
Elsku Telma Rós okkar innilega til hamingju með að vera orðin 7 ára hlökkum til að sjá þig....
Til hamingju með 7 ára afmælð þitt... man svo vel eftir því þegar þú fæddist. Hafðu það gott í afmælinu þínu, vonandi færðu fullt af pökkum og kökum
knús Lilja og viðhengin
Elsku Telma Rós, innilega til hamingju með 7 ára afmælið þitt:-) Orðin svona stór og falleg stelpa! Man svo vel eftir því þegar pabbi þinn hringdi í mig og sagði mér að þú værir fædd í þennan yndislega heim! Hafðu það nú svakalega gott á afmælisdaginn og knús til ykkar allra:-)
Sólveig & fjölsk Hafnafirði
Halló halló Telma Rós og til hamingju með pabba gamla thí hí:-) Takk kærlega fyrir samveruna um helgina, skemmtum okkur mjög vel! Setti inn myndir á síðuna hjá stelpunum frá helginni;-)
Bið að heilsa m&p.
kv Sólveig & co.
Hæ Telma kveðja María Rós :)
Æðislegar myndirnar í maí albúminu (eins og allar hinar) við auðvitað stálum myndinni af Hemma göngugarpi (töff mynd) og settum hana í albúmið hjá okkur bara að láta vita og takk fyrir síðast, nú styttist í afmælin ykkar mæðgna og við verðum að fara að safna fyrir gjöfum :) biðjum að heilsa ma og pa kveðja Hemmi frændi og Sigrún ( Hemmi liggur reyndar veikur inni í rúmi en hann biður örugglega að heilsa)
Halló halló Telma Rós:-) Rosalega eru flottar myndirnar af þér og hvalnum!!! Svo verðum við nú að fara saman í útilegu í sumar, við systur elskum að vera í útilegu og sofa í tjaldvagninum:-)
bk frá Hjallabrautinni.
Elín Helena & Guðmunda Marta
p.s. gamla settið sendir líka kveðjur.
Hæ hæ Telma ég frétti að þú værir að drekka ógeðisdrykk eins og ég og Sveppi. Ég hélt nú bara að strákar gætu þetta en þú ert greinilega svakalega cool. Bæjó Bjarni Darri
Hæ hæ Telma, við vorkennum þér mikið að vera með gubbupest. Okkur finnst það ógeð. Hlökkum til að fá þig í heimsókn aftur og fara í fimleikabolina:)
Hæhæ Telma Rós !
Ég var að skoða myndirnar og sá hvað þú varst rosalega dugleg í sprautunni, vá ekkert smá ! Ég er ekki nærri því eins dugleg og þú þegar ég fer ! Það var líka gaman að sjá skólastofuna þína :)
Hlakka til að sjá þig næst :)
Vá hvað þú ert dugleg Telma mín að fá sprauturnar, mamma þín grettir sig meira en þú :) Flott herbergið hjá næsta meðlim Heinabergs fjölskyldunnar
Rosalega varstu dugleg í sprautunni, Hemmi fór sko að gráta þegar hann fór en ekki ég :) ha ha bið að heilsa ma og pa og hittumst á laugardaginn hlökkum til að sjá þig kveðja Hemmi grenjuskjóða og Sigrún
Halló halló Telma Rós:-) Rosalega varstu nú duglega að láta sprauta þig engin smá hetja:-) Mútta tútta og pabbi voru nú líka pínu dugleg!
Gaman að fylgjast með ykkur:-)
kv úr Hafnó
Sólveig & fjölsk.
Hæ Telma. Rosalega varstu dugleg í sprutunni, ég var að skoða myndirnar af því. Bið að heilsa mömmu gömlu og pabba gamla.
Rosa flottar myndir, svakalega varstu dugleg í sprautunum bara vá vá vá þú ert sko hetja. Knús Vala og co
Hæ hæ og takk fyrir okkur um helgina. Frábært að þú komst á fimleikakeppnina.... Vonandi kemur þú aftur seinna á svona mót hjá mér
Kveðja Aníta Sif
Hæ hæ og takk fyrir aðgagnsorðið
Mikið svakalega ertu flott stelpa Telma Rós og litla systkinið þitt verður sko mikið heppið að eiga svona sæta systir.
Við hlökkum til að fylgjast með ferðalaginu stóra;-)
Ég er líka að bíða eftir systkini en það verður sko langt í það því við erum hópur númer 22 , en mamma segir að það sé allt í lagi að bíða svo lengi því hún hefur mig núna.
Kveðja Tanya Elisabeth (hópi 10) og mamma
Halló Telma Rós.
Rosalega er heimasíðan þín flott. Blár er líka uppáhaldslitur Birtu, skemmtileg pylsumyndin af þér... Embla hló mikið af henni og fór svo beint inn í herbergi og prófaði líka.
Knús
Særún Embla og Sólon Breki
pssst mamma, pabbi og Birta biðja líka að heilsa
Kæra fjölskylda.
Takk kærlega fyrir aðganginn að heimasíðunni. Frábært að fá að fylgjast með ykkur. Ég bíð spennt eftir því að fylgjast með ferðalaginu ykkar til Kína, get eiginlega ekki beðið fyrir ykkar hönd. En líkurnar á því að við verðum í Kólumbíu á sama tíma eru því miður orðnar litlar sem engar....
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Jana og Atli sem bíða eftir fréttum frá Kólumbíu.
Hæ Telma,
Frábær heimasíða hjá þér! Gaman að skoða myndir:) Fyndin myndin af þér og mömmu þinni undir sæng og svo liggur Snotra ofan á ykkur :-)
Kveðja,
Stína
Hæ skvísa rosalega fínar myndirnar af þér, við þurfum endilega að fara að hittast og borða meira með prjónum fyrir Kínaferðina, skyldi vera hægt að borða súpu með prjónum? :) sjáumst fljótt kveðja frá Hemma frænda og Sigrúnu
Hæ stóra frænka. Það er gaman að sjá myndirnar af þér. Ég hlakka mikið til að sjá þig þegar ég er kominn heim. Þá get ég líka komið í heimsókn til þín, eða þú komið í heimsókn til mín. Við eigum líka eftir að hittast hjá ömmu í Kópavogi.
kveðja Brynjar Þór frændi
Sæl sæta mín! Svakalega ertu dugleg stórasystir að hjálpa til!!
knús til múttu og pabba
Linda
Hæ skólastelpa, bara að kvitta fyrir komuna,
kveðja að vestan
Unnur
Æðislegar myndir af ykkur svo fín og sæt
Haldið áfram að hafa það rosalega gott, hlökkum til að hitta ykkur á nýju ári.
Áramótakveðja Vala og co
Hæ hæ og gleðilega hátíð!
Ótrúlega eru þið sæt lítil fjölskylda,flottar myndirnar af ykkur, nýju meðlimirnir tveir eru algjörar dúllur.
hafið það sem allra best yfir áramótin og gleðilegt nýtt ár, sjáumst á því nýja.
kveðja Jóhanna og co...
Kæra fjölskylda
Nú nýtt ár gengur í garð
Við minnumst þess liðna ,
Sem dásamlegt var
Og tíminn leið hratt
Jólakveðju nú við sendum
ykkur um leið og við óskum
ykkur gleði og friðar á nýju ári
Kv. Lilja, Krissi, Birta Sif, Særún Embla og Sólon Breki
HÆ, flottar myndir hjá þér skvísa, kveðjur í höfnina:)