Vefdagbók
Þann 17. júní tók ég upp á því að fara að ganga! Þar áður hafði ég tekið nokkur skref hér og þar en ekki gengið neina "alvöru" vegalengd. Við mamma vorum í heimsókn þegar ég gekk í fyrsta sinn en myndavélin var ekki með í för, því miður. Ég fer enn mjög varlega í göngutúrana og skríð svona að mestu leiti ennþá, það er líka svo miklu fljótlegra og öruggara 
Það er mjög langt síðan eitthvað hefur frést af mér í þessari dagbók en síðan síðast hef ég haft það glimrandi gott bara en hér koma nokkrir punktar sem snerta mig:
- Ég er síkátur
- Maís, fetaostur og ís eru nr. 1, 2 og 3 á mínum matseðli
- Ég er algjörlega háður litla Bangsímon teppinu sem pabbi gaf mér og vil helst hafa það með mér öllum stundum enda er það skítugt eftir því

- Mér finnst Freyja og öll önnur dýr alveg svakalega skemmtileg
- Ég er alger tækjakall og finnst fátt skemmtilegra en að komast í fjarstýringarnar hjá ömmu og afa og rugla öllu kerfinu hjá þeim
- Við mamma erum að fara að heimsækja Rögnu frænku og fjölskyldu í Danmörku. Við fljúgum út þann 25. júní og verðum samferða Ými Erni en komum heim á þjóðhátíðardegi BNA, þann 4. júlí
- Ég tala mikið (á mínu máli) og skil flest sem sagt er við mig en einu alvöru orðin sem ég er farinn að segja eru mamma og amma
- Þegar ég er beðinn um koss skalla ég viðkomandi en alveg í góðu samt því ég er alveg á því að kossar eigi heima á enninu (mamma kyssir mig svo oft á ennið)

- Ég er orðinn svolítill grallari og finnst gaman að stríða fólki til að fá frá því viðbrögð!
- Una, Kjartan og allt frænkugengið er að koma á Selfoss á föstudaginn...ég hlakka til að hitta þau

- Síðast en ekki síst! Ég er kominn með barnapíu sem heitir Ása Hlín. Hún ætlar að fara með mig í göngutúra og á róló nokkrum sinnum í viku í sumar
Látum þetta gott heita í bili! Njótið sumarsins 
19. June 2008 - 10:31
Jæja, vá hvað tíminn hefur flogið hratt og mamma hefur engan veginn verið að standa sig í dagbókarskrifunum!
Hún ætlar ekki að lofa því upp í ermina á sér að hún muni standa sig betur í framtíðinni en vonandi gerist það nú samt :)
Ég varð semsagt eins árs gamall klukkan 00:29 í nótt. Mamma beið með að fara að sofa því hana langaði að kyssa mig afmæliskossi akkúrat á mínútunni þegar ég ætti afmæli en það gekk ekki betur en svo að mamma leit á klukkuna þegar hún var 00:28 og svo vissi hún ekki meir fyrr en í morgun :( Afmæliskossinn fékk ég því ekki fyrr en í morgun og afmælissöng með.
Pabbi er staddur á landinu núna og eyddi því deginum með okkur mömmu í dag. Eftir morgunlúrinn minn varð ég mjög hissa því gamla settið hafði lagt á borð fyrir mig afmæliskökubita með kerti og pakka frá mömmu og Rögnu og fjölskyldu. Ég var búinn að fá leikfangahund frá pabba, frá Rögnu og co. fékk ég kubba og hana á bíl og frá mömmu fékk ég gönguvagn. Langamma og langafi á Blönduósi voru líka búin að senda mér matarsett og lúffur að gjöf.
Núna er ég sofandi í vagninum heima hjá ömmu og afa en hér bíður mín enn ein gjöfin, það verður spennandi að vita hvað leynist í þeim pakka! :)
Næstkomandi laugardag mun ég halda upp á afmælið mitt með minni nánustu fjölskyldu og vinum. Sökum plássleysis heima hjá okkur mömmu verður afmælið haldið hjá afa og ömmu!
Jæja, mamma ritari hefur ekki tíma til að skrifa meira í bili því hún er fara út að hlaupa ;)
Bless í bili!!!
