Los Rodríguez
 

Guestbook

Tómas Ari Rodríguez

Halló Tómas

Posted April 1, 2023 at 14:04.

Anton Örn Rodriguez

Elsku Anton Örn.

Við óskum þér innilega til hamingju með 7 ára afmælið. Ennfremur biðjum við þess að framtið þín verði hamingjurík og gjöful á velgengni og góða heilsu þér til handa.

Amma Lilja og
afi Guðlaugur.

Posted September 23, 2016 at 20:51.

Tómas Ari Rodriguez

Elsku ljúfi vinurinn okkar.
Innilega til hamingju á þessum fyrsta afmælisdegi þínum, eins árs afmælinu.
Þú tókst svo fallega á móti okkur í afmælisboðinu í dag.
Góður Guð verndi þig og fjölskyldu þína um ókomna framtíð.
Amma Lilja og afi Guðlaugur.


Posted September 4, 2016 at 21:56.

Daníel Snær Rodriguez

Elsku Daníel Snær.
Innilega til hamingju á 9. afmælisdeginum þínum og gleðilega páska. Ekki er verra að hann ber í þetta sinn upp á páskadag. Þá verður tvöföld hátíð hjá þér. Og umhverfið er heldur ekki amalegt. Bústaður með öllum þægindum í fallegri sveit.
Við vonum að þið fjölskyldan njótið þessa alls og snúið heim glöð og endurnærð á sál og líkama.
Góður guð veri með ykkur og verndi. Við hlökkum svo mikið til að sjá ykkur aftur.
Amma Lilja og afi Guðlaugur.

Posted March 27, 2016 at 11:24.

Sonja frænka & Co

Til hamingju með fallega nafnið hans Tómasar Ara, bræðanöfnin eru svo falleg saman! Svo gaman að skoða fallegu myndirnar ykkar, greinilega yndisleg jól sem þið hafið átt og nóg að gera í "party of five" :)

ástarkveðjur úr Garðabænum,
Sonja & Co

Posted January 12, 2016 at 09:33.

Stefanía frænka

Til hamingju með nýjasta prinsinn, hann er myndarlegur eins og bræður hans og foreldrar og mér sýnist hann vera svona 3ja útgáfa en það er nú ekkert að marka svona splunkunýjan prins sem á eftir að breytast mikið á næstu mánuðum.

Posted October 25, 2015 at 11:57.

Amma Lilja og afi Guðlaugur

Elsku Anton Örn.

Til hamingju yndislegi vinur á sex ára afmælisdeginum þínum. Af því tilefni ætlum við að heimsækja þig í dag og gleðja þig með góðri gjöf.
Eigðu ánægjulegar stundir á þessum tímamótum með vinum þínum og fjölskyldu.

Amma Lilja og afi Guðlaugur.


Posted September 23, 2015 at 11:15.

Amma Lilja og afi Guðlaugur

Elsku Daníel Snær. Innilegar hamingjuóskir með átta ára afmælið. Megi velgengni og gæfa fylgja þér á framtíðarbraut. Góður guð veri ætíð þér við hlið og verndi.
Amma LIlja og afi Guðlaugur.

Posted March 27, 2015 at 11:10.

Anton Örn Rodriguez

Elsku Anton Örn.
Afmæliskveðja frá ömmu og afa. Innilegar hamingjuóskir á fimm ára afmælisdeginum, elsku vinur.
Við samgleðjumst þér og fjölskyldu þinni á þessum tímamótum og óskum þér gæfu og velfarnaðar um alla framtíð. Góður guð veri ætíð með þér og verndi þig.
Amma Lilja og afi Guðlaugur.

Posted September 23, 2014 at 11:36.

Anton Örn Rodriguez

Posted September 23, 2014 at 11:10.

Amma Lilja og afi Guðlaugur

Elsku Daníel Snær.
Innilegar hamingjuóskir með afmælisdaginn. Nú ert þú búinn að brjóta 7 ára múrinn og kominn á áttunda aldursár. Skemmtileg tímamót þar. Kominn í nýjan áfanga í skólakerfinu. Megi þér vegna vel þar sem áður.
Við biðjum góðan guð að blessa vegferð þína áfram og halda verndarhendi yfir þér og fjölskyldu þinni.
Kærar kveðjur elsku vinur og þúsund kossar.

