
wee fleirri myndir.. getum ekki hætt að skoða littla frænda, hann er bara svo mikil krúttímús
Jájá við erum á leiðinni. Þú ert orðinn svo stór og mannalegur, langar bara að knúsa þig.
Biðjum að heilsa foreldrunum :)
hææ þú ert sætur eins og við er að búast :) Fínn í töffara gallabuxum
kveðja að Norðan
Hæ hæ elsku sæti frændi. Ofsalega eru flottar myndirnar af þér. Knúsaðu nú allt fólkið okkar fyrir sunnan vel og vandlega fyrir okkur. Ástar - og saknaðar....
Una, Kjartan, Sipp, Sippripparipp og Sippsipparippsippasúrumsipp
Andri litli er orðin svo mannalegur enda ekki eftir neinu að bíða ;) Við erum auðvita mjög glaðar að sjá hann í stólnum enda kallaður "ömmubarnið" í Múlabæ...Vona að allt gangi vel og hlakka til að sjá ykkur, Kv Stína
Rosalega flottur frændi með fínt nafn. Kíkjum á hann þegar flensan er örugglega búin á heimilinu.
Ekkert smá flottur á nýju myndunum ég verð að fara að kíkja á ykkur:)
Hæ sæti.
Ji hvað þú ert mikill gæji á öllum nýju myndunum. Ég held ég verði nú bara bráðum að fara að kíkja á þig, litla sjarmatröll.
Kveðja Hrafnhildur
flottar nýjar myndir... rosalegur gæji í gallabuxum og risaeðlupeysu thithti.. fyndið að sjá hvað hann getur verið líkur mörgum aðillum á mismunandi myndum.. sá Árna og Gulla frænda þarna á nokkrum hehe svo bara blanda af foreldrum þar á milli :))
Innilega til hamingju með þennan fallega dreng og ekki er nafnið síðra! Vonandi getum við farið að sjá Andra Liljar með berum augum sem fyrst þar sem heilsufarið á heimilinu fer sífellt batnandi. Gangi ykkur allt í haginn.
Innilega til hamingju með þennan flotta strák og fallega nafnið hans. Gangi þér vel í bleyjuskiftum og brjóstagjöf, hí hí
Kær kveðja frá okkur öllum - vonumst til að skreppa á klakann í sumar og fáum þá kannski hitta ykkur.
Til Hamingju með strákinn.
Þrælmyndarlegur gaur þarna á ferð.
innilega til hamingju með guttan og nafnið :)
Elsku Helga. Innilega til hamingju með fallega molann;) Rosa flottur strákur. Gangi ykkur sem allra best. Bestu kveðjur að norðan
Halló sætastur og til hamingju með nafnið þitt. Þú kyssir kannski foreldra þína til hamingju frá mér.
Nú erum við Gummi búin að kaupa okkur bíl þannig að við förum að koma oftar að sjá þig, fáum kannski að máta þig næst.
Bestu kveðjur
Brynja og Gummi
Hæ sæti :) Til hamingju með fína nafnið þitt! Ég á eftir að verða fastagestur hér inni ;) bestu kveðjur frá Norðurpólnum
Soffía
Búin að kíkja annað slagið og ath. hvort það væru komnar myndir á þessa fínu síðu....og aldrei neinar myndir fyrr en NÚNA fullt fullt fullt af flottum myndum af þér og fleirum:)
Hafið það gott og vonandi sjáumst við fljótlega Andri Liljar.
Bestu kveðjur
Katla Björk
Til hamingju með síðuna ég á eftir að kíkja reglulega við og skoða þig Andri Liljar;)
Yfirfrænka hérna að kíkja á síðunna þína.. mamma og pabbi verða vera dugleg að uppfæra þessa síðu.. viljum fréttir vikulega :)
Til hamingju með fallega nafnið þitt Andri Liljar! Ég verð daglegur gestur á síðunni þinni í framtíðinni (sem ég fann af tilviljun...). Elsku Helga og Árni gangi ykkur vel með prinsinn. Kveðja Stína
Sæll Andri Liljar og innilega til hamingju með flotta nafnið þitt. Við bíðum spennt eftir myndum á síðuna þína.... okkur finnst hún nú frekar tómleg. Biðjum að heilsa mömmu þinni.
kv Hrafnhildur og Þórir Freyr