
Nú á litli snúðurinn afmæli í dag, orðinn 1 árs og foreldrarnir geta ekki með nokkru móti skilið hvernig þetta ár gat liðið svona hratt.
Vilhjálmur Einar er mjög duglegur og mjög skemmtilegur. Hann er mjög duglegur að borða og þyngist vel. Hann er farinn að labba um allt og finnst rosalega gaman í eltingarleik, þá "hleypur" hann af stað og lítur skellihlæjandi tilbaka og vill að maður elti hann. Hann spilar fótbolta, sparkar í bolta og labbar á eftir honum og endurtekur, ss. rekur boltann um alla íbúð, og getur dundað sér við þetta lengi. Hann grúskar mikið sjálfur, prílar uppá borð og les bækur (maður sér mikið betur á bækurnar ef maður er uppá borðinu), leikur með bíla og burrar, og er farinn að kubba saman tveim kubbum.
Við fengum að vita í dag að Vilhjálmur Einar má byrja í aðlögun á 101 leikskóla eftir 2 vikur, sem er mikill léttir því við vorum farin að hafa áhyggjur af því að hann fengi ekki vistun strax og Pétur er búinn í feðraorlofinu sínu 1. apríl. 101 leikskóli er ungbarnaleikskólinn sem Sigrún Elísabet var á og er hérna í götunni okkar, rétt hjá, svo þetta gæti ekki verið betra :)
Nýjar myndir komnar inn á myndasíðuna!
Til hamingju meš 1 įrs afmęliš Vilhjįlmur Einar :) Gaman aš lesa um žig duglegi og flotti strįkur og frįbęrt aš heyra meš leikskólaplįssiš!