

hæ elskurnar
takk fyrir að taka á móti mér heima hjá Ölmu ömmu...hún kann sko tökin á þér. Þú hefur stækkað svo mikið síðan ég sá þig síðast...meiri segja komin með undirhöku, en alltaf jafn sæt.
Kveðja Rakel
Jæja þá er orðið allt of langt síðan við knúsuðum þig síðast Alma Kristín. Þið nöfnurnar verðið að fara að hittast.
Heyrumst á morgun,,,,,knús,
Hrafnhildur.
p.s það er ótrúlega gaman að skoða fínu myndirnar ykkar...
Elsku Erna og Sigurjón,
Til hamingju með fallega nafnið hennar Ölmu Kristínar, það passar henni eitthvað svo vel, yndislega fallegt nafn. Og ömmurnar og afarnir örugglega að rifna úr monti.
Vonum að þið hafið það gott á Íslandiu góða
kveðja frá DK
Steinunn og co
Kasta kveðju á vel ræktaða fjölskyldu. Kíki bráðum í heimsókn.
Vona að ykkur líði dásamlega.
Alma Kristín yndisfríð,
svo langþráð komst í heiminn.
Alla tíð svo ljúf og blíð,
angurvær og dreymin.
Guð blessi þig, þín Helga frænka.
Kæra frænka
Innilega til hamingju með bæði nöfnin þín.
Amma og afi hljóta að vera að rifna af stolti ;)
Mér hefur alltaf þótt Ölmu nafnið sérstaklega fallegt og merking þess á spænsku spillir heldur ekki! (sál)
M bestu kveðju,
Halla Sólveig
Jæja litla frænka þá byrjar ballið. velkomin í þennann annars skrýtna heim. þú sennilega skilur ekki mikið af þessum skrifum hjá mér en þegar fram líða stundir átt þú væntanlega eftir að fræðast mikið hér í Vestmannaeyjum. en það er eyjan sem þú átt eftir að koma á talsvert meira en hann pabbi þinn. og þegar að þar að kemur eigum við félagarnir í Fyrirmyndarbílstjórafélaginu eftir að kenna þér ýmislegt um hann (ofurpabbann) þinn
bless að sinni
Innilega til hamingju með fallega nafnið þitt Alma Kristín.
Kv. Guðrún Lind og Andrea Kristín:)
Elsku litla fjölskylda
Innilega til hamingju með nafnið þitt snúlla, og sömuleiðis amma og afi. Takk kærlega fyrir daginn, þetta var yndisleg athöfn og gaman að fá að taka þátt í þessu með ykkur. Hlökkun til að sjá ykkur næst þegar við komum í bæinn.
takk fyrir okkur, knús og kossar
Til hamingju litla fjölskylda, yndisleg litla Alman ykkar. Hittumst vonandi fljótlega aftur.
Elsku Alma Kristín! Innilega til hamingju með fallega nafnið þitt..hef grun um að þú eigir heldur betur montna ömmu að fá svona fallega nöfnu :)
Hamingjuósnaknús
Sigríður og co.
hæ hæ Alma Kristín og fjölskylda
...innilega til hamingju með fallega nafnið þitt.
Kveðja Lísa og Ísey
Elsku Alma Kristín.
Innilega til hamingju með fallega nafnið þitt og kæru Erna og Sigurjón til hamingju með nafnið. Hlakka til að sjá ykkur.
Íris
Til hamingju með fallega nafnið þitt, elsku litla Alma Kristín :) Hlakka til að sjá þig í dag!!
Elsku litla gullið mitt, innilega til hamingju með nafnið þitt og skírnina. Þú stóðst þig svo vel í gær svo stillt og góð. Knús, mamma.
Elsku litla Alma Kristín.
Innilega til hamingju með fallega nafnið þitt. Það var alveg dásamlegt að vera ykkur á þessari fallegu stund á sunnudaginn. Hlakka til að sjá þig aftur.
Helga frænka.
Innilega til hamingju með nafnið. Alma Kristín fallegt nafn á fallega stúlku.. takk fyrir okkur
elsku erna sigurjon og alma kristin,
til hamingju med nafnid, yndislegt..
knusa ykkur oll .
p.s.er hun straks ordin ballerina.......
Elsku Alma Kristín....
Til hamingju með nafnið og takk fyrir síðast. Hvað við erum montin af þér...og að fá að taka þátt í lífi þínu. Sjáumst fljótlega. Fjölskyldan í Ögurási
Litla ljúfust,
Hlakka til að sjá þig á mánudaginn og fá að kalla þig nýja nafninu þínu. Þú ert alveg yndislega falleg.
Þín vinkona, Rannveig
hæ elskulegust
Fallegar myndir af þér...Helena sagði þegar hún sá myndina af þér í balletfötunum frá okkur "ég vissi að hún yrði geggjuð" Hlökkum til að hitta þig á sunnudaginn... Biðjum að heilsa mömmu og pabba koss og knús fjölskyldan í Ögurásnum
Frétti að þessi líka gullfallega stúlka væri komin í heiminn og stóðst ekki mátið að kíkja á síðuna ykkar. Óska ykkur hjartanlega til hamingju með frumburðinn...hún er æðisleg :o)
Bestu kveðjur, Mattý
Til hamingju
Glæsilegur árangur, velkomin í hóp stoltra foreldra.
Innilega til hamingju með litlu telpuna!
Innilega til hamingju með stúlkuna. Það verður gaman að fá að fylgjast með henni á netinu. Þið takið ykkur vel út í foreldrahlutverkinu.
Hæ elskurnar, langaði rétt að heilsa uppá ykkur. Hún er svo falleg litla skvísan....yndisleg, hlakka til að sjá ykkur á sunnudaginn.
Knús, knús.
Elsku litla krús! Velkomin í heiminn :) Ég varð náttúrulega að fá að kíkja þegar ég vissi að þú værir mætt! Þú ert alveg yndisleg og með svona fallegan lubba eins og hann Garðar "stóri" frændi! Gangi þér svo alltaf sem allra best litla snúlla :)
Erna og Sigurjón..innilega til hamingju með krúttið...ekkert smá falleg, yndislegasta gjöf í heimi að fá svona gullmola til sín :)
Knús og kossar
Sigríður fyrrv. Kringlóbúi og fjölskylda
Hver er sætust? Sjá þig í ömmustólnum....það er eins og þú sést fullorðin :) Núna verður maður að koma oftar, þú stækkar svo hratt. Bið að heilsa mömmu og pabba. Helena Bryndís og Hildur Telma senda fingurkoss. Kveðja Rakel
Hæ hæ, rosalega er gaman að geta fylgst með úr fjarlægð og séð hvað daman dafnar vel - mann langar bara að knúsa hana og knúsa þegar maður skoðar þessar æðislegu myndir.
Bestu kveðjur úr TM, Svanhildur
Innilega til hamingju með litla gullmolann ykkar, algjört bjútí! Erla Kristín sagði mér frá síðunni, gaman að sjá mörg kunnugleg andlit á myndunum :)
Gangi ykkur rosalega vel og njótið hverrar stundar - ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram þegar lítið kríli er komið á heimilið.
Bestu kveðjur,
Ágústa