Sigrún Elísabet og Vilhjálmur Einar
Sigrún Elísabet og Vilhjálmur Einar
 
 
 

Vefdagbók

 

Afmælisbarnið

Þá er drengurinn orðinn 2 ára, hann var alveg að fatta conceptið, pakkana og kökurnar, og hafði mjög gaman af. Hann var samt ekki alveg jafn spenntur yfir pökkunum og afarnir og ömmurnar sem ráku á eftir honum í pakkaupptökunni og fannst drengurinn taka sér óþarflega mikinn tíma á milli pakka. Hann fékk ljónaköku, það var bara tvennt sem kom til greina, ljóna eða krókódíla, það er málið þessa dagana. Svo var hann svo heppinn að fá trékrókódíl til að draga í spotta á eftir sér sem gerir mjög mikið og skemmtilegt hljóð, frá Kristínu frænku sinni. Hann er mjög ánægður með hann.

Svo er það helst í fréttum að hann byrjar á Öldukoti e. tvær vikur. Sigrún er mjög spennt að fá hann til sín :) 

Það eru komnar inn myndir frá feb og mars.

15. March 2012 - 20:46

 
 

Jólamyndir

Það eru komnar inn myndir frá nóvember og desember í myndaalbúmið.

25. January 2012 - 22:17

 
 

Haustar...

Myndir frá restinni af sumrinu og upphafi haustsins eru komnar inn í myndaalbúmið, líka tvö ný myndbönd af litlu snillingunum. Fyrir voru náttúrulega komnar myndir og myndaband frá Seattle ferðinni okkar í sumar sem var svo góð ferð.

Nú er Sigrún farin að hlakka til jólanna og spyr reglulega hvenær jólin koma. Einn morgun um daginn byrjaði hún á að kíkja í gluggakistuna þegar hún opnaði augun til að athuga hvort það væri e-ð komið í hana.

Vilhjálmur bætir við sig nýju orði í hverri viku. Hann er m.a. farinn að segja íún (Sigrún) og vínini (Vilhjálmur).

7. November 2011 - 22:08

 
 

Vorið

Það eru komnar inn myndir frá apríl og maí, meðal annars frá 3 ára afmælinu hennar Sigrúnar Elísabetar. Við settum líka inn tvö skemmtileg myndbönd, myndband segir meira en margar myndir um hversu dásamlegir snillingar þessi börn eru :)

19. June 2011 - 20:55

 
 

Einsi eins árs!

Nú á litli snúðurinn afmæli í dag, orðinn 1 árs og foreldrarnir geta ekki með nokkru móti skilið hvernig þetta ár gat liðið svona hratt.

Vilhjálmur Einar er mjög duglegur og mjög skemmtilegur. Hann er mjög duglegur að borða og þyngist vel. Hann er farinn að labba um allt og finnst rosalega gaman í eltingarleik, þá "hleypur" hann af stað og lítur skellihlæjandi tilbaka og vill að maður elti hann. Hann spilar fótbolta, sparkar í bolta og labbar á eftir honum og endurtekur, ss. rekur boltann um alla íbúð, og getur dundað sér við þetta lengi. Hann grúskar mikið sjálfur, prílar uppá borð og les bækur (maður sér mikið betur á bækurnar ef maður er uppá borðinu), leikur með bíla og burrar, og er farinn að kubba saman tveim kubbum.

Við fengum að vita í dag að Vilhjálmur Einar má byrja í aðlögun á 101 leikskóla eftir 2 vikur, sem er mikill léttir því við vorum farin að hafa áhyggjur af því að hann fengi ekki vistun strax og Pétur er búinn í feðraorlofinu sínu 1. apríl. 101 leikskóli er ungbarnaleikskólinn sem Sigrún Elísabet var á og er hérna í götunni okkar, rétt hjá, svo þetta gæti ekki verið betra :)

Nýjar myndir komnar inn á myndasíðuna!

1. March 2011 - 20:57

 
 

Haustmyndir

Það eru komnar inn myndir frá haustinu í myndaalbúmið.

