Skírnin mín
Í dag var ég skírður af Sr. Gunnari Björnssyni. Mamma hélt á mér undir skírn en pabbi sagði nafnið mitt hátt og skýrt þegar presturinn spurði hvað ég skyldi heita. Við skírnina var mér gefið nafnið Andri Liljar. Ég heiti Liljar í höfuðið á Lilju ömmu og Lilju langömmu en Andra nafnið er ekki í höfuðið á neinum, mömmu og pabba fannst það bara fallegt.
Skírnin fór fram heima hjá mér að Fossvegi 2, Selfossi. Aðeins nánustu ættingjum mínum var boðið að vera við skírnina sökum plássleysis. Við skírnina voru mamma og pabbi að sjálfsögðu, Kristrún langamma, Ingibjörg langamma, Elvar afi, Hjörtur afi, Helga amma, Una, Kjartan, Sólrún Svava, Sunneva og Helga Björg, Ragna, Bergur, Guðrún Lilja og Nikolas Elí og síðust en ekki síst, Ásdís.
Skírnarvottar voru Ragna móðursystir mín og Una Björg föðursystir mín. Þær tóku þátt í skírnarathöfninni og stóðu sig með prýði. Sólrún Svava og Sunneva tóku einnig þátt í athöfninni ásamt Hirti afa. Þær sungu fyrir mig með englaröddum lagið "Leiddu mína litlu hendi" við ukulele undirspil afa.
Skírnarkjóllinn sem ég klæddist í tilefni dagsins er frá Ásu frænku en Kristrún langamma mín saumaði hann. Ég var ekkert mjög sáttur þegar verið var að setja mig í skírnarkjólinn og grét svolítið en um leið og ég var kominn í kjólinn og hafði fengið snuð í munninn steinþagnaði ég og sofnaði fljótlega eftir það. Það var eins og ég hefði verið rotaður því ég svaf af mér skírnarathöfnina og rumskaði ekki einu sinni þegar verið var að færa mig manna á milli eftir skírnina til að taka af mér myndir. Eftir svolítið mikið hnoð með mig fram og til baka vaknaði ég og var þá orðinn svangur. Mamma reddaði málunum með því að gefa mér að drekka og svo hélt ég bara áfram að sofa nema í þetta sinn í vöggunni minni.
Gestirnir mínir fengu að sjálfsögðu kaffi og kökur eftir athöfnina og ég fékk fullt af fínum gjöfum í staðinn :) Langömmur mínar gáfu mér báðar myndaalbúm með með silfurrömmum framan á til að setja myndir í, Ragna og fjölskylda gáfu mér tuskulamb sem gefur frá sér hin ýmsu náttúruhljóð sem gott er að hlusta á fyrir svefninn, Una og fjölskylda gáfu mér útigalla, vettlinga og sokka frá 66 gráður norður og vísnabók, Elvar afi gaf mér bauk og pening, Hjörtur afi og Helga amma gáfu mér silfurramma með áletrun og Ásdís gaf mér peysu frá 66 gráður norður.
Stóri dagurinn minn var semsagt vel heppnaður í alla staði en ég á það að þakka öllum þeim sem komu að fagna með mér og lögðu hönd á plóg til að gera hann sérstakann :) Takk fyrir mig!
24. February 2007 - 19:39
Athugasemdir