Posted March 27, 2014 at 11:28.

Mamma

Elsku litlu molarnir mínir, gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allan þann yndislega tíma sem þið hafið gefið mér á árinu sem er að líða. Ég sakna ykkar á hverjum degi en veit að þið hafið það voðalega gott með pabba hjá ömmu og afa út á Spáni. Njótiði hvers dags og veriði duglegir að leika ykkur og gera skemmtilega hluti. Ég elska ykkur af öllu hjarta og hlakka til að hitta ykkur aftur. Risakoss frá mömmu á Íslandi

Posted January 1, 2014 at 16:45.

Amma Lilja og afi Guðlaugur

Elsku Anton Örn.
Amma og afi á Fjölnisvegi senda þér innilegustu afmæliskveðjur í tilefni þess að þú ert fjögurra ára í dag. Það var gaman hitta þig í gær, þiggja góðar veitingar og vera samvistum við þig og nánustu ættingja. Kærar þakkir fyrir það.
Guð blessi þig elsku vinur og veiti þér og ástvinum þínum vernd sína um ókomin ár.

Posted September 23, 2013 at 10:54.

sergio

Hola Daniel, como estas???? ayer intenté hablar contigo, pero parecía que tenias otras cosillas entre manos. Solo quería desearte un gran feliz día de cumpleaños, que por cierto, ya son Seis pedazo de años. Tus aitas me han dicho que has estado todo el dia de celebración. Solo deseo que lo hayas pasado genial y hayas recibido munchios regalos y sonrisas. Yo aqui en Barcelona, deseo poder ver pronto la tuya y espero podamos ir a hacer muchas cosas juntos, pasear por la montaña, ir a la playa a surfear, jugar con Timba ...... te envio un gran abrazo fuerte y un besazo. Te quiero mucho y también a tu hnito Antón, que espero le cuides y protejas como el mejor de los regalos......un besazo a todos y nos vemos pronto MUAKS....

Posted March 28, 2013 at 07:46.

Amma Lilja og afi Guðlaugur

Elsku Daníel Snær.
Innilega til hamingju með að þú ert 6 ára í dag. Við hittumst á morgun í tilefni þessara gleðilegu tímamóta.
Þetta verður merkisár í lífi þínu, því í haust kveður þú leikskólann þinn Hof og byrjar fyrsta árið í grunnskóla. Við óskum þess og biðjum að sú vegferð verði þér frá upphafi til enda ánægjuleg. Að þú eignist góða vini meðal skólasystkina og góða kennara.
Megi góður guð fylgja þér og vernda þig um alla ókomna tíð.

Posted March 27, 2013 at 10:33.

Amma Lilja og afi Guðlaugur

Elsku Anton Örn.
Heimsókn okkar á heimasíðu þína er í tilefni þess að þú átt þriggja ára afmæli í dag.
Innilega til hamingju með það elsku vinur. Afmælisveislan þín í gær var frábær. Við þökkum móttökurnar, veitingarnar og samveruna.
Við óskum þér gæfu, hamingju og guðs blessunar á framtíðarvegum þínum.

Posted September 23, 2012 at 10:36.

zaira y sergio

hola chicos, vaya niños, no veas, la foto 35 y la 41 son mágicas, es muy bonito ver paso a paso la excursión por el campo e incluso a anton con el perro, que guay.
Por cierto, tengo un amigo por aqui que red bull le patrocina en modalidad de patinete(como el de antón, foto 1)y vive muy bien,,,,,, anton, dale caña

Posted June 8, 2012 at 06:23.

Amma Lilja og afi Guðlaugur.

Elsku Daníel Snær.
Til hamingju með fimm ára afmælið í dag. Kossar og knús í tilefni þess.
Við vonum að það verði gaman þegar leikskólafélagar þínir heimsækja þig í dag.
Guð fylgi þér ávallt og leggi blessun sína og vernd yfir framtíð þína.