5. February 2008 - 17:57
Ég er hálfs árs gamall í dag!
Ritarinn minn hefur ekki verið að standa sig í stykkinu og það er orðið mjög langt síðan fréttir af mér birtust hér. Nú stendur það til bóta og stiklað verður á stóru yfir það helsta sem hefur á daga mína drifið síðustu mánuðina. Þann 26. maí varð Silja Hlín, frænka mín, stúdent og við mamma, pabbi, amma, afi og langamma fórum í veislu hjá Nínu frænku í því tilefni. James Einar varð stúdent þennan sama dag og við mamma fórum að heimsækja hann daginn eftir útskriftina. Við fengum kökur og annað gott hjá Imbu og svo hittum við líka Bassý því hann kom til landsins í tilefni útskriftarinnar. Ragna og Bergur leigðu sér sumarbústað fyrstu vikuna í júní og buðu okkur mömmu að koma með þeim og krökkunum og vera alla vikuna. Við vorum sko heldur betur til í það og drifum okkur með. Mér fannst mjög gott að vera rólega sveitaloftinu við Apavatn og sló persónulegt svefnmet. Ég fór í fyrsta skipti í heitan pott í bústaðnum og fannst það mjög gaman en síðan þá hef ég farið nokkrum sinnum í pottinn hjá ömmu og afa. Mikael Breki "litli" frændi minn var skírður þann 10. maí og að sjálfsögðu fórum við mamma og pabbi í veislu honum til heiðurs sem var líka kveðjuveisla því Ragna og co. voru að flytja til Danmerkur í lok júní. Það hélt áfram þetta veislustand á okkur mömmu því við fórum í veislu á Akranesi þann 14. júní í tilefni þess að Hrafnhildur var að útskrifast sem hjúkrunarfræðingur og þann 16. júní fórum við í 7 ára afmæli Þórunnar Rebekku, dóttur Sóldísar. Una og stelpurnar voru hjá ömmu og afa í nokkra daga um miðjan júní áður en þær fóru til Spánar í frí með Kjartani að sjálfsögðu en hann fór á undan. Mér fannst afskaplega gaman að hitta frænkur mínar því ég hafði ekki hitt þær síðan í skírninni minni og var bara næstum alveg búinn að gleyma þeim. Í lok júní gistu Ragna, Guðrún Lilja, Nikolas Elí og Mikael Breki hjá okkur í nokkrar nætur áður en þau flugu til Danmerkur. Bergur og Kalman Veigur voru þá farnir á undan með Norrænu og búið var að tæma húsið þeirra í Reykholti. Það kom sér vel að við skyldum vera búin að fá okkur svefnsófa því á honum var nægt pláss fyrir alla næturgestina. Það var mjög gaman að hafa svona marga í kringum okkur og það varð frekar tómlegt hjá okkur mömmu þegar við vorum bara ein eftir í kotinu :( Amma, Sverrir Steinn og Jónas Karl áttu öll afmæli 6. júlí. Við mamma fórum í eins árs afmælisveislu tvíburanna og í kvöldmat til ömmu og afa. Ég fékk að hjálpa ömmu að opna pakkann frá okkur mömmu og fannst það rosalega gaman því það skrjáfaði svo skemmtilega í pappírnum. Mamma er viss um að ég eigi eftir að hafa gaman að pakkastandinu á jólunum, allavega ef pakkarnir verða í skemmtilegum pappír ;) Ég er orðinn sigldur maður!!! Við mamma og langamma fórum í heimsókn til Rögnu frænku og co. í Danaveldinu. Við flugum út 20. júlí og komum heim þann 30. júlí. Ég var svakalega góður í fluginu bæði út til Danmerkur og á heimleiðinni, ég svaf mest megnis báðar leiðirnar. Við höfðum það mjög gott hjá nýbaununum og gerðum margt skemmtilegt meðan á dvöl okkar stóð. Við fórum m.a. í dýragarðinn í Kaupmannahöfn, í Tívolíið, vöppuðum