Alma Kristín og Aníta Ósk
 

Gestabók

Hrafnhildur og co...

Æ sæta. Þú ert alger bjútíbolla. Svo gaman að kíkj á síðuna þína.

Leiðinlegt að missa af veislunni þinni en hér færðu fyrifram afmæliskveðju og knús!!

knús, knús , knús frá familíunni á Þinghólsbrautinni

Skrifağ şann 28. January 2007 23:02.

sigríður

Halló snúlla! Var bara aðeins að kíkja..alltaf jafn sæt :) Nú ertu bara alveg að verða eins árs..vá hvað tíminn líður hratt. Sigurður Elvar varð 3.ára á sunnudaginn..er ekki enn að trúa því,finnst hann enn svo mikill lilli :)
Knús knús
Sigríður

Skrifağ şann 25. January 2007 19:45.

Kristrún, Bergur og Börn

alltaf jafn gaman að skoða nýjar myndir af skvísunni, alltaf jafn brosmild :P

Skrifağ şann 9. January 2007 21:32.

Kolbrún Hulda Sigurjónsdóttir

Elsku rósin mín!
Alltaf er jafn gaman að skoða myndirnar af þér.
Dugleg ertu að vera farin að pissa í fína koppinn þinn.
Sjáumst sem fyrst.
Kolla amma

Skrifağ şann 9. January 2007 18:12.

Jóna

Halló Alma Kristín

Takk fyrir síðast. Það var mjög gaman að hafa þig og vonandi kemurðu í næturheimsókn sem fyrst. Þetta eru fínar myndir og gaman að sjá hvað það var gaman hjá þér um jólin.

knús og kveðja
Jóna frænka

Skrifağ şann 9. January 2007 09:09.

Kristrún, Bergur og Börn

alltaf jafn yndisleg :) hlakka til að hitta þig annan í jólum hjá Jónu frænku, kveðja Nikolas

Skrifağ şann 21. December 2006 12:15.

Helga frænka

Hæ elsku dúkkan mín. Mikið rosalega er langt síðan ég hef séð þig. Þú ert orðin svo stór og dugleg og komin með tennur. Það liggur nú ekkert á að fara að ganga strax. Garðar frændi þinn fór að ganga í nóv (14 mán) og það er sko alveg nógu fljótt. Ég meira að segja sá hann taka fyrstu skrefin - það var gaman. Vonandi sjáumst við fljótlega. Gefðu mömmu og pabba knús frá okkur. Bless, bless, Helga frænka.

Skrifağ şann 13. December 2006 08:42.

Hildur frænka

Hæ sæta mín ;O)
Þú ert nú algjört æði og myndirnar í balanum alveg frábærar!
Það var nú aldeilis gaman að fá þig í heimsókn um daginn - í stutta pössun - svo ég fékk að knúsa þig fullt og leyfði þér að hlusta á gamaldags hljómplötu. Frænkan var nú sátt við það!
Er hjá langömmu þinni og langafa og þau biðja að heilsa þér & mömmu þinni & pabba ... og ég líka auðvitað.
Knús & kossar, Hildur

Skrifağ şann 11. December 2006 20:35.

Rakel, Helena Bryndís og Hildur Telma

Halló sæta....
Fallegar myndir af þér, fara mamma og pabbi bara ekki að stofna ljósmyndastofu, við værum alveg til í að koma þangað.
Vonandi sjáumst við á hverjum degi í nánustu framtíð :)
Kveðja
Ásaskvísurnar

Skrifağ şann 7. December 2006 10:35.

Íris

Hæ sæta.
Myndirnar af þér eru svakalega flottar. Mamma þín og pabbi eru greinilega góð í þessu : ) hvernig er líka annað hægt með svona flott módel. Þú stækkar líka ótrúlega hratt, fer að styttast í árið.
Kveðja, Íris, Kara Nótt og Tindri Freyr

Skrifağ şann 6. December 2006 23:18.

Rannveig

Ertu dúlla eða hvað? Ó mæ god, hvað myndirnar af þér eru krúttlegar! Hlakka mikið til að fá að sjá þig :) Þín vinkona, Rannveig.

Skrifağ şann 5. December 2006 20:24.

ísey

hæ hæ ekkert smá flottar myndir af þér skvísa, hlakka svo til að hitta þig :)
knús knús
ísey og mamma

Skrifağ şann 5. December 2006 09:49.

Kristrún, Bergur og Börn

flottar myndir pabbi og mamma eru greinilega dugleg að gera fínar myndir handa þér. Sjáumst fljótlega kv. Nikolas og gengi

Skrifağ şann 4. December 2006 14:43.

Jóna Ósk Garðarsdóttir

Halló Alma Kristín

Þetta eru flottar myndir af þér alltaf jafn prakkaraleg á svipin. Sjáumst vonandi fljótlega

ástarkveðjur
Jóna frænka

Skrifağ şann 4. December 2006 08:39.

Karo

Elsku Alma Kristín.
Vildi bara minnast á hversu vel ræktaða foreldra þú átt.
Þeir eru ekkert smá duglegir að skrifa um ævintýrin þín og mynda þig í bak og fyrir.
Allt til fyrirmyndar.

Skrifağ şann 17. November 2006 07:02.

