Hálfs árs afmæli, Danmerkurferð og fleira
Ég er hálfs árs gamall í dag!
Ritarinn minn hefur ekki verið að standa sig í stykkinu og það er orðið mjög langt síðan fréttir af mér birtust hér. Nú stendur það til bóta og stiklað verður á stóru yfir það helsta sem hefur á daga mína drifið síðustu mánuðina. Þann 26. maí varð Silja Hlín, frænka mín, stúdent og við mamma, pabbi, amma, afi og langamma fórum í veislu hjá Nínu frænku í því tilefni. James Einar varð stúdent þennan sama dag og við mamma fórum að heimsækja hann daginn eftir útskriftina. Við fengum kökur og annað gott hjá Imbu og svo hittum við líka Bassý því hann kom til landsins í tilefni útskriftarinnar. Ragna og Bergur leigðu sér sumarbústað fyrstu vikuna í júní og buðu okkur mömmu að koma með þeim og krökkunum og vera alla vikuna. Við vorum sko heldur betur til í það og drifum okkur með. Mér fannst mjög gott að vera rólega sveitaloftinu við Apavatn og sló persónulegt svefnmet. Ég fór í fyrsta skipti í heitan pott í bústaðnum og fannst það mjög gaman en síðan þá hef ég farið nokkrum sinnum í pottinn hjá ömmu og afa. Mikael Breki "litli" frændi minn var skírður þann 10. maí og að sjálfsögðu fórum við mamma og pabbi í veislu honum til heiðurs sem var líka kveðjuveisla því Ragna og co. voru að flytja til Danmerkur í lok júní. Það hélt áfram þetta veislustand á okkur mömmu því við fórum í veislu á Akranesi þann 14. júní í tilefni þess að Hrafnhildur var að útskrifast sem hjúkrunarfræðingur og þann 16. júní fórum við í 7 ára afmæli Þórunnar Rebekku, dóttur Sóldísar. Una og stelpurnar voru hjá ömmu og afa í nokkra daga um miðjan júní áður en þær fóru til Spánar í frí með Kjartani að sjálfsögðu en hann fór á undan. Mér fannst afskaplega gaman að hitta frænkur mínar því ég hafði ekki hitt þær síðan í skírninni minni og var bara næstum alveg búinn að gleyma þeim. Í lok júní gistu Ragna, Guðrún Lilja, Nikolas Elí og Mikael Breki hjá okkur í nokkrar nætur áður en þau flugu til Danmerkur. Bergur og Kalman Veigur voru þá farnir á undan með Norrænu og búið var að tæma húsið þeirra í Reykholti. Það kom sér vel að við skyldum vera búin að fá okkur svefnsófa því á honum var nægt pláss fyrir alla næturgestina. Það var mjög gaman að hafa svona marga í kringum okkur og það varð frekar tómlegt hjá okkur mömmu þegar við vorum bara ein eftir í kotinu :( Amma, Sverrir Steinn og Jónas Karl áttu öll afmæli 6. júlí. Við mamma fórum í eins árs afmælisveislu tvíburanna og í kvöldmat til ömmu og afa. Ég fékk að hjálpa ömmu að opna pakkann frá okkur mömmu og fannst það rosalega gaman því það skrjáfaði svo skemmtilega í pappírnum. Mamma er viss um að ég eigi eftir að hafa gaman að pakkastandinu á jólunum, allavega ef pakkarnir verða í skemmtilegum pappír ;) Ég er orðinn sigldur maður!!! Við mamma og langamma fórum í heimsókn til Rögnu frænku og co. í Danaveldinu. Við flugum út 20. júlí og komum heim þann 30. júlí. Ég var svakalega góður í fluginu bæði út til Danmerkur og á heimleiðinni, ég svaf mest megnis báðar leiðirnar. Við höfðum það mjög gott hjá nýbaununum og gerðum margt skemmtilegt meðan á dvöl okkar stóð. Við fórum m.a. í dýragarðinn í Kaupmannahöfn, í Tívolíið, vöppuðum um á strikinu og fórum að heimsækja Silju frænku og fjölskyldu í Óðinsvéum. Silja og Ásdís frænkur mínar komu með okkur í Tívolíið. Ásdís býr núna tímabundið í Danmörku og því var ekkert mál fyrir hana að koma með okkur. Til að byrja með var hitinn alveg að drepa okkur mömmu, við sváfum varla á nóttunni fyrir honum en það skánaði því það kólnaði ögn og svo vöndumst við hitanum. Ég var alveg svakalega þægur í öllum ferðunum okkar, meira að segja í verslunarmiðstöðinni þegar mamma var að missa sig í H&M að kaupa á mig föt :) Mömmu fannst svo þægilegt og fyrirhafnarlítið að ferðast með mig (það kom henni náttúrulega ekki á óvart) þannig að það er á stefnuskránni að komast sem fyrst í heimsókn til Danmerkur aftur en það mun líklegast ekki samt gerast fyrr en næsta vor því það verður mikið að gera hjá mömmu í skólanum í vetur. Jæja, nú er ritarinn orðinn þreyttur og ætlar að láta þetta nægja í bili enda er búið að fara yfir það helsta sem hefur gerst hjá mér síðustu mánuði. Mamma ætlar að reyna að taka sig á og láta ekki líða svona langt þangað til hún skrifar næst í dagbókina :) Bless í bili!!!
5. August 2007 - 16:38
Athugasemdir