um á strikinu og fórum að heimsækja Silju frænku og fjölskyldu í Óðinsvéum. Silja og Ásdís frænkur mínar komu með okkur í Tívolíið. Ásdís býr núna tímabundið í Danmörku og því var ekkert mál fyrir hana að koma með okkur. Til að byrja með var hitinn alveg að drepa okkur mömmu, við sváfum varla á nóttunni fyrir honum en það skánaði því það kólnaði ögn og svo vöndumst við hitanum. Ég var alveg svakalega þægur í öllum ferðunum okkar, meira að segja í verslunarmiðstöðinni þegar mamma var að missa sig í H&M að kaupa á mig föt :) Mömmu fannst svo þægilegt og fyrirhafnarlítið að ferðast með mig (það kom henni náttúrulega ekki á óvart) þannig að það er á stefnuskránni að komast sem fyrst í heimsókn til Danmerkur aftur en það mun líklegast ekki samt gerast fyrr en næsta vor því það verður mikið að gera hjá mömmu í skólanum í vetur. Jæja, nú er ritarinn orðinn þreyttur og ætlar að láta þetta nægja í bili enda er búið að fara yfir það helsta sem hefur gerst hjá mér síðustu mánuði. Mamma ætlar að reyna að taka sig á og láta ekki líða svona langt þangað til hún skrifar næst í dagbókina :) Bless í bili!!!
5. August 2007 - 16:38
Jæja, það er frekar langt síðan síðast var ritað í þessa dagbók en margt hefur á daga mína drifið síðustu 8 vikur.
Þið sem eruð að fylgjast með mér verðið vinsamlegast að sýna mömmu smá biðlund því við erum ekki með nettengingu heima hjá okkur og þess vegna getur mamma ekki skrifað eins ört í dagbókina og hún vildi :)
Hvar skal nú byrja?
Ég fór í sex vikna skoðunina þegar ég var orðinn 8 vikna gamall vegna bókunarmistakanna. Eygló barnalækni leist ljómandi vel á mig en þegar hún hlustaði á hjartað mitt heyrði hún eitthvað hviss hljóð sem hún vildi láta athuga betur. Stundum getur svona hljóð verið vísbending um hjartagalla og þess vegna pantaði hún tíma fyrir mig hjá barna hjartasérfræðingi í Reykjavík. Við fengum ekki tíma fyrr en eftir páska. Eygló fullvissaði mömmu um að það lægi ekki mjög mikið á að skoða mig því það væri í raun mjög algengt að einhver aukahjóð heyrðust í hjörtum barna en það væri mjög sjaldgæft að í ljós kæmi að um hjartagalla væri að ræða.
Um páskana þvældumst við mamma upp um allar sveitir. Okkur var boðið í mat til Gulla frænda og fjölskyldu á skírdag, við fengum heimsókn frá Sóldísi og Þórunni Rebekku á föstudaginn langa og seinni part þess sama dags kom pabbi í heimsókn og gisti eina nótt. Á páskadag fórum við í Reykholt og kíktum á afa áður en við fórum í páskamat til Rögnu frænku. Á annan í páskum kíktum við á Guðbjörgu og strákana, Gulli frændi var þá farinn á sjóinn.
Þann 12. apríl fórum við mamma til Reykjavíkur til að láta kíkja á hjartað mitt. Gylfi læknir tók sér góðann tíma í að skoða mig. Mamma fékk smá kvíðahnút í magann vegna þess hve langan tíma skoðunin tók, hún hélt að læknirinn hlyti að sjá eitthvað óeðlilegt í hjartanu mínu og þess vegna tæki þetta svona langan tíma. Mamma hafði rangt fyrir sér, Gylfi er bara svona rosalega vandvirkur læknir og ég er alveg stálsleginn. Aukahljóðið stafar semsagt ekki af hjartagalla og það hverfur líklegast með tímanum. Þegar við vorum búin hjá lækninum kíktum við í heimsókn til Hrafnhildar og co.
Þriðjudaginn 15. apríl byrjuðum við mamma í leikfimi sem kallast “Heilsurækt eftir barnsburð”. Við förum í leikfimina á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum. Mamma sér aðallega um púlið en stundum fæ ég að vera með í æfingunum og finnst það mjög gaman. Í fyrsta tímanum varð ég svo þreyttur því þetta var allt svo nýtt fyrir mér þannig að ég steinsofnaði á dýnu við hliðina á mömmu. Ég hef náð að halda mér vakandi í öllum hinum tímunum og er alltaf svakalega þægur alveg þar til tíminn er búinn. Eftir leikfimina er þolinmæðin alveg þrotin og ég heimta að fá sopann minn.
Á sumardaginn fyrsta fórum við í vöfflukaffi til ömmu og afa. Ég fékk svaka fína sumargjöf frá þeim, röndóttan bol og mosagrænar buxur. Um kvöldið fórum við svo í matarboð til Kötlu og Jóns í höfuðborginni. Þar hittum við líka Hrafnhildi, Kristján, Þóri Frey, Ásdísi systur Kötlu og Þórunni vinkonu hennar.
Það er orðinn fastur liður hjá okkur mömmu að fara á foreldramorgna í Selfosskirkju á miðvikudögum. Þar hittir mamma aðrar mömmur og spjallar við þær. Stundum förum við mamma í göngutúra með öðrum börnum og mömmum sem við höfum kynnst á þessum morgnum.
Við mamma héldum upp á 1. maí með því að fara í "kröfugöngutúr" um bæinn í góða veðrinu :)
Núna síðastliðinn sunnudag fórum við í fermingarveislu Kristjáns Inga Valgeirssonar á Stokkseyri. Þar hittum við fullt af ættingjum og annað lið m.a. menn sem við mamma vorum að vinna með á Litla hrauni í sumar. Þeir höfðu reyndar ekki hitt mig áður því ég var í bumbunni síðastliðið sumar ;)
Jæja, mamma ritari verður að láta þetta gott heita í bili því ég er orðinn frekar svangur og pirraður við hana ömmu mína og vil fá smá mjólkursopa!!!
P.S. mamma var að panta flugmiða fyrir okkur til Kaupmannahafnar. Ætlunin er að heimsækja Rögnu frænku og fjölskyldu þegar þau eru flutt til Danmerkur. Við verðum hjá þeim frá 20. til 30. júlí.
16. May 2007 - 16:05
Síðastliðinn laugardag fórum við mamma í 8 ára afmæli Ýmis Arnar. Það var blíða og góð færð þegar við keyrðum upp í Reykholt. Við mamma gáfum Ými sjóræningjadót, hann var mjög ánægður með það. Veislan var í rólegri kantinum því eftir að búið var að snæða kökur og fleira fínerí þá fóru allir krakkarnir út að renna sér í snjónum. Þegar krakkarnir voru úti gafst mér fullkomið tækifæri til að leggja mig í herberginu hans Kalmans Veigars. Ég spjallaði mjög mikið við Elvar afa í veislunni, það var frekar langt síðan ég sá hann síðast svo ég hafði mjög margt að segja honum og hann mér sömuleiðis. Þegar tími var kominn til að halda heim á leið um kvöldið hafði veðrið versnað töluvert. Það var enn gott í Reykholti og alla leiðina heim að Borg en eftir það kom mikill skafrenningur úr öllum áttum svo mamma keyrði löturhægt það sem eftir var af leiðinni á heim á Selfoss. Ég varð frekar pirraður í bílnum á leiðinni því ferðin tók svo langan tíma. Við rætur Ingólfsfjalls missti ég þolinmæðina alveg og fór að öskra af öllum lífs og sálar kröftum. Lætin í mér stressuðu mömmu mjög mikið en hún náði að halda ró sinni og koma okkur heilum heim :) Í dag fór mamma með mig í 6 vikna skoðunina. Skoðunin var vitlaust bókuð þannig að ég átti tíma hjá hjúkrunarkonu en ekki barnalækni. Hún gaf mér tíma hjá barnalækni eftir tvær vikur en skoðaði mig samt aðeins fyrst ég var mættur á annað borð (svona aðallega fyrir mömmu því hún var svo spennt að