Berglind Elva & Róbert Sindri
Berglind Elva & Róbert Sindri
 
 
 

Vefdagbók

 

Árin líđa....

Ótrúlegt hvað tíminn líður, hjá okkur mæðginum er allt gott að frétta. Tímamót hjá okkur báðum núna í vor þegar Róbert Sindri útskrifast úr grunnskóla og ég úr háskóla. Við erum þó hvergi nærri hætt því við höfum sótt um áframhaldandi nám. Róbert Sindri sótti um í MK og stefnir á að verða matreiðslumaður og ég sótti um meistaranám í HÍ í Náms og starfsáðgjöf þannig að það eru spennandi tímar framundan.

Í sumar höfum við bæði fengið sumarvinnu hjá SS, Róbert Sindri verður á Hvolsvelli og mun búa þar hjá mömmu en ég fer í afleysingar í söludeild SS.  Vonandi komumst við í einhverjar útilegur og fjallgöngur í sumar. Það er allaveganna á stefnuskránni.

Þar til 2014.....

kveðja

Berglind Elva & Róbert Sindri

10. May 2012 - 12:46

 
 

Ferming Róberts Sindra

Elsku vinir, þá er litla barnið mitt komið í fullorðinna manna tölu.

Við áttum yndislegan dag með fjölskyldu og vinum, bjartur og sólríkur dagur, samt svolítið kaldur.

Fermingarbarnið í skýjunum með daginn og foreldrarnir líka.

Nýjar myndir frá fermingarmyndatöku komnar til skoðunar, endilega kvittið við myndirnar, gaman að sjá hvað ykkur finnst um þær ;)

29. March 2010 - 22:00

 
 

Páskafríiđ senn á enda

Við mæðgin búin að hafa það rosa gott - Róbert Sindri byrjaði fríið með mér hérna á Hvolsvelli, og var fram á þriðjudag - skellti sér svo norður á Blöndós til pabba síns og fjölskyldu yfir helgidagana í snjóinn og fjörið þar. hann er búinn að skemmta sér við ýmsa iðju og m.a. búinn að fara langleiðina upp á Hveravelli - þar sem fullt af fólki kom saman og lék sé í snjónum m.a. á snjósleðum og fjórhjólum.

Ég er svo aftur á móti búin að vera í huggulegheitum í mömmu&pabbakoti á Hvolsvelli og aðallega verið í slökun. Eitthvað hefur verið kíkt í skólabækur en ekki alveg jafn mikið og ég ætlaði. Við systurnar og foreldrarnir búin að eiga notalega stund.

Finnur bróðir skellti sér á sjóinn með stuttum fyrirvara og því aðeins Hilmar Tryggvi og pabbi hér í sveitinni af kk meðlimum fjölskyldunnar.  Magnea og Andrea lenntu í því skelfilega óhappi að 1 stk meri vatt sér upp á veg og í veg fyrirbílinn þeirra - bíllinn er ónýtur - það er aukatriði - þær sluppu betur en á horfðist líkamlega en vissulega er þetta skelfilegt að lífsreynsla sem gleymist ekki svo auðveldlega.

Læt þetta duga í bili - sjáumst hress

 

23. March 2008 - 13:59

 
 

Lífiđ gengur sinn vangang

Við mæðginin höfum ávallt nóg fyrir stafni - núna nýlega fór Róbert Sindri með skátunum upp að Úlfljótsvatni, þar sem hann eyddi helginni við leik og söng í góðum félagsskap. Hann var vígður inn í skátana og tilheyrir nú fálkahópnum í Skátafélagi Árbúa.  Mjög stolt af stráknum og veit að þarna fær hann uppbyggilega fræðslu og sem höfðar til hans áhugamála.

Hjá mér er ávallt það sama - skóli og vinna, skóli og vinna en hef reyndar náð að skemmta mér smá, fór í dúndurafmælispartý til Steinunnar vinkonu minnar í janúar, hitti svo nokkrar stelpur úr SS og svo um síðustu helgi fór ég á árshátíð SS með mömmu og það var hrikalega gaman.

