

Halló sætu systkin ;) Ég á líka þessa svaðalega flottu mynd af foreldrum ykkar í brúðkaupINU!!!!! Verð að muna að koma henni til ykkar ;) Miklu flottari en einhver séð og heyrt mynd, fussssss.........
HæHæ Benna... ég var að vinna á laugardag en Siggi var í Þjórsárdal með krílin í heimsókn hjá Völla og Þóru.
Þú reynir aftur síðar :o)
Halló. Ætlaði að koma í heimsókn í dag og enginn var heima. Vonast til að sjá ykkur fljótlega. Kveðja
Halló stóru kríli. Þá eru þið komin heim úr löngu sumarfríi eins og ömmusystir. Hún fór í 10 daga til Skotlands og 12 daga til Tálknafjarðar og er að koma heim í dag. Mikið held ég að það hafi verið gaman hjá ykkur í sumarafríinu fyrir norðan. Ég verð að koma að sjá ykkur mjög fljótlega það er orðið svo langt síðan ég hef séð ykkur. Bið að heilsa ykkur, og mömmu ykkar og pabba. Takk fyrir nýja lykilorðið.
Hæ við ætluðum bara að kíkja hvort væru komnar nýjar myndir af ykkur systkinunum en komumst svo ekkert inn. Væri gott að fá lykilorðið... Annars get ég kannski bara fengið það frá mömmu ykkar í vinnunni á morgun...það er ef ég man eftir því að spyrja.
Vonandi gengur vel á nýja leikskólanum, við verðum svo að fara að hittast öll svo þið Viktoría getið leikið svolítið saman...
Kveðja Erna og Viktoría
Hæ hæ! Við vorum að koma til byggða og ætluðum að kíkja á ykkur en erum greinilega með úr sér gengið lykilorð. Ættum kannski að fara að rölta til ykkar og sjá ykkur í stað þess að treysta alltaf á reglulega uppfærða heimasíðu!!!!!! En þið mættuð samt alveg senda okkur nýtt lykilorð, það er svo gaman að fylgjast með ykkur. Hafið það gott. Svanhildur og Ástþór Örn frændi
Hæ hæ! Okkur langaði að skoða nýjar myndir af ykkur en gamla lykilorðið virkaði ekki alveg svo að gaman væri að fá sent það nýja.
Allt gott að frétta af okkur, erum að flytja heim til Íslands í lok ágúst og þá getum við vonandi farið að hittast.
Kossar og knús frá London
Hæ hæ.
Langaði að kíkja á síðuna og athuga hvort það væru komnar einhverjar fréttir af ykkur - tala nú ekki um nýjar myndir.... En nei nei, þá er bara lok lok og læs og nýtt lykilorð! Þætti vænt um að fá það uppgefið ;o) Vona að þið hafið það gott og mikið væri nú gaman að fara að hittast!!!
Kær kveðja,
Guðrún Óla.
Hæ hæ þið eruð allgjörar dúllur,varð að kvitta fyrir innlitið bíðum spennt eftir nýjum myndum kveðja úr keflavíkinni
Bogga og fjölsk.
Við værum alveg til í að hafa ykkur heima þessa vikuna, en bíðum bara spennt ;)
Hæ hæ
Bara að kvitta fyrir heimsóknina..
Hafið það ogggggisla gott fyrir norðan :-)
kv. Íris og Anton Oddur
Við hlökkum til að sjá ykkur á morgun í bústaðnum, vonandi verða allir ferskir eftir bílferðina.... Hressum þá alla við og förum í pottinn !!!!!!!!!!!
Halló mömmustelpa og Bubba-byggir strákur. Hlakka til að sjá herbergið hans Þorláks. Kem í heimsókn áður enn við Ingibjörg amma förum á Vestfirði. Kveðja
Hæ elsku frændi og frænka!
Við Margrét vorum að skoða myndirnar frá afmælinu. Við vorum rosa hissa að sjá hvað þið eruð orðin stór! Hlökkum til að hitta ykkur í júlí ! Bestu kveðjur til mömmu og pabba, og til hamingju með að vera orðin tveggja ára.
Hej þið ..
takk æðislega fyrir komuna í skírnina, það var svo æðislegt að sjá ykkur, eruð svo miklar dúllur. Hlakka svo til að sjá ykkur aftur eftir tæpan mánuð. JIbbí.