Posted March 27, 2012 at 10:44.

Dúna og Eyrún Vala

Gaman að skoða síðuna ykkar flottu strákar, svo margar fínar myndir og myndbönd! Knús til ykkar, sjáumst :)

Posted March 1, 2012 at 15:20.

Amma og afi á Fjölnisvegi

Elsku Anton Örn. Þú átt afmæli í dag :-) Þú ert tveggja ára í dag. Til hamingju elsku sæta krútt. Kossar og knús frá ömmu og afa á Fjölnisvegi.

Posted September 23, 2011 at 10:27.

Stefán

Elsku Anton Örn
Til hamingju með 2 ára afmælið

Posted September 23, 2011 at 02:50.

Jórunn

elsku sæti Daníel Snær innilega til hamingju með afmælið þitt í dag. Æðisleg afmæliskaka og flott nýja hjólið þitt. Knús Jórunn xoxo

Posted March 27, 2011 at 22:14.

Amma og afi á Fjölnisvegi

Elsku Daníel Snær.

Þú ert fjögurra ára í dag.. Til hamingju með afmælið elsku vinur. Við hlökkum til að koma í afmælisveisluna þína núna á eftir. Sjáumst ! :-)

Posted March 27, 2011 at 14:25.

sergio

gran plecer estar unos dias con ustedes. Disfrutar de las criaturas y gozar de vuestra presencia.
Gracias familia por la acogida. un gran abrazo

Posted September 27, 2010 at 09:00.

Sonja frænka

Elsku Anton Örn !! Innilega til hamingju með ársafmælið þitt elsku litli frændi :* Vonandi ertu búinn að eiga góðan dag þú glaði og sæti strákur:) Við Karítas hlökkum svo mikið til að hitta þig á 100 ára afmæli ömmu Jórunnar og leika :)

knús,
Sonja og Karítas Kristín

Posted September 23, 2010 at 23:17.

Amma og afi á Fjölnisvegi

Elsku Anton Örn.
Til hamingju með afmælið. Orðinn ársgamall í dag sæti ljúflingur. Það eru stór tímamót. Í dag er haustjafndægur. Dagur og nótt jafnlöng. Þannig vegur tíminn hjá okkur árlega salt. Myrkur og birta upp og niður til skiptis.
Megi hamingja og birta ávallt hafa yfirhöndina í þínu lífsins vegasalti. Guð blessi framtíð þína og fjölskyldu þinnar.

Posted September 23, 2010 at 09:55.

Elsku dúllu snúllinn minn Anton Örn. Til lukku með 1 árs afmælið þitt. Voðalega er þetta fljótt að líða og þú að verða stór. Haltu áfram að vera svona skemmtilegur og sposkur og glaðlyndur. Það er þitt aðalsmerki. Vona að þú sért hress og kátur á þessum merkilega og stóra degi. Knús og kossar Jórunn guðmóðir ;D

Posted September 23, 2010 at 09:21.

Stefán Guðlaugsson

Elsku Anton Örn
Sendi þér innilegar hamingjuóskir á eins árs afmælinu. Það hefur verið gaman að fylgjast með þér vaxa og þroskast þetta fyrsta ár. Bestu kveðjur til allra í fjölskyldunni. Stefán frændi

Posted September 23, 2010 at 08:10.

Amma og afi á Fjölnisvegi

Ástkæri Anton Örn.

Mánaðarkveðja frá okkur á Fjölnisvegi 15. Þú ert ellefu mánaða í dag og eftir mánuð fögnum við því ársafmæli þínu. Til hamingju með þennan áfanga elsku ljúfur.
Gangi þér vel með tanntökuna og haltu áfram að bæta skriðtæknina sem hefur tekið miklum framförum.
Guð veri með þér og verndi. Amma og afi.

Posted August 23, 2010 at 21:48.

Jórunn

skemmtilegar myndir úr veiðiferðinni :D

Posted August 19, 2010 at 12:35.

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13