Það styttist svo í páskafrí en ég vonast til að eiga gott frí með syni mínum og fjölskyldunni fyrir austan ætlum að fara austur þann 14.mars og koma vonandi ekki í bæinn fyrr en 25. mars það er þó enn óráðið hvort Róbert Sindri verði fyrir austan allan þann tíma fer hugsanlega norður til föður síns og fjölskyldu yfir sjálfa páskahátíðina.

Auðvitað verður ekki slakað á í lærdómnum, þarf að lesa slatta í fríinu því þegar fríinu er lokið er rétt um mánuður í lokaprófin... trúi því eiginlega ekki hvað þetta hefur gengið hratt fyrir sig. alveg geggjað. 

Það styttist svo í ferð okkar mæðgina ásmat mömmu og Anítu Þorgerðar til Helsinki, Finnlandi.  Hlakka rosalega til.

látum þetta duga í bili

Bestu kveðjur úr Árbænum

Berglind Elva og Róbert Sindri

8. March 2008 - 20:55

 
 

mín ađ standa sig ;)

Árið ætlar að fara vel af stað hjá okkur mæðginum, ekki það að ég hefi yfir einhverju að kvarta frá árinu 2007 hehe

Róbert Sindri er svo duglegur að hjálpa til hér heima - svo erum við ofboðslega góðir félagar og það tel ég vera mjög mikilvægt.

Strákurinn er aldeilis búinn að fá útrás undanfarið í að sprengja og varla sést hér heima við í fjörinu. Ég er nú alveg búin að fá nóg af sprengjulátum - það keyrði um þverbak í gær hérna á þrettándanum, ég heyrði ekki í sjónvarpinu sama hvað ég hækkaði og sprengjulátunum ætlaði aldrei að linna. Er voða fegin að þessi tími er liðinn.

Svo er bara skóli og aftur skóli hjá okkur mæðginum. mánudaga - fimmtudaga taka skóli og vinna 1/2 sólahringinn, fer af stað rúmlega 7 og kem heim rúmlega 19 með því að fara beint í vinnuna. á föstudögum er ég búin fyrr í skólanum eða kl 12 þannig að það er voða ljúft. Ætla að reyna að vera dugleg að nota götin í skólanum til að læra svo ég þurfi ekki mikið að læra heima á kvöldin. Þá get ég eytt þeim tíma með syninum, þvottinn, tiltekt, eldamennsku og gera nesti... það er ljóst að tíminn fram á vor verður fljótur að líða

7. January 2008 - 09:59

 
 

2007 á enda

Sælt veri fólkið - það mætti segja mér að hér sé á ferðinni latasti höfundur vefdagbókar á barnanetinu. Biðst velvirðingar á hvað ég skrifa stopult hér inn.

Síðan hann Róbert Sindri átti afmæli hefur ýmislegt á daga okkar drifið. Ég búin að klára prófin, náði öllu og náði meira segja betri árangri en ég þorði að vona eftir að hafa verið svona lengi frá námi.  En sú gamla er alveg að standa sig...  Róbert Sindri fer svo í sín miðsvetrarpróf núna strax í byrjun janúar.  

við mæðgin vorum orðin ansi hreint leið á þessari rigningu og stanslausa roki, urðum því afar glöð þegar að jörð fór að hvítna rétt áður en klukkan sló inn jólin. Sem betur fer því eitthvað var djúpt á jólaskapinu þetta árið - en það kom á endanum - þökk sé snjónum og samverunni við fjölskylduna

Árið hefur farið ágætustu höndum um okkur mæðgin og horfum við bjart fram til ársins 2008. Næstu mánuði munu  skóli og vinna eiga hug okkar að mestu leyti en þegar líða fer að sumri styttist í ferðina okkar til Helsinki - en þar sem ég komast ekki með saumaklúbbnum s.l. haust þá varð ég að nýta miðann seinna og ætlum við að dvelja í viku í Helsinki 4.-11. júni n.k.  Ég vil biðja alla sem eitthvað eru að íhuga brúðkaup eða slíkt að halda það ekki á þessum tíma þ.e. ef það á að bjóða mér (Berglind Elvu) 

Svo er planið að fara til USA ef ég vinn í Lottó - ég spila því lottó á hverjum laugardegi í veikri von um að komast í heimsókn til litlu fjölskyldunnar í Seattle....

