ANDRI LILJAR ÁRNASON
 

1 árs gamall

Jæja, vá hvað tíminn hefur flogið hratt og mamma hefur engan veginn verið að standa sig í dagbókarskrifunum! Hún ætlar ekki að lofa því upp í ermina á sér að hún muni standa sig betur í framtíðinni en vonandi gerist það nú samt :) Ég varð semsagt eins árs gamall klukkan 00:29 í nótt. Mamma beið með að fara að sofa því hana langaði að kyssa mig afmæliskossi akkúrat á mínútunni þegar ég ætti afmæli en það gekk ekki betur en svo að mamma leit á klukkuna þegar hún var 00:28 og svo vissi hún ekki meir fyrr en í morgun :( Afmæliskossinn fékk ég því ekki fyrr en í morgun og afmælissöng með. Pabbi er staddur á landinu núna og eyddi því deginum með okkur mömmu í dag. Eftir morgunlúrinn minn varð ég mjög hissa því gamla settið hafði lagt á borð fyrir mig afmæliskökubita með kerti og pakka frá mömmu og Rögnu og fjölskyldu. Ég var búinn að fá leikfangahund frá pabba, frá Rögnu og co. fékk ég kubba og hana á bíl og frá mömmu fékk ég gönguvagn. Langamma og langafi á Blönduósi voru líka búin að senda mér matarsett og lúffur að gjöf. Núna er ég sofandi í vagninum heima hjá ömmu og afa en hér bíður mín enn ein gjöfin, það verður spennandi að vita hvað leynist í þeim pakka! :) Næstkomandi laugardag mun ég halda upp á afmælið mitt með minni nánustu fjölskyldu og vinum. Sökum plássleysis heima hjá okkur mömmu verður afmælið haldið hjá afa og ömmu! Jæja, mamma ritari hefur ekki tíma til að skrifa meira í bili því hún er fara út að hlaupa ;) Bless í bili!!!
5. February 2008 - 17:57



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti