Snædís Hanna og Mikael Máni
 

Gullmolar í boði Snædísar

10. mars 2010

Snædís og mamma ætluðu að fara á göngutúr og hitta brabra. Mamman gerði þau mistök að leyfa Snædísinni að taka skófluna sína með sem varð til þess að þessi annars stutti göngutúr tók 50 mínútur því það þurfti að moka í öllum sköflum á leiðinni. Á ákveðnum tímapunkti varð mamman hálf óþolinmóð á hægaganginum og sagði "Jæja, Snædís, nú skulum við ekki moka meira í bili" en Snædís var að sjálfsögðu ekki ánægð með þessa uppástungu hjá mömmu og svaraði vælandi: "múka bili".

Apríl 2010

Við spyrjum Snædísi gjarnan hvað hún hefur verið að gera hjá Möggu, dagmömmunni, yfir daginn og höfum við fengið ýmis mismunandi svör. Dæmi:
- "kúka, magga gaga ulla" - er í raun mjög algengt svar, eitt skiptið sagði ég henni að magga hafi sagt að hún hafi ekkert kúkað þann daginn, og eftir smá umhugsun svaraði hún: "magga kúka, magga pissa"
- "pabbi kyssa möggu" (já einmitt, er það já!)

8. maí 2010

Klukkan var rúmlega 8 að kvöldi á laugardagskvöldi og dagurinn hafði verið frekar annasamur. Öll venjuleg börn ættu a.m.k. að vera orðin þreytt á þessum tíma. Ekki Snædís. Hún var hoppandi og skoppandi í sófanum og engin þreytumerki sásust á henni. Við köllum hana stundum duracell-kanínu því hún hefur endalausa orku. Mamman spurði af hverju hún þyrfti endilega að vera duracell-kanína, af hverju hún gæti ekki bara verið venjuleg kanína. Þá svaraði Snædís: "Næsti, bara næsti", þ.e. Snædís er bara Snædís. Mjög gott svar!

Haustið 2010

Snædís var voða dugleg að syngja eftir að hún byrjaði á leikskólanum en stundum varð svolítill textaruglingur hjá henni. Dæmi:

 

  • Sól, sól, skínáni, ský, ský, burt meððig, gott er í sólinni að klæða sig, sól, sól, skínáni.
  • Gott er að borða kjöt og bjúgu alla daga (Grænmetissöngurinn úr Dýrunum í Hálsaskógi, á að boða allt annað en að borða kjöt og bjúgu alla daga).
Nóvember 2010
Snædís var á leikskólanum og tilkynnti í matartímanum: "Nú er Snædís Hanna Jensdóttir þæg og góð".
17. september 2011
Snædís og Mikael voru að kúldrast á gólfinu fyrir framan sjónvarpið á laugardagsmorgni og Jens var að gera sér kaffi. Eitthvað fannst Snædísi að sér vegið  því hún kallaði á pabba sinn og bað hann vinsamlegast um að koma að sækja Mikael. Jens spurði hvort hann væri að gera eitthvað af sér, og Snædís svaraði: "Nei, hann er að gera eitthvað af mér."