ANDRI LILJAR ÁRNASON
 

Fyrstu árin

Fæðingin

Ég fæddist þann 5 Febrúar 2007 klukkan 00:29.
Fæðingin fór fram á Heilbrigðisstofnun suðurlands og Sigrún Kristjánsdóttir tók á móti mér.
Viðstödd fæðinguna voru Pabbi og Ragna frænka .
Hárið mitt var nokkuð dökkt á litinn og augun dökkblá
Þegar ég fæddist var ég 3920 grömm eða tæpar 16 merkur og 55 cm að lengd.
Pabbi keyrði mömmu á spítalann.
Eftir að ég fæddist fór ég í vöggu við hliðina á mömmu og svaf þar fyrstu nóttina.

Skírnin

Skírnin fór fram þann 24 febrúar í íbúðinni okkar mömmu.
Séra Gunnar Björnsson skírði mig nafninu Andri Liljar.
Skírnarvottar voru Kristrún Ragna Elvarsdóttir og Una Björg Hjartardóttir yfirfrænkur
Á skírnardaginn var frekar kalt en rólegt veður.
Veislan var haldin heima og lukkaðist rosa vel.

Helstu viðburðir fyrstu árin

Fyrsta brosið kom 12. mars

Hæð og þyngd

Við fæðingu var ég 55 cm og vó 3920 grömm.
Sex vikna gamall var ég 60,5 cm og vó 5940 grömm
3ja mánaða var ég 65,8 cm og vó 7445 grömm.
5 mánaða var ég 70 cm og vó 9060 grömm.

Mataræði

Ég var eingöngu á brjósti þar til ég var fimm og hálfs mánaðar gamall
Fasta fæðu fékk ég í fyrsta sinn í Danmörku. Það var hrísmjölsgrautur og mér líkaði hann mjög vel. Nú borða ég graut alltaf á kvöldin en annars er ég enn á brjósti.