Snærún Ynja, Heiðbjört Ótta og Styrmir Jarl
Snærún Ynja, Heiðbjört Ótta og Styrmir Jarl
 
 
 

Gullkorn

Gullkorn

Nóv og des 08

Snærún Ynja var að horfa á sjónvarpið þegar ungfrú heimur byrjaði. Hún spurði mömmu sína hvað þetta væri. Henni var sagt að þetta væri keppni um það hver væri fallegust í heiminum. Hún leit á mömmu sína alveg hissa og spurði "eru þær fallegri en þú?"

Snærún Ynja sagði við foreldra sína einn daginn "ef að ég eignast ekki kærasta þá verð ég bara að eiga börn sem eiga engan pabba" það er ekki flóknara en það.

Snærúnu Ynju er tíðrætt um kærasta. Hún var spurð að því einn daginn til hvers þeir væru eiginlega. Það stóð ekki á svari "Kærastar eru til þess að giftast þeim og kissa þá á munninn."

Feb 09

Snærún Ynja tilkynnti í dag að þegar hún verður stór þá ætlar hún ekki að vinna heldur að vera heima og mála myndir því hún verði listakona. Það eru nefnilega sumir sem gera svoleiðis, eru bara heima og mála myndir.

Á konudaginn spurði Snærún Ynja hvort hún væri ekki lítil kona, jú sögðum við þá sagði hún...ef ég er lítil kona þá á ég líka að fá gjöf í dag því það er konudagur {#emotions_dlg.wink} maður er sko með þetta allt á hreinu ekki spurning.

Feb 11

Styrmir Jarl var spurður hvort hann væri búinn að pissa í buxurnar. Nei, nei, nei, ég er bara svona blautur því ég svitnaði svona mikið. Tongue out

Mars 11

Styrmir Jarl tilkynnti að hann ætlaði að verða bóndi og þegar hann var spurðu hvað bændur gera þá stóð nú ekki á svari hjá honum. Þeir keyra sko dráttarvélar og hvað fleira spurði mamman líka fjórhjól, sko tvö. Sealed

Styrmir Jarl spurði mömmu sína eftir að hún fór í aðgerð á maga hvort hún gæti ekki farið aftur til læknisins og látið hann hætta að hafa hana svona mjóa svo hún gæti labbað hraðar Wink