

Mælingar
6.maí Fæðing: 4380 grömm og höfuðmálið 37,5cm. Lengd 53 cm
27.maí: Hjúkkan kíkti til okkar. Prinsinn orðinn 4890 grömm og höfuðmálið 39 cm.
10.júní kom hjúkkan til okkar. Prinsinn þá 35 daga gamall. 4 vikna+4 d. þá mældist hann 5400 gr og höfuðálið var 39,8 cm.
21.júní: Fórum upp á sjúkrahús. Jón Arnar mældist 58,5 cm á lengd og 5750 grömm og höfuðmálið var 40,5 cm. Barnalæknirninn skoðaði hann og allt leit vel út. Á 11 dögum þyngdist hann um 350 grömm sem er mjög flott.
12.júlí 2010 9 vikna skoðun Jón Arnar mældist 60,5 cm á lengd, 41,5 cm höfuð og 6260 grömm. Sindri Snær var 6100 grömm 9 vikna sem segir mér að hann hafi þyngst miklu meir en Jón Arnar því hann fæddist töluvert léttari. Sindri Snær var einnig lengri. En svo í 6 mánaða skoðuninni þá þurfti Sindri að koma mánaðarlega því hann þyngdist svo illa.
6. ágúst 3 mánaða skoðun. Hann mældist 63 cm og 6865grömm og höfuðið var 42,3 cm
1.apríl fór með hann til læknis fékk hita á sunnudeginum, með mikið kvef og hósta. Hann fékk pensilín sem heitir Primazol. Hann fær það við berkjabólgu og þvagfærasýkingu. Á að vera á því í 5 daga.
Framfarir í þroska
Bros kom 3 vikna.
Hjal: Kom 3 vikna, ekki samt mikið.
Hlátur: Heyrði hann fyrst hlægja 11.júlí 2010. Hann var þá að horfa í eitt hornið inn á baðherbergi (hann horfir mikið í áttina að efri skápnum likt og einhver manneskja sé þar : / )
Hann skoðar mikið í kringum sig og fylgist mikið með okkur í fjölskyldunni.
Hann fór fyrsta skipti í vagninn sinn 3 vikna.
Hann velti sér af maga yfir á bak 7.ágúst ný orðinn 3 mánaða
Hann velti sér af baki yfir á maga 10.ágúst en gerir það ekki oft.
13.ágúst-18.ágúst fer hann í fyrsta skipti til Akureyrar með fjölskyldunni
19:ágúst fer í fyrsta skipti í sumarbústað í Húsafell með Helgu og Árna
Velti sér af baki yfir á maga 3 mánaða eða 7.ágúst í rúminu sínu.
6 mánaða þá gat hann klappað saman lófunum og rukkað sér fram og aftur við tónlist : )
7 mánaða fékk hann göngugrindina sína : )
10 mánaða smellir í góm, sýnir hvað hann er sterkur, segir orðin datt, mamma, pabbi, út. Labba meðfram öllu.
Skírnin
Jón Arnar var skírður í Selfosskirkju þar sem Séra Kristinn skírði. Veislan var haldin í miðenginu. Það komu fullt af fólki. Það var rosalega gott veður þennan dag.
Jón Arnar fór að sofa í sínu herbergi 5 mánaða. Hann hætti á brjósti 7 mánaða og vikugamall (þá bara á nóttunni) gekk mjög vel að venja hann af brjósti. Óli tók hann að sér og það tók bara tvær nætur og þá svaf minn frá 21:00 - 08:00