
Vá hvað það er gaman að skoða þessa síðu loksins almennilega. Takk elsku mamma fyrir þessa síðu <3
Bara að kasta kveðju á ykkur :) Sjáumst nú vonandi bráðum
nýjar myndir takk...
flottar myndir að bræðrunum í seinusta jólastússinu- gleðileg jól
nýjar myndir takk
hæhæ og ég sem ætlaði að fara rukka um nýjar myndir og þá eru bara þessar fínustu myndir komnar ;0)
Var e-r sem þorði ekki að vaða haha...
alltaf gaman að sjá nýjar myndir og þá er bara að bíða eftir næsta skammti
knús og kossar frá dk
vá flottar myndir, hefðum sko alveg viljað vera í þessari afmælisveislu, rosa girnilegt allt, eins og alltaf. Flottur á hjólinu, verður gaman hjá ykkur að fara í hjólatúra um hverfið.
Svo munar ekki um svefnvenjurnar hehe...
knús og kossar á ykkur frá dk
Elsku Veigar flotti frændi, við óskum þér innilega til hamingju með 6 ára afmælið þitt. Vonum það hafi verið gaman í gær í afmælinu og vildum að við hefðum getað verið með. Það ætti svo að berast pakki til þín á næstu dögum :0)
bestu kveðjur frá dk
hæhæ fer ekki að koma tími á nýjar myndir, kannski the desperate housewife (a.k.a Rúnar )geti dundað sér við það meðan frúin er á gosvaktinni hehe
Kvitt kvitt frá mér
Fyrri færsla fór aðeins á undan mér :) Glæsileg nýja síðan, sé ykkur kannski í næstu viku þegar ég verð á ferðinni
Flottar myndir af flottum strák...og öndum, og kalli með skalla og stelpu með flotta húfu hehe. Hlakka til að sjá ykkur :o)
jæja frændi nú er síðan þín orðin aldeilis flott og væri enn fínni ef kæmu inn nýjar myndir haha...Nú er sko ekki langt þangað til við hittumst.Litla frænka er amk mjög spennt að hitta flotta frænda sinn.
bið að heilsa í bili
jæja hvernig væri að skella inn nokkrum hversdagsmyndum fyrir frænkurnar í dk ? :0)
loksins loksins, svaka flottar myndir. hefur verið rosa kósý hjá ykkur um hátíðirnar. Hlökkum til að kíkja í heimsókn í mars og á meðan bíðum við spennt eftir næsta myndaskammti :0) vonum að þið hafið það gott
jæja 1.janúar heimta ég fullt af jólamyndum inn, takk fyrir og gleðilegt ár :0)
jæja þið hljótið nú að vera búin að taka e-r jólaundirbúningsmyndir eða e-ð hehe,,,
flott að sjá síðuna í jólabúningi, var að vonast eftir fleiri nýjum myndum en það hlýtur að fara detta inn hehe... :0)
Rosa flottar myndir, það er aldeilis hvað allir eru duglegir á þessu heimili, bara búið að baka og skreyta og allt. Sé ykkur vonandi bráðlega bestu kveðjur úr Kefló
Svaka flottur íþróttaálfurinn í íþróttaskólanum. Hvað þá mamman í köðlunum og pabbinn í stuði í svörtu ökklasokkunum sínum haha...
Ekki svo amalegt að fá svona litlan hjálpar jólasvein í baksturinn verst að hinn stóri klaufabárðarjólasveinninn gat ekki hjálpað hehe...
bestu kveðjur til ykkur og verið áfram svona dugleg að setja inn myndir
Hæ hæ
Flottar nýju myndirnar. Íbúðin er mjög fín, hlakka til að koma í heimsókn.
Bestu kveðjur að vestan :)
loksins að það komu myndir, og svona líka fínar. Flott ibúðin, hlakka til að koma í heimsókn á næsta ári. Bíð spennt eftir næsta myndaskammti
hæhæ fara ekki að koma inn myndir af nýju íbúðinni fyrir þá sem eru lengra í burtu :0)
knús á ykkur
svaka flottar myndir og líka lúxus að spiderman sé að passa bílinn fyrir okkur. Hafið það gott
Elsku Veigar, innilega til hamingju með 5 ára afmælið þitt. knús og kossar frá dk
jeyjj þetta gátu foreldrarnir gert þrátt fyrir harðsperrur alls staðar haha rosa fínar myndir af flottur bræðrunum. Hilmar svaka flottur í þjóðbúningnum ;0)
er myndavélin nokkuð biluð haha ;0)
hæhæ og gleðilegt árið. Takk fyrir þessar flottu myndir, rosa gaman að sjá nýjar myndir. Vonum að þið hafið það sem allra best....knús og kossar úr dk
Hej Karitas med familje
Jeg vil hermed ønske jer alle på Island en rigtig god jul og et godt nytår. Karitas du må hilse din familje. I må have det godt i det nye år.
Vinarliga
Diana, Høgni, Signar og Sólvá