

á þriðja í jólum 2008 segir Sindri Snær þarna er Ölfusá (við erum að keyra yfir Ölfusábrú) og svo lítur hann hinum megin og segir ,, og hér er annan Ölfusá"
Á gamlárskvöld 2008 fórum við á brennu og það fyrsta sem minn fór að gera var að blása af öllum krafti. hver er munurinn á kerti og báli isss hihi)
þann 25. mars 2009 sagði Sindri Snær ég vil fá mjólk sko asnamjólk. Mamma vissi ekki hvað asnamjólk var og lét hann bara fá mjólk í venjulegu glasi. Sindri Snær endurtók þá aftur ég vil ASNAMJÓLK. Ég bað þá Sindra Snæ að finna asnamjólkina og þá vildi hann jólaglasið sem er með mynd af asna : )
Þann 3. ap.2009 Þá var rosa gott veður og við sátum við matarborðið. Eins og venjulega þegar það er gott veður heyrist mjög oft ískur í dekkjum þar sem verið er að spóla. Þá segir Sindri VÁ MIKIÐ ROK ÚTI HEHEH
Sumarið 2009 fórum við í Þrastarskóg. Sindri benti mér á blómið Sóley en svo benti hann á litlu Sóleyjuna ; ) og sagði þetta er Sindri Snær.
26.janúar 2010
Ég sæki Sindra í leikskólann rétt fyrir 15. Em mótið í handbolta byrjaði kl:15. Ég var alveg að missa af byrjun leiksins og keyri þvi heldur of hratt. Sindri segir: mamma keyrir hratt, (svo lítur hann út um gluggann) ég sést enga löggu, löggan er að sækja einhvern sem meiddi sig 
febrúar 2010 ,Það er búið að snjóa mikið og í eitt skipti þurfti Eyþór að sækja okkur og fara með okkur á leikskólann og í vinnuna. Síðan byrjar að snjóa einn daginn og Sindri Snær segir,, jæja mamma nú þurfum við að hringja í Eyþór við komust ekki á bílnum okkar"
júní 2010 Við fórum á leikskólann Jötunnheimar og þar var búið að skemma flísarnar á leikskólanum. Þá tölum við um hvað þetta sé leiðinlegt og Sindri Snær segir ,,vondu strákarnir gerðu þetta. Þá segi ég ,,já en það geta líka verið vondar stelpur. Nei segir Sindri það eru ekki til vondar stelpur hehehe
10.águst 2010. Amma þú verður að koma með okkur til Akureyrar því bíllinn þinn keyrir svo hratt" þetta sagði Sindri við ömmu Ester og vildi meina að húsbíllinn kæmist miklu hraðar en skodinn hehe