Eins mánaðar gamall
Jæja, þá er bara komið að fyrsta "afmælinu" mínu. Ég er orðinn heils mánaðar gamall! Það hlýtur að vera mjög hár aldur því ég er farinn að missa hárið. Mömmu og pabba finnst ótrúlegt hvernig tíminn flýgur áfram, í þeirra augum var það bara í gær eða fyrradag sem ég fæddist, þeim finnst svo stutt síðan ég leit heiminn fyrst augum :) Gamla settinu finnst ég líka vera ofboðslega skýr strákur því þegar ég er í fína stólnum mínum sem ég fékk frá starfsfólki Múlabæjar, þá tek ég svo vel eftir öllu fína dótinu sem er fyrir framan mig og pæli mikið í því. Stóllin spilar líka lög og ljós blikka á honum þegar ég sparka í skynjara sem er við fæturna. Í fyrstu fattaði ég ekkert hvað varð til þess að allt fór í gang á stólnum en nú er ég alveg með það á hreinu og reyni eftir mesta megni að sparka í skynjarann en verð stundum rosalega pirraður því fæturnir vilja bara ekki hlíða mér ennþá. Þegar mér tekst að koma öllu í gang verð ég svakalega kátur og gef frá mér ánægjuhljóð ásamt hálfbrosi. Ég segi hálfbrosi því ég er ekki enn farinn að brosa alveg, ég er svolítið að spara brosin mín til að stríða mömmu og pabba :) Þau bíða með öndina í hálsinum eftir því að fá bros frá mér og vilja náttúrulega bæði verða fyrst til að fá alvöru bros. Ég stríði þeim með því að gefa þeim svona bros út í annað þegar þau eru að gretta sig og geifla framan í mig til að reyna að fá viðbragð. Mömmu hlakkar svo til að sjá alvöru bros frá mér því þá mun hún sjá hvort það leynist spékoppar í bollukinnunum mínum, svona eins og pabbi minn og margir aðrir í fjölskyldunni (afa megin) eru með. Hún hefur reyndar séð að það er spékoppur hægra megin en það er spurning hvort það sé annar vinstra megin. Jæja, nú er nóg komið í bili! Ég fæ mömmu ritara til að skrifa eitthvað fyrir mig næst þegar eitthvað merkilegt hefur gerst hjá mér ;)
5. March 2007 - 17:20
Athugasemdir