Davìðsson & dòttir
 

Sjálfsöryggi

Sjálfsöryggi


Leiðir til að efla sjálfsöryggi barna

Það er er mikil ábyrgð að ala upp barn með góða sjálfsmynd og sjálfsöryggið í lagi. Það eru einmitt þessi atriði sem leggja grunninn að framtíðinni þegar barnið leggur af stað út í heiminn.

Sjáfsöryggi sprettur af þeirri vitneskju að við séum velmetnir og hæfir einstaklingar og að framlag okkar sé metið að verðleikum. Eins og foreldrar vita þá er sjálfsöryggið breytilegt. Stundum erum við ánægð með okkur og stundum ekki. Það sem við erum oft í raun að kenna börnunum okkar eru eiginleikar eins og þrautseigja. Markmið okkar sem foreldra er að tryggja að barnið þroski með sér stolt og virðingu fyrir sjálfu sér og umhverfi sínu. Þá skiptir miklu að efla trú barnsins á að það geti höndlað þær áskoranir sem lífið felur í sér.

Hér eru tíu einfaldar aðferðir til að hjálpa þér að efla sjálfsmat barnsins þíns.

Veittu skilyrðislausa ást

Sjálfsálit barnsins blómstrar þegar það er fullvisst um að þú elskir það sama hvað á gengur. Barnið þitt græðir mest á því að þú takir því eins og það er, án tillits til þess í hvernig skapi það er og óháð getu þess eða veikleikum. Umvefðu barnið þitt með ástúð. Klappaðu því og kysstu, knúsaðu og faðmaðu eins oft og þú getur,

Þegar þú þarft að setja ofan í við barnið, hafðu þá á hreinu að það er framkoman eða verknaðurinn sem vekur óánægjuna, ekki barnið sjálft. Þannig að í staðinn fyrir að segja: ,,Þú er óþekkur, hversvegna ertu svona vondur?? er betra að segja.,,Það er ljótt að hrinda, maður getur meitt sig. Vertu nú góður og hættu því"e;.

Veittu athygli

Taktu frá tíma til að veita barninu þínu óskipta athygli. Þannig lærir barnið að það er merkilegt og mikils virði sem ýtir aftur undir sjálfstraust þess. Þetta þarf ekki að taka mikinn tíma. Það getur jafnvel verið nóg að þú gefir þig algjörlega að barninu í smástund og horfir í augun á því. Það þarf að finna að þú sért virkilega að hlusta. Ef þú ert tímabundin, geturðu látið barnið vita af því, en um leið reynt að koma á móts við athyglisþörf þess t.d. með því að segja: ,,Segðu mér hvað þú gerðir í skólanum í dag, og svo þarf ég að taka til matinn."e;

Settu mörk

Settu barninu fáar en sanngjarnar reglur, og ef þér finnst það við hæfi, spurðu um álit þess, bæði við að semja reglurnar og að endurnýja þær. Þessum reglum verður líka að fylgja vel eftir. Reglurnar geta verið: ,,Það á að ganga frá skónum sínum, það á að segja takk fyrir matinn. Það má ekki stríða litla bróður.?

Vitneskjan um að það gilda ákveðnar reglur í fjölskyldunni eykur öryggiskennd barnsins. Það þarf eflaust margar áminningar, en ef reglurnar eru skýrar og þeim fylgt eftir, lærir barnið að því er treyst til að fara eftir þeim.

Efldu frumkvæði

Hvettu barnið þitt til að reyna eitthvað nýtt og óþekkt, eins og að bragða nýjan mat, hjóla á tvíhjóli eða kynnast nýjum vinum. Leyfðu barninu að gera tilraunir og reyndu að stilla þig um að grípa inn í. Bara það að segja of snemma ,,Ég skal hjálpa þér,"e; getur skert sjálfsöryggi barnsins og gert það háðara þér. Ef þú blandar saman í réttum hlutföllum, þörf þína til að vernda barnið og þörf barnsins til að reyna eitthvað nýtt, eflir þú sjálfstraust þess.

Gerðu ráð fyrir mistökum.

