Sigrún Elísabet og Vilhjálmur Einar
Sigrún Elísabet og Vilhjálmur Einar
 
 
 

Vilhjálmur Einar

Í dag var indæl og falleg skírnarathöfn hjá okkur og litli bróðir fékk nafnið Vilhjálmur Einar. Vilhjálmur í höfuðið á afa sínum og Einar var valið þar sem það er algengt í öllum ættgreinunum og sérstaklega í fjölskyldu langömmu Ólu.

Skírnin fór fram í Dómkirkjunni og afi Kristján skírði og hélt á drengnum og afarnir báðir voru skírnarvottar. Gunnhildur spilaði tvö lög eftir langafa Pétur á harmonikkuna. Svo var kaffiveisla heima á Vesturgötunni á eftir með góðum gestum.

Vilhjálmur Einar stækkar og dafnar og það gengur allt vel með hann, fyrir utan að hann virðist vera að byrja að fá magakveisu, þeim fjölgar smátt og smátt grátkvöldunum hjá honum. Stóra systir er mjög góð við hann, dugleg að kyssa hann og knúsa og finnst mjög gaman að fá að klæða hann í og úr sokkum, rétt eins og dúkkunum sínum :)

PS. Það væri mjög gaman ef fólk sem kíkir hérna á síðuna myndi kvitta í gestabókina eða commenta reglulega...

5. April 2010 - 22:50



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti