

Ekki spilla mér. Ég veit vel, að ég á ekki að fá allt, sem ég bið um, ég er bara að prófa þig Ekki hika við að vera ákveðin við mig, ég kýs það frekar, það veitir mér öryggi. Ekki leyfa mér að temja mér slæma ávana, ég verð að treysta á þig, að þú uppgötvir þá strax í byrjun. Ekki láta mig finnast ég smærri en ég er, þá hegða ég mér kjánalega til að sýna,hvað ég er stór. Ekki leiðrétta mig í áheyrn annarra, ég hlýði miklu frekar, ef þú talar við mig í einrúmi. Ekki láta mig líta á glappaskot mín sem þau væru glæpur, það myndi rugla mig svo í verðmætamati mínu. Ekki hlífa mér við afleiðingunum. Stundum þarf ég líka að læra af reynslunni, þó það sé ekki alltaf sársaukalaust. Ekki æsa þig upp, þótt ég segist "hata" þig. Það ert ekki þú, sem ég "hata", heldur það vald, sem þú hefur til að hindra mig. Ekki gera of mikið úr óþekktinni í mér, ég nota hana stundum til að ná athygli þinni. Ekki þrasa, þá 1æt ég bara sem ég heyri ekkert. Ekki gleyma því að ég get ekki tjáð mig eins og ég vildi, þess vegna er ég ekki alltaf sjálfum mér samkvæmur. Ekki gefa mér loforð, sem þú getur ekki haldið, ég yrði fyrir svo miklum vonbrigðum. Ekki treysta um of á heiðarleika minn. Það er auðvelt að hræða mig svo ég segi ósatt. Ekki vera sjálfri þér ósamkvæm, það ruglar mig alveg og ég þori ekki að treysta þér. Ekki gera lítið úr ótta mínum, hann er oft svo raunverulegur, en þú getur hjálpað mér að yfirvinna hann, ef þú reynir að skilja hann. Ekki daufheyrast, þegar ég spyr spurninga, þá hætti ég að spyrja þig og leita til annarra eftir svörum. Ekki gefa í skyn, að þú sért fullkomin og gallalaus. Það verður svo mikið áfall fyrir mig, þegar ég kemst að því að þú ert hvorugt. Ekki líta á það sem niðurlægingu að biðja mig afsökunar. Mér hitnar um hjartað, ef þú biðst fyrirgefningar í einlægni, og mér þykir enn vænna um þig en áður. Ekki gleyma, hversu hratt ég vex og þroskast. Það hlýtur að vera erfitt að fylgja mér eftir, en reyndu samt. Ekki gleyma hversu gaman mér þykir að finna upp á einhverju nýju og prófa mig áfram. Ég myndi ekkert þroskast, ef ég fengi það ekki, svo reyndu að umbera mig. Ekki gleyma, að án mikillar ástar og skilnings, þrífst ég ekki, en það veistu nú þegar, er það ekki? |