

gaman að sjá nýju myndirnar sæta stelpa. Bið að heilsa ykkur öllum, haldið áfram að dæla inn myndum og kommentum svo maður detti ekki út hér. Hafið það sem allra best í fríinu ykkar núna og ég óska ykkur góðs gengis í flutningunum suður ;)
Hæ, rosa gaman að fylgjast með ykkur og skoða myndirnar.
Kv. Halldór
Hæ hæ
Takk fyrir síðast. Alltaf gott að koma til ykkar á Akureyri.
Ekki smá flottar myndir. Sæt við bóndablómin og svo dugleg að skríða út um allt. Heppnar með veður á Bergstöðum. Vonandi fáum við gott veður þar núna um helgina og næstu viku :) Sjáumst
æðislegar myndir! Hefði átt að taka mér frí meðan þú varst fyrir sunnan og vera bara í kósýheitum með ykkur :)
Svaka fínar myndir ;) Sé þig vonandi á föstudag, er það ekki??
Ohhh eg fae heimthra af ad skoda thessar frabaeru myndir, snilllingur.
sakna ykkar! hlakka mikið til að þið flytjið aftur til RVK! koss&knús
Krútt að borða með öllu andlitinu og gaman að sjá hana í gamla kjólnum þínum, man eftir þér í honum (eða af mynd).
Sé ykkur vonandi á næst þegar við komum til landsins.
Hæ kæra fjölskylda, gaman að skoða myndirnar af litlu dömunni.
Bestu kveðjur, BHB
Hæ hæ
Strax farin að sakna ykkar. Baldur hlýtur að vera ánægður með að vera búin að fá ykkur aftur norður til sín. Sjáumst vonandi fljótlega aftur. Hafið það sem allra best fyrir norðan
Sæta sæta, vorum að horfa á nokkur myndbönd og hann Hörður Sölvi var svo ánægður með hana Guðrúnu að hann klappaði á fullu eftir hvert myndband :)
Kveðja Gerður og Hörður Sölvi
Rosa ert þú orðin dugleg. að bera mig um. Myndbandið flott.
Söknum þín og mömmu þinnar og hlökkum til að sjá ykkur í næstu viku.
Amma Gunna og afi Ingvar
Hæ sæta stóra frænka, mikið hefur þú stækkað.
Það væri æði að hitta þig þegar þú kemur í borg óttans. Hafðu það sem allra allra best þangað til.
KvJónína
Thetta er nu meiri rofan sem thid eigid.
Mer finnst eins og thu eigir vodalega litid i henni Eyglo, en pabbi hennar svona 100%.
Vona ad eg fai nu einn daginn ad sja skvisuna, missti af henni i thessari ferd, tha er bara ad taka thetta næst ad ari.... ufff tha verdur hun farin ad hlaupa um og stjorna heimilinu med hardri hendi.
Klem fra Bergensurunum
Flottar myndir. Sú er orðin stór.
Sá að þið eruð líka með svona "nino" síðu. Gaman að skoða myndir af Guðrúnu. Falleg stelpa sem þig eigið :) Kveðja að austan
Þú ert svo sæt litla frænka og mig langar svvvoooo að fara að knúsast með þig. Líst vel á skapsveiflu-myndirnar þínar, greinilega kjarnakona sem veit hvað hún vill þarna á ferð. Æðislega myndir og alveg lífsnauðsynlegt að fá að fylgjast svona með þér.
Sakna þín og foreldranna...hlakka til að sjáykkur soon
Heiða
Snilldar myndir, fyndin í grasinu og frekjast með myndavélina, sæt úti í sólinni, svo dugleg að borða og sitja sjálf. Hláturmyndbandið skemmtilegt. Hlakka ofsalega til að hitta ykkur eftir 11 daga.
Bara rétt að kvitta fyrir innlitið... æðislegt veður sem þið fenguð í maí....
Það er ekkert smá hvað þú stækkar! Gaman að skoða allar fínu myndirnar. Hlökkum til að sjá ykkur næst þegar þið eruð í bænum eða við skreppum í útilegu Norður. Vonandi verður það fljótlega. Kossar & knús frá okkur.
Hæ stóra stelpa! Skemmtilegar myndir af þér, mikið ertu nú orðin stór og dugleg, orðin hálfsárs skvísa! Hlakka til að sjá þig næst þegar þú kíkir í bæinn. Bið að heilsa mömmu og pabba
Mikið ertu orðin flott stelpa Guðrún. Þú ert farin að líkjast mömmu þinni meir heldur en þú gerði fyrst. Biðjum að heilsa í bæinn og taktu eitt gott öskur fyrir mig frænka góð :)
Kveðja úr Reykjavíkinni, Marianna stóra frænka
:)
Hæ sætu
Vá hvað Freyja og Ásdís eru ótrúlega skondnar í gömlu kjólunum. Það sem er samt skemmtilegast er að ég man eftir þessum kjólum á ykkur Heiðu :)
Frábærar myndir og mikið er hún Guðrún sætasta sæta að stækka hratt. Hlakka til að sjá hana sem allra fyrst.
kvJónína
Hæ hæ sæta frænka
Svakalega flottar og skemmtilegar myndirnar. Orðin svo stór og dugleg.
Var að kíkja og sjá hvort eithvað nýtt væri komið, sakna ykkar.
Já ætli boltar sé ekki rétta orðið. Vilhjálmur hefur samt ennþá kíló á Guðrúnu á sama aldri... Úfff þetta sígur í :)
Hlakka til að sjá ykkur í sumar elsku dúllulínur. Svo fer Vilhjálmur líka að verða eins árs, þá vonandi komist þið í afmælið 26. júní. Verðið þið ekki í RVK þá?
Takk fyrir að gefa okkur aðgang að síðunni ykkar. Alltaf gaman að fylgjast með smáfólkinu vaxa og þroskast. Falleg og dugleg hún Guðrún litla.
Hæ hæ stóra sæta frænka. Þú stækkar svo hratt að bráðum verðurðu jafnstór og Nanna Hlín og þá getur hún ekki lengur lánað þér fötin sín,,,, he he þá snýst kannski dæmið við og Nanna Hlín fær lánuð föt frá Guðrúnu ;) Frábærar myndir af ykkur og sundmyndirnar skemmtilegar. Sjáumst vonandi fljótlega aftur, stax farin að sakna ykkar eftir síðustu heimsókn.