Framfarir!
Desember 2010
1.DES.
- Fatta á mér tærnar, narta í þær. Svo er ég líka með eithvað dinglandi þarna niðri sem ég reyni að tosa í : )
3.DES.
4.DES.
- Smakka banana, finnst hann áhugaverður.
- Sit óstuddur í smá stund í einu.
12.DES.
- Sný af bakinu yfir á magann.
- Rúlla mér að jólatrénu og ríf í það, pabbi stekkur til og bjargar trénu.
- Fæ grautinn í hádegismat í staðin fyrir kvöldmat. (Sef betur)
13.DES.
- Fæ í fæðunet, kaldann banana til að japla á. Mmmm...
16. DES.
- 6.mánaða sprautan. (Er slappur)
- Smakka brauð með smjöri. (Kúgast)
- Fæ í fyrsta sinn að “borða” 2x á dag.
- Hádegismatur: Hirsigrautur með ávöxtum/grænmeti + sólblómaolíu. Kvöldmatur: Sæt kartafla og avókadó. (maukað)
- Mamma leyfir mér að sleikja gulrót. (namminamm)
- Sit vel. (Smá stuðningur af sæng)
17.DES.
- Fæ gulrótarmauk út í Hirsigrautinn minn. (Finnst hann skrítinn á bragðið en borða vel) Fæ illt í magann.
- Sýni hvað ég er sterkur með því að bíta saman óuppkomnum tönnum og spenna andlitið.
20.DES.
- Fæ aftur gulrótarmauk+hörfræolíu. (Líður vel af því)
- Fæ að smakka perumauk, finnst það gott.
- Sit sjálfur án stuðnings vei....
- Er farin að sofa betur á næturnar, vakna í mesta lagi einu sinni til að drekka.
- Brosi breitt þegar mamma segir mér að brosa framan í myndavélina. (BROOSA..)
21.DES.
- Skríð fyrstu skrefin á maganum (mamma styður pínuponsu við fæturnar á mér).
- Fékk gesti, Gabríelu og Heklu, og fílaði í botn að leika með þeim.
- Fékk að smakka hunangsmelónu í fæðuneti. Þegar mamma tók netið af mér til að gefa mér meira þá fór ég að hágráta því mér fannst svo gott að naga þetta, ég var því þvílíkt ánægður þegar mamma gaf mér meira.
- Ég sný mér eins og mér sé borgað fyrir það.
23.DES.
- Fer í skötuveislu með Svandísi ömmu til ömmu Sirrý á meðan mamma fær að taka til fyrir jólin. Það er svo gaman að flakka með ömmu.
- Rölti niður laugarveginn að skoða jólaljós með mömmu, ömmu, afa, Kíttý, Ásthildi og Gabríelu. Það var kalt en ég var vel pakkaður inn í vagninn.
- Smakka Broccoli, finnst það ekkert spes en borða það samt.

24.DES.
- Kertasníkir kemur með pakka til mín heim til ömmu og afa Arnarheiði. Ég er ekkert hræddur við hann og tek við pakkanum. Ég leyfi jólasveininum meira að segja að kyssa mig. Ég opna pakkann frá jóla alveg sjálfur og fæ frá honum bíladót sem ég er rosalega ánægður með.
- Í jólamat fæ ég banana og mangómauk, algjört sælgæti. Svo var líka gaman að því að við matarborðið þá ákveð ég að kúka svo mamma og pabbi þurftu að bíða með að borða kræsingarnar og byrja á því að skipta á mér hahaha... Ég er númer eitt, tvö og þrjú.
26.DES.
- Smakka mauk úr grænum baunum. Finnst það ekkert spes.
27.DES.
- Smakka rófumauk. (Hef ekki mikla lyst.)(Finnst það ekki gott)
28.DES.
- Segi mamma, veit samt örugglega ekkert hvað það þýðir.
- Smakka eplamauk, eeeelska það.
29.DES.
- Smakka gúrku. (Gretti mig)
- Smakka vínber, finnst þau rosa góð en fæ svo mikinn vindgang og það er ekki þægilegt.
- Stundum vel ég á milli fólks hjá hverjum ég vil vera. Í dag vildi ég bara vera hjá Dagmar og þegar pabbi, mamma, Jón Ingi, afi og fl. spurðu hvort ég vildi koma þá hélt ég fast í hana. Hún er líka vinkona mín.
31.DES.
- Fæ eyrnabólgu í annað sinn. Er mjög veikur og líður ekki vel. (Fer á sýklalyf)
- Eyðum áramótunum hjá afa Árna og ömmu Svandísi, svaka stuð og ég horfi á ljósin með pabba í gegnum stofugluggann og er alveg heillaður.
Janúar 2011
3.JAN.
- Núna kann ég að sjúga sjálfur úr stútkönnunni.
5.JAN.
- Smakka plómu og finnst hún svakalega góð, mamma hélt á plómunni og ég fékk að bíta sjálfur, ég kláraði hana næstum alla.
6.JAN.
- Eyrnabólgan hefur ekki lagast og ég fæ ný sýklalyf. Mér finnst sýklalyfin svo góð að ég fer að gráta þegar búið er úr sprautunni og vill fá meira. (eyrnabólgan lagast í kjölfarið)
7.JAN.
- Fer einn í bað hjá ömmu og afa og fæ að sitja þar sjálfur í fyrsta sinn. Ég bursla mikið og það er mikið fjör að fara í bað.
- Á morgnanna þegar við mamma vöknum, þá er ég svo kátur að ég knúsa og kyssi mömmu. Það finnst henni ekki leiðinlegt .
17.JAN.
- Fæ bláber í fyrsta sinn með ávaxtamaukinu, eins og flest annað elska ég það.
- Smakka kjúkling í fyrsta sinn. Mamma eldaði hann með venjulegum og sætum kartöflum, steinselju og alfa alfa spírum. Mmmm hvað þetta var gott, mamma er svoooo góður kokkur.
- Ég klappa saman lófunum þegar mamma segir mér að gera það... hún er svooo stolt af mér.
19.JAN.
- Fékk að naga mjólkurkex frá Frón. Mér fannst það hrikalega gott. Með mínum tveimur tönnum náði ég að bíta litla bita, það fannst mér skrítið og gretti mig mjög.
- Mamma fór með mig að hitta barnalækni, Sólveigu, í domus medica. Læknirinn heldur að ég sé með bakflæði og á ég núna að taka lyf við því, losac, og vonandi fer ég þá að geta sofið betur.
25.JAN.
- Smakka lambakjöt. Finnst það mjög gott.
- Er farinn að fá krakkalýsi á morgnanna.
- Lyfin eru greinilega að virka því ég er farinn að taka langa lúra í vagninum mínum. Í dag svaf ég í 2,5klst. án þess að rumska.