ANDRI LILJAR ÁRNASON
 

Fyrsta brosið

Í morgun gaf ég mömmu minni fyrsta almennilega brosið mitt og svo lét ég annað fylgja fast í kjölfarið. Mamma varð yfir sig kát yfir því að fá loksins bros frá mér og alveg svakalega montin yfir því líka. Hún reyndi svo að fá mig til að brosa aftur svo hún næði einu svona "út að eyrum" á mynd en ég þvertók fyrir það, brosskammturinn var einfaldlega búinn í bili :). Mamma hringdi í pabba alveg rígmontin með tíðindin og það er ekki laust við að pabbi hafi orðið pínu abbó! Annars er það helst að frétta af mér síðan síðast að við mamma erum farin að fara í göngutúra saman þegar veður leyfir. Í upphafi mánaðarins fór veðrið að skána þannig að það sem af er mars mánuði höfum við farið í marga göngutúra og ég hef sofið úti í vagninum fyrir utan heima hjá mér. Mér finnst alveg svakalega gott að sofa í vagninum úti í fersku lofti. Freyja fer yfirleitt með okkur út að ganga og er afskaplega kát með það en hún er ferlega mikill klaufi að ganga með vagninum þannig að hún verður oft næstum því undir honum. Mamma var mjög dugleg að fara út að ganga með Freyju þegar ég var enn í maganum en eftir að ég kom í heiminn hafa ekki gefist mörg tækifæri til gönguferða fyrr en núna eftir að mamma fór að fara með mig út í vagninum, það er því skiljanlegt að tíkin sé kát. Það verður mikið að gera hjá mér á næstunni. Núna á laugardaginn er ég að fara í afmælið hans Ýmis Arnar frænda míns í Reykholti, þetta verður fyrsta "partýið" mitt og ég hlakka mjög mikið til. Næsta þriðjudag á ég tíma í 6 vikna skoðun hjá barnalækni. Mömmu hlakkar mjög mikið til skoðunarinnar því hana langar að vita hversu mikið ég hef stækkað og þyngst í heildina síðan ég fæddist. Um leið og skoðunin er afstaðin mun mamma færa nýjustu tölur inn í dagbókina! Bless í bili :)
12. March 2007 - 12:56



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti