

Gaman ad sjá vídeóin úr sveitinni og af dýrunum ykkar á Egilstødum. Ég elska ad vera í fjósinu hérna í Færeyjum og skoda hestana, kindurnar og hundana. Og fín húfan ;)
Bestu kvedjur Leifur Júst
Elsku frændur Nói (Jói) og Darri gaman að skoða myndirnar af ykkur amma var að sina mér Ykkar frænkaÍda Maren.
Flottar myndir....þið eruð alveg gullfallegir elskurnar mínar ;-))
frábær myndbönd mjög gaman að sjá sætu gullmolana hvað þeir eru dugleigir,Takk
Flotta stráka hún amma á og er endalaust stolt af þeim.
Páskakveðja frá Norðurgarði.
Gaman að skoða myndirnar :) kvitttttttttt
kvÁsdís
Þú Darralingur flottur ert,
og farinn ert að skríða.
Stækkar og dafnar umtalsvert,
og ætlar sko ekki að bíða.
Með fallegu brúnu augun þín,
sem bræðir hjörtu allra.
Fallega bros þitt af andliti skín,
og alltaf ertu eitthvað að bralla.
Á fleigi ferð þú komin ert,
og glittir í tvær tennur.
Þú sefur lítið en frábær ert,
og eðalmjólk ljúflega rennur.
Þú góða og natna mömmu átt,
sem gefur þér mjólk að sjúga.
Alla með gleði þú tekur í sátt,
hún amma er ekki að ljúga.
Sæa amma.
Ég er ríkur maður kv af sjónum
Elsku Nói vona að askasleikir gefi þér eitthvað fallegt í skóinn í nótt.
Svo vona amma og afi að Darri sofi vel í nýja rúminu sínu.
Sjáumst á morgun leyndó I love you ;-))
Fallegar myndir af bræðrunum og öllum, sýnist lilli vera mjög duglegur og flottur í sturtunni skilaboð frá afa að hann lilli sél líkur sér með blá augu og rauðhærður.Maður er ríkur að eiga svona myndarlega fjölskyldu og vita að lífið gengur vel.Viktor minn þú er svo duglegur og góður við bróa þinn.knús
hæhæ, ég mundi allt í einu eftir því að þú værir með svona síðu fyrir strákana þína og ákvað að kíkja. yndislegar myndirnar af litla kút, hann er bara flottur! ég er ekki frá því að hann sé svolítið líkur bróður sínum! :) vona að þið hafið það ótrúlega gott!! knús og koss!
yndislegar myndir, skal reyna að taka mig saman varðandi sumarmyndirnar ;)
og verð nú að segja að þeir bræður eru nú ósköp líkir mér... þessi brúnu augu og slétta húð!
hafið það sem allra allra best og passið hvort annað.
trilljon kossar
D
p.s. pabbi heitir Sævar en ekki Sæþór ;)
hæhæ
Gaman að skoða myndirnar af litla prins og stóra bró þið eruð aldeilis rík :)
Glæsilegar myndir af ykkur bræðrum - til hamingju með lilla bro Viktor Nói :)
Langamma Gunna var í heimsókn í B4 og við kíkti á myndirnar af ykkur :)
Bestu kveðjur til allra.
Tóta
Flott fjölskylda ég er ríkur maður.
Flottar myndirnar af thér sæti skólastrákur. Til hamingju med litla bródur, nú verdur gaman hjá thér STÓRA bródur ad hjálpa mømmu og pabba med hann :)
Innilega til hamingju með nýja prinsinn ykkar... hlakka til að sjá myndir af honum :)
kv Ásdís bumbulína sem hlakkar svo til að fá sinn prins eftir nokkrar vikur :)
Fullkomin drengur hann Viktor Nói sem hringdi í ömmu og afa kl 8, 23 sept og sagði barnið kemur í dag ólýsanleg spenna myndaðist,ég sinti morgunverkunum og beið en ekki lengi fékk ég sms kl að ganga ellefu drengur fæddur kl 9,55 gleðin braust fram tár runnu.Elsku Viktor Nói Innilega til hamingju með bróður þinn,nú ert þú stóri bróðir og það er heilmikið hlutverk fyrir þig.
Kem í heimsókn á fimmtudaginn kannski með ??????
Nú sex ára þú orðinn ert,
og byrjar brátt í skóla.
Allt það sem þú villt, það getur þú gert,
en í sumar æfir þú þig að hjóla.
Að lesa og skrifa þér gengur vel,
engu er því að kvíða.
Og sund þitt minnir á stóran sel,
en leiðinlegt þér þykir að bíða.
Í sumar við gerum eitthvað saman,
bíó,útilegu og í sund.
Við saman skulum hafa af því gaman,
það gefur okkur góða lund.
Kv Sæa amma.
Innilega til hamingju með afmælið flotti strákurinn okkar.
Erum endalaust stolt af þér..Ert gullmolinn í lífinu okkar:*
Takk fyrir tímann í sveitinni..kem heim eftir 7 daga..imss u all
Elsku ömmulingur......flottar myndir af þér og samferðarfólkinu þínu, takk fyrir að leifa okkur að fylgjast með þér vaxa úr grasi... þú ert algjör snillingur og dansar svo flott bara alveg eins og D-byber..;-))
Hæ hæ ömmustrákur flottur ertu og til hamingju með útskriftina á Gimli peysan er rosa falleg hlakka til að sjá þig kv úr sveitinni
HæHæ Viktor , viljum bara skella einnu skveðju hingað inn :D
Sagan af Pabba þínum þegar hann hjólaði í Eg,hann var 11 12 ára ég sagði honum að við ætluðum að skreppa í Eg sumarkvöld í júni hvort hann vildi koma með ,nei sagði Maggi ég vil vera heima ,nú skrítið fanst mömmu en svo förum við í kaffi hjá Guðfinnu á Eg ,viti menn eftir smá stund byrtist Maggi á nýja hjólinu sínu,hann var nefnilega búin að ákveða að hjóla en vildi ekki seigja mömmu það,hann fékk far með hjólið í bílnum heim í Tókastaði,var nefnilega dauð þreyttur prakkarinn
Elsku Viktor minn nú erum við búin að eiga frábærann tíma saman í sveitinn okkar í þrjá heila daga síðast í sept .Þú ferð heim á morgunn mánudag 27 sept ,eg veit að alltaf er gott að koma heim.Þúsund takk elsku ömmustrákur þú ert svo góður og duglegur á hesbaki og í öllu
Takk fyrir frábæran dag elsku kallinn hennar ömmu.
Leyndó I love you.
Gaman að skoða myndirnar,Viktor minn takk fyrir heimsóknina og hvað þú stóðst þig vel í öllu í sveitinni.,ekska þig amma í sveitinni
Sæll Viktor minn ,Lóan er komin að kveða burt snjóinn,í sveitinni hjá ömmu ,eg sá tvö lömb heima hjá Skóblu svini í dag svo við höfum nó að gera þegar þú kemur í heimsókn hlæum ,dönsum ,reiðtúr moka sk og mart mart fleira ,elska þig amma Anna