðislegar myndirnar. Það var svo gaman hjá okkur á Akureyri og við söknum ykkar mikið. Vonandi komið þið fljótlega í heimsókn suður. Óperumundbandið er stórkostlegt, ég skellti upp úr þegar ég sá það
Æðislegar myndir af ykkur. Vonandi hittumst við bráðlega :-)
kveðja, Gulla
Hahaha Guðrún þú ert yndisleg. Óperan þín/vorópið er óborganlegt:D
Guðrún þú ert alveg frábær á nýasta myndbandinu.
Hæ Guðrún. Loksins fann ég myndir af þér.
kv. úr köben
Mikid ertu sæt og fín :)
Vona ad lífid á Akureyri sé ljúft. Thú ert náttúrulega algjor draumur.
Stor klem frá Bergen
Hæ
Takk fyrir síðast. Söknum ykkar svo mikið....Fréttum að Guðrúnu hafi gengið vel að kafa í gær í sundinu, og að þið hafið nóg að gera með pabba og mömmu. Vona að ykkur hafi ekki orðið meint af að hafa okkur brjálæðingana hjá ykkur svona lengi, okkur þótti þetta frábær tími.
Heiða og co
Hæ hæ,
Ég sé að daman dafnar vel, algjör bjútíbolla ;)
knús á ykkur
Hæ sæta frænka, mikið er gaman að skoða myndirnar þínar. Vonandi hafið þið það gott á Akureyri með Heiðu og Guðbjörgu.
Knús og kram frá okkur Vilhjálmi
Þú ert nú meiri prinsessan. Innilega til lukku með fallega nafnið þitt skvísa. Myndirnar eru æði af ykkur og greinilegt að sú stutta hefur gaman af lífinu.
Hafið það sem allra best, kveðjur úr snjónum góða!!!
XXX
Flottar myndir, enda myndefnið æðislegt :) Sjáumst eftir 2 daga...get ekki beðið....
Heiða
Fínar myndir, sjáumst fljótlega fyrir norðan.
Vá við erum ekki smá sætar saman. Verður gaman hjá okkur seinna meir þegar við getum farið að leika saman. Flott myndin af okkur þegar ég setti upp svipinn af pabba, alveg eins og hann, mikið rétt :)
Kveðja frá stóru frænku (heilum 6 cm stærri)
Hæ rúsínurass! þú ert svo dææææææd !
Bananamyndirnar eru svo fyndnar! Ég er búin að sitja hérna og hlæja að þeim í að minnsta kosti 10 mínútur