

Við erum tveir bræður sem búum í Kópavoginum.
Sófus Oddur er fæddur 19. janúar 2009 og er orðinn 7. ára. Hann var að klára 1. bekk í Sælandsskóla og er voða duglegur að læra. Hann er nánast orðinn læs og mamma og pabbi eru auðvitað voða stolt af honum! Sófusi finnst gaman að perla, leika með lego og spila. Honum finnst líka gaman að leika sér úti í fótbolta og þessa dagana sést hann varla heima þar sem hann eyðir miklum tíma í að hjóla um hverfið og Fossvogsdalinn á nýja hjólinu með vinum sínum.
Kári Kristinn fæddist þann 31. maí 2013 og er 3 ára. Hann er á leikskólanum Álfatúni. Þar líður honum voða vel, er duglegur að leika með vinum sínum en finnst skemmtilegast að fara i salinn og syngja.Hann er hress og skemmtilegur strákur sem á auðvelt með að stjórna fólkinu í kringum sig ;)
Hér á síðunni getið þið fylgst með því helsta sem um er að vera í lífi okkar fjölskyldunnar :o)
-Nýjar myndir og myndbönd-
-2. ágúst 2016-
Endilega skrifið í gestabókina









































Foreldrar okkar eru Sigríður Guðrún Guðjónsdóttir (82) og Úlfar Már Sófusson (82). Þau eru voða stolt af okkur bræðrum og finnst við ekki geta verið fullkomnari :)
