Með því að leyfa barninu að hafa val og taka ,,áhættu? er óhjákvæmilegt að það geri mistök. Þetta er dýrmætur lærdómur fyrir sjálfsöryggi barnsins. Ef barnið brýtur t.d. uppáhalds leikfangið sitt, með því að fara illa með það, hjálpaðu því þá að gera við það og ræddu um hvað hefði verið hægt að gera öðruvísi. Á þennan hátt bíður sjáltsöryggið ekki hnekki og barnið skilur að það er allt í lagi að gera mistök. Þegar þér verða á mistök skaltu viðurkenna það og bæta fyrir, það gerir barninu auðveldara fyrir að sætta sig við eigin mistök.

Hrósaðu fyrir það sem vel er gert

Allir bregðast vel við hvatningu, þannig að þú skalt reyna að hrósa barninu á hverjum degi fyrir það sem það hefur gert vel þann daginn. Það má td. segja: ,,Jóna lagði alveg sjálf á borðið fyrir kvöldmatinn.? Það er barninu mikils virði að því sé hrósað svo það heyri . Og hafðu hrósið nákvæmt. Ekki segja bara: ,,Takk fyrir,? segðu heldur: ,, Takk fyrir hvað þú varst duglegur að hjálpa mér að bera pokana inn úr búðinni."e; Þetta eykur skilning barnsins á hvað það getur og hjálpar því að skilja nákæmlega hvað það gerði rétt.

Hlustaðu

Ef barnið hefur þörf fyrir að tala, hlustaðu þá á það. Barnið þarf að vita að skoðanir þess, tilfinningar og langanir skipta máli. Hjálpaðu barninu að sættast við tilfinningar sínar með því að orða þær ,, Ég veit að þú ert leið yfir því að þurfa að fara."e;

Með því að meðtaka tilfinningar barnsins án þess að dæma, sýnirðu að það skiptir þig líka máli hvernig barninu líður. Ef þú ræðir einnig hvernig þér líður t.d. með því að segja: ,,Ég er líka spennt yfir því að fara í bíó,"e; veitist barninu auðveldara að ræða sínar tilfinningar.

Varastu samanburð

Athugasemdir eins og: ,,Hvers vegna ertu ekki eins og systir þín?"e; eða ,,hvers vegna ertu ekki góð eins og Maja?,"e; ýta aðeins undir skömm, öfund og neikvæða samkeppni hjá barninu.

Þá getur jafnvel jákvæður samanburður eins og: ,,Þú ert langbestur í þessu spili,"e; einnig haft neikvæð áhrif, vegna þess að barninu getur fundist erfitt að standa undir þessum væntingum. Ef þú lætur barnið hinsvegar finna að þú metur það fyrir það sem gerir það sérstakt og það gerir sjálft, aukast líkurnar á að barnið læri líka að meta sig sjálft.

Sýndu samkennd

Ef barnið þitt ber sig saman við jafningja eða systkini á neikvæðan hátt með athugasemdur eins og: Af hverju get ég ekki lesið eins vel og Lóa?? sýndu því þá samkennd og leggðu áherslu á styrk þess. Segðu til dæmis. ,,Það er rétt hjá þér,Lóales vel ogþúsyngur mjög vel."e; Á þennan hátt sýnirðu barninu að allir hafa sínar sterku og veiku hliðar og það þarf ekki að vera fullkomið til að vera ánægt með sjálft sig.

Stuðningur

Öll börn þurfa að finna stuðning frá þeim sem þau elska. Þau þurfa að finna að foreldrarnir trúi á það. Þá ætti ekki aðeins að verðalauna barnið fyrir árangur heldur þarf líka að veita framförum þess athygli. Þannig að næst þegar barnið þitt er að bögglast við að koma frá sér setningu, er gott að segja: ,,Þetta er alveg að koma hjá þér, haltu áfram að reyna,? í staðinn fyrir að segja: ,,þetta er ekki rétt þú átt að segja svona...?

Verkin lofuð

Það getur oft verið árangursríkara að segja: ,,Segðu mér frá myndinni sem þú varst að teikna, ég sé þú ert hrifinn af rauðum lit,"e; en að segja: ,,Þetta er flottasta mynd sem ég hef nokkurn tímann séð.? Oflof getur dregið úr sjálföryggi barnsins vegna þeirrar pressu að allt þurfi að vera fullkomið og því finnst það stöðugt verða að fá viðurkenningu frá öðrum. Þú skalt því hrósa barninu á sanngjarnan hátt og hvetja það ríkulega, þannig hjálpar þú barninu að alast upp með sterkt sjálfsmat og öryggistilfinningu.

Þýtt og endursagt úr parentcenter.com.