vita hvað ég væri orðinn stór). Ég er orðinn 60,5 sm. langur og 5.940 gr. þungur þ.e. ég hef þyngst um rétt rúmlega tvö kíló síðan ég fæddist og lengst um 5,5 sentímetra. Mamma er viss um að ég verði álíka hávaxinn og hann pabbi minn. Hjúkrunarkonunni fannst ég vera alveg feykilega flottur strákur og sagði við mömmu að það væri augljóst að hún væri að gera eitthvað rétt með mig því ég dafnaði svo vel. Mamma varð mjög stolt vegna þessara ummæla, það finnst greinilegu fleirum en bara mínum nánustu að ég sé flottastur :)!!!! Bless í bili ;)
19. March 2007 - 13:48
Í morgun gaf ég mömmu minni fyrsta almennilega brosið mitt og svo lét ég annað fylgja fast í kjölfarið. Mamma varð yfir sig kát yfir því að fá loksins bros frá mér og alveg svakalega montin yfir því líka. Hún reyndi svo að fá mig til að brosa aftur svo hún næði einu svona "út að eyrum" á mynd en ég þvertók fyrir það, brosskammturinn var einfaldlega búinn í bili :). Mamma hringdi í pabba alveg rígmontin með tíðindin og það er ekki laust við að pabbi hafi orðið pínu abbó! Annars er það helst að frétta af mér síðan síðast að við mamma erum farin að fara í göngutúra saman þegar veður leyfir. Í upphafi mánaðarins fór veðrið að skána þannig að það sem af er mars mánuði höfum við farið í marga göngutúra og ég hef sofið úti í vagninum fyrir utan heima hjá mér. Mér finnst alveg svakalega gott að sofa í vagninum úti í fersku lofti. Freyja fer yfirleitt með okkur út að ganga og er afskaplega kát með það en hún er ferlega mikill klaufi að ganga með vagninum þannig að hún verður oft næstum því undir honum. Mamma var mjög dugleg að fara út að ganga með Freyju þegar ég var enn í maganum en eftir að ég kom í heiminn hafa ekki gefist mörg tækifæri til gönguferða fyrr en núna eftir að mamma fór að fara með mig út í vagninum, það er því skiljanlegt að tíkin sé kát. Það verður mikið að gera hjá mér á næstunni. Núna á laugardaginn er ég að fara í afmælið hans Ýmis Arnar frænda míns í Reykholti, þetta verður fyrsta "partýið" mitt og ég hlakka mjög mikið til. Næsta þriðjudag á ég tíma í 6 vikna skoðun hjá barnalækni. Mömmu hlakkar mjög mikið til skoðunarinnar því hana langar að vita hversu mikið ég hef stækkað og þyngst í heildina síðan ég fæddist. Um leið og skoðunin er afstaðin mun mamma færa nýjustu tölur inn í dagbókina! Bless í bili :)
12. March 2007 - 12:56
Jæja, þá er bara komið að fyrsta "afmælinu" mínu. Ég er orðinn heils mánaðar gamall! Það hlýtur að vera mjög hár aldur því ég er farinn að missa hárið. Mömmu og pabba finnst ótrúlegt hvernig tíminn flýgur áfram, í þeirra augum var það bara í gær eða fyrradag sem ég fæddist, þeim finnst svo stutt síðan ég leit heiminn fyrst augum :) Gamla settinu finnst ég líka vera ofboðslega skýr strákur því þegar ég er í fína stólnum mínum sem ég fékk frá starfsfólki Múlabæjar, þá tek ég svo vel eftir öllu fína dótinu sem er fyrir framan mig og pæli mikið í því. Stóllin spilar líka lög og ljós blikka á honum þegar ég sparka í skynjara sem er við fæturna. Í fyrstu fattaði ég ekkert hvað varð til þess að allt fór í gang á stólnum en nú er ég alveg með það á hreinu og reyni eftir mesta megni að sparka í skynjarann en verð stundum rosalega pirraður því fæturnir vilja bara ekki hlíða mér ennþá. Þegar mér tekst að koma öllu í gang verð ég svakalega kátur og gef frá mér ánægjuhljóð ásamt hálfbrosi. Ég segi