ANDRI LILJAR ÁRNASON
 

Ýmsar fréttir

Jæja, það er frekar langt síðan síðast var ritað í þessa dagbók en margt hefur á daga mína drifið síðustu 8 vikur. Þið sem eruð að fylgjast með mér verðið vinsamlegast að sýna mömmu smá biðlund því við erum ekki með nettengingu heima hjá okkur og þess vegna getur mamma ekki skrifað eins ört í dagbókina og hún vildi :) Hvar skal nú byrja? Ég fór í sex vikna skoðunina þegar ég var orðinn 8 vikna gamall vegna bókunarmistakanna. Eygló barnalækni leist ljómandi vel á mig en þegar hún hlustaði á hjartað mitt heyrði hún eitthvað hviss hljóð sem hún vildi láta athuga betur. Stundum getur svona hljóð verið vísbending um hjartagalla og þess vegna pantaði hún tíma fyrir mig hjá barna hjartasérfræðingi í Reykjavík. Við fengum ekki tíma fyrr en eftir páska. Eygló fullvissaði mömmu um að það lægi ekki mjög mikið á að skoða mig því það væri í raun mjög algengt að einhver aukahjóð heyrðust í hjörtum barna en það væri mjög sjaldgæft að í ljós kæmi að um hjartagalla væri að ræða. Um páskana þvældumst við mamma upp um allar sveitir. Okkur var boðið í mat til Gulla frænda og fjölskyldu á skírdag, við fengum heimsókn frá Sóldísi og Þórunni Rebekku á föstudaginn langa og seinni part þess sama dags kom pabbi í heimsókn og gisti eina nótt. Á páskadag fórum við í Reykholt og kíktum á afa áður en við fórum í páskamat til Rögnu frænku. Á annan í páskum kíktum við á Guðbjörgu og strákana, Gulli frændi var þá farinn á sjóinn. Þann 12. apríl fórum við mamma til Reykjavíkur til að láta kíkja á hjartað mitt. Gylfi læknir tók sér góðann tíma í að skoða mig. Mamma fékk smá kvíðahnút í magann vegna þess hve langan tíma skoðunin tók, hún hélt að læknirinn hlyti að sjá eitthvað óeðlilegt í hjartanu mínu og þess vegna tæki þetta svona langan tíma. Mamma hafði rangt fyrir sér, Gylfi er bara svona rosalega vandvirkur læknir og ég er alveg stálsleginn. Aukahljóðið stafar semsagt ekki af hjartagalla og það hverfur líklegast með tímanum. Þegar við vorum búin hjá lækninum kíktum við í heimsókn til Hrafnhildar og co. Þriðjudaginn 15. apríl byrjuðum við mamma í leikfimi sem kallast “Heilsurækt eftir barnsburð”. Við förum í leikfimina á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum. Mamma sér aðallega um púlið en stundum fæ ég að vera með í æfingunum og finnst það mjög gaman. Í fyrsta tímanum varð ég svo þreyttur því þetta var allt svo nýtt fyrir mér þannig að ég steinsofnaði á dýnu við hliðina á mömmu. Ég hef náð að halda mér vakandi í öllum hinum tímunum og er alltaf svakalega þægur alveg þar til tíminn er búinn. Eftir leikfimina er þolinmæðin alveg þrotin og ég heimta að fá sopann minn. Á sumardaginn fyrsta fórum við í vöfflukaffi til ömmu og afa. Ég fékk svaka fína sumargjöf frá þeim, röndóttan bol og mosagrænar buxur. Um kvöldið fórum við svo í matarboð til Kötlu og Jóns í höfuðborginni. Þar hittum við líka Hrafnhildi, Kristján, Þóri Frey, Ásdísi systur Kötlu og Þórunni vinkonu hennar. Það er orðinn fastur liður hjá okkur mömmu að fara á foreldramorgna í Selfosskirkju á miðvikudögum. Þar hittir mamma aðrar mömmur og spjallar við þær. Stundum förum við mamma í göngutúra með öðrum börnum og mömmum sem við höfum kynnst á þessum morgnum. Við mamma héldum upp á 1. maí með því að fara í "kröfugöngutúr" um bæinn í góða veðrinu :) Núna síðastliðinn sunnudag fórum við í fermingarveislu Kristjáns Inga Valgeirssonar á Stokkseyri. Þar hittum við fullt af ættingjum og annað lið m.a. menn sem við mamma vorum að vinna með á Litla hrauni í sumar. Þeir höfðu reyndar ekki hitt mig áður því ég var í bumbunni síðastliðið sumar ;) Jæja, mamma ritari verður að láta þetta gott heita í bili því ég er orðinn frekar svangur og pirraður við hana ömmu mína og vil fá smá mjólkursopa!!! P.S. mamma var að panta flugmiða fyrir okkur til Kaupmannahafnar. Ætlunin er að heimsækja Rögnu frænku og fjölskyldu þegar þau eru flutt til Danmerkur. Við verðum hjá þeim frá 20. til 30. júlí.
16. May 2007 - 16:05



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti