* Viktor Nói & Daníel Darri *
 

Verdum bernskuna

1.LEYFUM BARNINU AÐ VERA BARN- "Er ég ekki stór? "(mig langar samt að vera barn)

2.ÞORUM AÐ AXLA ÁBYRGÐ SEM UPPALENDUR - "Ekki láta við mig eins og þú sért lika krakki"(ég vil að fullorðið fólk sé fullorðið)

3.VIÐURKENNUM BARNIÐ EINS OG ÞAÐ ER - "Þú veist ekki hvernig er að vera ég" (ég vil að þér finnist ég fín eins og ég er)

4.VERUM TIL STAÐAR FYRIR BARNIÐ - "Ég vil ekki vera ein í heiminum" (mér finnst gott að láta knúsa mig)

5.MUNUM AÐ RÆKTA OKKUR SJÁLF - "Ég vil ekki að þér líði illa" (mér líður vel þegar þér líður vel)

6.HLÍFUM BARNINU VIÐ ÓNAUÐSYNLEGU ÁREITI - "Ég er forvitin - en ég þar ekki að vita allt strax" (mér líður illa þegar ég sé og heyri of mikið)

7.SETJUM FORELDRAHLUTVERKIÐ Í FORGANG - "Ég vil vera mikilvægur í lífi þínu" (pabbi og mamma verða mikilvægur partur af mér alla ævi)

8.VEITUM FRELSI - EN SETJUM MÖRK -"Mér finnst fúlt ef enginn ræður" (ég verð óörugg ef allt er leyft og ekkert er bannað)

9.VERUM BARNINU MIKILVÆG -"Ég er alltaf að spyrja mig spurninga sem ég veit ekki hvernig á að svara"(mér finnst mikilvægt að vita hvernig á að svara þannig spurningum)

10.VERNDUM BERNSKUNA - "Við viljum að það sé gott að vera barn" (við vitum að Þú vilt það líka)