hálfbrosi því ég er ekki enn farinn að brosa alveg, ég er svolítið að spara brosin mín til að stríða mömmu og pabba :) Þau bíða með öndina í hálsinum eftir því að fá bros frá mér og vilja náttúrulega bæði verða fyrst til að fá alvöru bros. Ég stríði þeim með því að gefa þeim svona bros út í annað þegar þau eru að gretta sig og geifla framan í mig til að reyna að fá viðbragð. Mömmu hlakkar svo til að sjá alvöru bros frá mér því þá mun hún sjá hvort það leynist spékoppar í bollukinnunum mínum, svona eins og pabbi minn og margir aðrir í fjölskyldunni (afa megin) eru með. Hún hefur reyndar séð að það er spékoppur hægra megin en það er spurning hvort það sé annar vinstra megin. Jæja, nú er nóg komið í bili! Ég fæ mömmu ritara til að skrifa eitthvað fyrir mig næst þegar eitthvað merkilegt hefur gerst hjá mér ;)
5. March 2007 - 17:20
Í dag var ég skírður af Sr. Gunnari Björnssyni. Mamma hélt á mér undir skírn en pabbi sagði nafnið mitt hátt og skýrt þegar presturinn spurði hvað ég skyldi heita. Við skírnina var mér gefið nafnið Andri Liljar. Ég heiti Liljar í höfuðið á Lilju ömmu og Lilju langömmu en Andra nafnið er ekki í höfuðið á neinum, mömmu og pabba fannst það bara fallegt.
Skírnin fór fram heima hjá mér að Fossvegi 2, Selfossi. Aðeins nánustu ættingjum mínum var boðið að vera við skírnina sökum plássleysis. Við skírnina voru mamma og pabbi að sjálfsögðu, Kristrún langamma, Ingibjörg langamma, Elvar afi, Hjörtur afi, Helga amma, Una, Kjartan, Sólrún Svava, Sunneva og Helga Björg, Ragna, Bergur, Guðrún Lilja og Nikolas Elí og síðust en ekki síst, Ásdís.
Skírnarvottar voru Ragna móðursystir mín og Una Björg föðursystir mín. Þær tóku þátt í skírnarathöfninni og stóðu sig með prýði. Sólrún Svava og Sunneva tóku einnig þátt í athöfninni ásamt Hirti afa. Þær sungu fyrir mig með englaröddum lagið "Leiddu mína litlu hendi" við ukulele undirspil afa.
Skírnarkjóllinn sem ég klæddist í tilefni dagsins er frá Ásu frænku en Kristrún langamma mín saumaði hann. Ég var ekkert mjög sáttur þegar verið var að setja mig í skírnarkjólinn og grét svolítið en um leið og ég var kominn í kjólinn og hafði fengið snuð í munninn steinþagnaði ég og sofnaði fljótlega eftir það. Það var eins og ég hefði verið rotaður því ég svaf af mér skírnarathöfnina og rumskaði ekki einu sinni þegar verið var að færa mig manna á milli eftir skírnina til að taka af mér myndir. Eftir svolítið mikið hnoð með mig fram og til baka vaknaði ég og var þá orðinn svangur. Mamma reddaði málunum með því að gefa mér að drekka og svo hélt ég bara áfram að sofa nema í þetta sinn í vöggunni minni.
Gestirnir mínir fengu að sjálfsögðu kaffi og kökur eftir athöfnina og ég fékk fullt af fínum gjöfum í staðinn :) Langömmur mínar gáfu mér báðar myndaalbúm með með silfurrömmum framan á til að setja myndir í, Ragna og fjölskylda gáfu mér tuskulamb sem gefur frá sér hin ýmsu náttúruhljóð sem gott er að hlusta á fyrir svefninn, Una og fjölskylda gáfu mér útigalla, vettlinga og sokka frá 66 gráður norður og vísnabók, Elvar afi gaf mér bauk og pening, Hjörtur afi og Helga amma gáfu mér silfurramma með áletrun og Ásdís gaf mér peysu frá 66 gráður norður.
Stóri dagurinn minn var semsagt vel heppnaður í alla staði en ég á það að þakka öllum þeim sem komu að fagna með mér og lögðu hönd á plóg til að gera hann sérstakann :) Takk fyrir mig!
24. February 2007 - 19:39