
Þá er drengurinn orðinn 2 ára, hann var alveg að fatta conceptið, pakkana og kökurnar, og hafði mjög gaman af. Hann var samt ekki alveg jafn spenntur yfir pökkunum og afarnir og ömmurnar sem ráku á eftir honum í pakkaupptökunni og fannst drengurinn taka sér óþarflega mikinn tíma á milli pakka. Hann fékk ljónaköku, það var bara tvennt sem kom til greina, ljóna eða krókódíla, það er málið þessa dagana. Svo var hann svo heppinn að fá trékrókódíl til að draga í spotta á eftir sér sem gerir mjög mikið og skemmtilegt hljóð, frá Kristínu frænku sinni. Hann er mjög ánægður með hann.
Svo er það helst í fréttum að hann byrjar á Öldukoti e. tvær vikur. Sigrún er mjög spennt að fá hann til sín :)
Það eru komnar inn myndir frá feb og mars.
Skrifa athugasemd