Davíð og Svala

Hæ sætasta
Erum alltaf að fylgjast með þér hérna í fjarlægð. Það er svo gaman að sjá þig þó allavega svona :) Erum reyndar farin að sakna allra frekar mikið núna .... Hlökkum rosa til að koma heim um jólin og eyða fyrstu jólunum með þér :) Hafðu það gott þangað til, biðjum að heilsa mömmu og pabba.
Knús og kossar til þín

Skrifağ şann 5. November 2006 01:03.

Halla Sólveig Þorgeirsdóttir

Hæ litla frænka!

Gaman að sjá hvað þú ert dugleg og flott.. Þú hefur greinilega fengið gott skap í vöggugjöf!
Þessi eyrnabólga getur verið leiðinleg, það þekkir Þorgeir Logi líka.. Svo fékk hann ofnmæmi fyrir lyfjunum ofan í allt saman, en er núna búinn að jafna sig sjálfur sem betur fer!! kær kveðja
Halla og grislingarnir

Skrifağ şann 3. November 2006 19:58.

Kristrún, Bergur og Börn

ohhh hvað það var gaman að sjá þig í gær littla frænka.. brostir svo blít til mín, var sannfærður um að þú ætlaðir að heilla bangsimon af mér :) hittumst fljótt aftur

Skrifağ şann 30. October 2006 13:29.

Jona Ósk Garðarsdóttir

Halló Alma Kristín

Smá heilsa frá frænku af því að það er svo langt síðan ég sá þig. Vonandi fara tennurnar að koma svo þér hætti að klæja.

kveðja
Jóna frænka

Skrifağ şann 18. October 2006 14:06.

Ísey og Lísa

hejsan hej :) vildum bara senda knús frá Svíþjóðinni og segja að kerran sem þið lánuðuð okkur er alveg frábær, takk aftur :) Hlökkum, síðan til að hittast aftur þegar við komum heim
puss och kram
ísey og mamma

Skrifağ şann 14. October 2006 06:31.

Ísey og mamma

hejsan hej
jæja ég er loksins að verða frísk, fyrsti hitalausi dagurinn! frábært að sjá hvað þú ert orðin dugleg að babbla, spurning um að þú takir mig ekki í smá kennslu ;)
kveðja ísey og mamma

Skrifağ şann 5. October 2006 09:10.

Helga frænka

Hæ sætust.
Þú ert nú alveg æðisleg, alltaf brosandi og svo ljúf og góð. Það var alveg frábært að vera með þér og öllum hinum í bústaðnum um helgina. Vonandi sjáumst við aftur fljótlega.
Knús og kossar. Helga frænka

Skrifağ şann 26. September 2006 08:01.

Jóna Ósk Garðarsdóttir

Hæ Alma Kristín

Ég er nú alltaf að kíkja á síðuna og fylgjast með, hef bara aldrei skrifað þér neitt. Þú ert orðin svo stór og dugleg stelpa. Hlakka til að sjá ykkur fljótlega.
Ástarkveðja
Jóna frænka

Skrifağ şann 25. September 2006 15:39.

Kristrún, Bergur og Börn

á að sigra heiminn á 1 viku :P til hamingju með að geta sitið, orðin svo stór skvísa... og það mun ekki vera langt í að þú hlaupir um.

kveðja úr sveitinni :P

Skrifağ şann 23. September 2006 10:22.

Kolbrún Hulda Sigurjónsdóttir

Elsku dúllan mín!
Það er alltaf jafn gaman að lesa um afrekin þín.
Sjáumst eftir helgi.
Hræddu nú ekki líftóruna úr aumingja Grímu.
Bless elskurnar. Kolla amma

Skrifağ şann 22. September 2006 16:42.

Ásta dagmamma

Hæ sæta Alma Kristín!

Takk fyrir komuna í gær, það var gaman að fá ykkur mæðgur í heimsókn.
Okkur fannst þú rosa sæt og góð stelpa.

Kær kveðja frá öllum í Ástukoti

Skrifağ şann 22. September 2006 12:46.

Davíð og Svala

Hæ sææætttasssta
er hægt að vera mikið meira dúlla ? við verðum víst að fylgjast með þér í svona á meðan við erum í sveitinni svo við missum ekki of mikið af. Annars ætlum við að reyna að kíkja eitthvað í Reykjavíkina og heimsækja ykkur. En þangað til næst, gangi ykkur allt í haginn.
Knús og kossar frá Akureyri

Skrifağ şann 7. September 2006 23:46.

Þórunn frænka

Hæ brosmilda prinsessa, það er greinilegt að þú fékkst skapið frá mömmu þinni ;-b. Ég hef nú ekki séð þig síðan í skírninni, það er skömm að segja frá því, en ég ætla að bæta úr því. Þú verður bara að koma í heimsókn í nýja húsið okkar og klappa kisunum okkar. Hittumst vonandi fljótlega!

Skrifağ şann 21. August 2006 01:32.

Kristrún, Bergur og Börn

svakalegt að sjá hvað þú ert dugleg að stækka skvísa :P hittumst fljótlega vonandi kveðja Nikolas Gleraugnagámur

Skrifağ şann 18. August 2006 23:20.

Ísey og mamma

hejsan hej! við vildum þakka fyrir okkur í gær. ótrúlega gaman að koma í heimsókn :) hlökkum til að hittast aftur
ísey og lísa

Skrifağ şann 17. August 2006 08:13.

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10