Og já ekki hafa hátt ef það eru myndir af mér sofandi, ég gæti vaknað :D
Kveðja frá Danaveldi
Jóhanna Sigríður og fjölskyldan
Hæ hæ, vorum bara að kíkja á nýju myndirnar - voða flottar eins og alltaf, sérstaklega þegar það birtast myndir af okkur ;-) híhí..
Við erum föst fyrir norðan í snjóstormi á sumardekkjunum - ekki alveg veðrið sem við pöntuðum.. hmmmm.... enda 23. maí !!!
kv. Íris og Anton Oddur að sveitalubbast
Síðbúin afmæliskveðja en samt...til hamingju með afmælið bæði tvö.Kveðja frá okkur öllum
Ég er að skoða síðuna ykkar hún er mjög flott.
hún er meira en flott hún er frábæ blss blss var bara kíkja
Flottar nýju myndirnar, flottastar hlaupabólu- og afmæliskórónumyndirnar. Nýjar myndir væntanlegar hjá okkur - sjáumst, Þorgerður "móða"
Elsku krúsidúllur.Takk fyrir síðast.Var að skoða allar flottu myndirnar þær eru ekkert smá flottar.Munur að vera nettengd.Kveðja frá afa Einari.
VVVVV'A'A'A'A'A'A hvað þetta eru margar og flottar myndir ;) Sérstaklega þó hlaupabólumyndir,skælu og pabbaknús :) Þorlákur er svakalega líkur pabba sínum á afmælisdaginn,þessi með könnuna,ekki slæmt það!! Vonandi fáum við gott veður í vikunni og getum hist í sundi ;)
Ja.... nú er aldeilis gaman hjá ömmusystur. Hún situr við tölvuna og skoðar og skoðar allar myndirnar. Ömmusystir gleymir alveg að fara til hænsnanna og ath. hvort einhver egg séu komin, því hún er að skoða allar fallegu myndirnir af ykkur stóru krílin mín. Ömmusystir kemur í borgina á miðvikudaginn og ég sé ykkur vonandi á laugardaginn í skírnaveislunni hjá litlu frænku í Danmörku. Kveðja.
Laumaðist svona rétt svo inn í oggu pínu smá stund til að kíkja á allar nýju myndirnar :-) (á sko að vera að skrifa ritgerð)....
Slefði þegar ég sá kræsingarnar á afmælishlaðborðinu, bölva Jónasi fyrir að hafa ekki tekið nesti með sér heim ;-)
knúúús, Íris
HæHæ.... ég skal lofa (eða reyna) að setja inn myndir um helgina en þá þarf Malla frænka að koma myndunum til mín. Við tókum myndir um morguninn en svo varð myndavélin batterílaus og þá reddaði Malla þessu!!!
kv
Kristín
Halló litlu(stóru) krílin. Ég er alveg sammála Möllu frænda að þið þurfið að byðja mömmu og pabba að setja afmælismyndir. Ég er búin að bíða spennt frá 6 mai eftir myndum úr veislunni. Hlakka til að sjá ykkur. Kveðja
Endilega grenjið í settinu að setja inn afmælismyndir ;)
Kæru frænka og frændi.
Innilegar hamingjuóskir með afmælið um daginn, var næstum búin að muna eftir að skrifa á réttum degi.
Vonum að þið hafið það gott og hlökkum til að sjá ykkur í sumar.
Bestu kveðjur til ykkar og foreldranna líka.
Fríða
Alltof sein, en við óskum tvíburunum til hamingju með að vera orðin 2 ára. Gaman að skoða myndirnar. Og enn meira gaman að geta bráðum séð ykkur í "nærmynd". Meiningin var að senda tölvumynd á afmælinu, en liðið mitt hafði engan tíma. Gamla frænka kann ekki slíkt. Bestu kveðjur til stoltu foreldranna.Ádda.
Hæ hæ sætu, gaman að sjá síðuna ykkar og til hamingju með 2ja ára afmælið vá þið stækkið fljótt kærar kveðjur Bogga og co;)
Elsku Ingibjörg og Þorlákur! Innilega til hamingju með afmælið í gær :o) Við pínu sein...
Vona að þið hafið átt góðan afmælisdag! Knús, Ástþór Örn og co