4. December 2010 - 14:50

 
 

Sumarfríið á enda

Nú erum við komin heim eftir mikið flakk í sumarfríinu. Erum búin að fara til Eyja, vera mikið austur í Múla og fyrir norðan, og vorum líka í eina viku í sumarbústað í Eyjafirðinum. Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið úr sumarfríinu.

Vilhjálmur Einar vex og dafnar, í 5 mánaða skoðuninni f. tveim vikum var hann 67 cm og 7,3 kg. Það er jafn mikið (bæði í þyngd og lengd) og Sigrún var í sinni 8 mánaða skoðun! Enda er hann mjög duglegur að drekka, og fær enn brjóstamjólkina eingöngu. Sigrún hins vegar var hætt á brjósti 5 mánaða, af sjálfsdáðum. Þau eru mjög ólík systkinin.

Sigrún Elísabet á eftir eina viku af sínu langa og góða sumarfríi og byrjar í aðlögun á Öldukoti næsta mánudag. Hún er bara mjög spennt yfir því að vera að fara á nýjan leikskóla. Það mun líka örugglega hjálpa mikið til að vita af Gunnari Magnúsi vini hennar á stóru krakka deildinni :)

16. August 2010 - 23:30

 
 

SE 2 ára og VE 2 mánaða

Nú er stóra stelpan orðin 2 ára og það var haldin vegleg afmælisveisla um síðustu helgi, með voffaköku og vöfflum m. sultu og rjóma, að beiðni afmælisbarnsins. Þegar hún var spurð hvað ætti að vera í veislunni sagði hún vlavla og sutta og ómi. Henni fannst gríðarlega gaman í veislunni og er mjög ánægð með allar fínu gjafirnar sem hún fékk.

Vilhjálmur Einar heldur áfram að stækka vel, í 2 mánaða skoðuninni var hann búinn að þyngjast um 2 kg og lengjast um 10 cm, hvorki meira né minna, enda erum við sífellt að taka frá föt sem eru orðin of lítil á hann, og móðirin vansvefta þar sem hann drekkur á 2-3 tíma fresti ALLAN sólarhringinn.

Sigrún Elísabet er mikið úti þessa dagana í leikskólanum og eftir hann, mikið á róló og það er gaman, hún er farin að sitja sjálf í rólunni. Orðið "sjálf" (sjáff) er einmitt mikið notað, sjálfstæðisbaráttan er hafin hjá þessum litla orkubolta. Hún er líka mikil ráðskona og segir hiklaust "nei mamma suss" ef henni finnst móðirin fara yfir strikið í uppeldinu, svo heldur hún fingri á lofti og segir "einu sinni enn".

13. May 2010 - 14:48

 
 

Velkomin á nýja síðu

Það eru nýjar myndir í myndaalbúminu...

4. May 2010 - 20:37

 
 

Vilhjálmur Einar

Í dag var indæl og falleg skírnarathöfn hjá okkur og litli bróðir fékk nafnið Vilhjálmur Einar. Vilhjálmur í höfuðið á afa sínum og Einar var valið þar sem það er algengt í öllum ættgreinunum og sérstaklega í fjölskyldu langömmu Ólu.

Skírnin fór fram í Dómkirkjunni og afi Kristján skírði og hélt á drengnum og afarnir báðir voru skírnarvottar. Gunnhildur spilaði tvö lög eftir langafa Pétur á harmonikkuna. Svo var kaffiveisla heima á Vesturgötunni á eftir með góðum gestum.

Vilhjálmur Einar stækkar og dafnar og það gengur allt vel með hann, fyrir utan að hann virðist vera að byrja að fá magakveisu, þeim fjölgar smátt og smátt grátkvöldunum hjá honum. Stóra systir er mjög góð við hann, dugleg að kyssa hann og knúsa og finnst mjög gaman að fá að klæða hann í og úr sokkum, rétt eins og dúkkunum sínum :)

PS. Það væri mjög gaman ef fólk sem kíkir hérna á síðuna myndi kvitta í gestabókina eða commenta reglulega...

5. April 2010 - 22:50