Annars erum við bara kát og hress - höfum sloppið vel við ljótar pestir og unum því glöð við leik og störf.

takk fyrir í dag - ég ætla svo að reyna að standa mig betur í skrifum á vefdagbókinni

31. December 2007 - 00:02

 
 

Róbert Sindri er 11 ára í dag ;)

Þessi gullmoli var nú aldeilis ánægður með mömmu sína þegar hún vakti hann með afmælissöng og pökkum... fór ekki af honum brosið ;)

Hann fór svo í skólann og það vildi svo skemmtilega til að krakkarnir sem haf af haldið sig undir 6 punktum fengu í verðlaun smá ferð og var stormað niður í Borgarleikhús að sjá Grettir, þetta voru 5.-10. bekkingar, þau skemmtu sér konunglega.

Hanner svo rokin í sund á meðan ég ætla að drífa mig í vinnuna, ætlum svo að kíkja í pizzu á Rizzo og ná okkur í eina dvd mynd og smá kósý í kvöld.

Svo verður stormað í sveitinia um helgina og haft það huggó ;)

22. November 2007 - 14:44

 
 

Róbert Sindri lasin

það gerist nú ekki oft að þessi elska sé lasin, komumst að því áðan þegar ég fór með hann til doksa  að við höfum ekki komið þangaði í 2 1/2 ár...

hann er sem betur fer bara með særindi í hálsi - enga streptokokasýkingu.. hvernig sem það á nú að skrifa þetta rétt.

Mér gengur bara prýðisvel í skólanum, -aðeins rúmar 4 kennsluvikur eftir og síðan taka við próf í 2 vikur ég ætti að taka 6 próf en eigi að taka aðeins 5 próf þar sem ég hef fengið gott á prófum í NÁT113. það er reyndar eini áfanginn sem býður upp á þennan möguleika. 

Ég er búin að kynnast góðum manni sem er frá Svíþjóð - spennandi að vita hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir okkur tvö. Róbert Sindra líst bara mjög vel á Fredrik enda ekki hægt annað. Hann er bara ske,,tilegur, góður og yndislegur. Hvers manns hugljúfi.

En eg læt þetta duga í bili- ætla að horfa á ein DVD mynd með syninum áður en ég fer að skúra ;) 

30. October 2007 - 12:16

 
 

Brjálađ ađ gera og ţví lítill tími fyrir fćrslur

væri gaman ef þið skilduð eftir ritun í gestabókinni - hef litla tilfinningu fyrir því hverjir eru að kíkja hérna inn ;) Það myndi gleðja mitt litla hjarta.

Á ennþá eftir að uppfæra betur myndaalbúm fyrir ættarmót og brúðkaup en ég stefni á að verða búin að því fyrir 12.október - afhverju þá... kannski afþví að ég er í fríi í skólanum 11. og 12. október og þá sé ég smugu á að hafa tíma til að gera þetta vel ;)  En endilega kíkið við ég gæti komi ykkur á óvart fyrr.

Bestu kveðjur til ykkar allra sem nennið að fylgjast með okkur mæðginum.  Ég veil líka að ég þarf að taka mig á í kvittinu hjá öðrum ;) en aftur komum við að tímelysinu....

love you all ;)

22. September 2007 - 20:25

 
 

Ţađ er veriđ ađ uppfćra...

tekur smá tíma - vona að þið sýnið biðölund, það eru komnar nokkrar myndir frá ættarmóti sem föðurfjölskyldan mín var með á Goðalandi 24-26. ágúst s.l. á eftir að bæta fleiri myndum inn þar og svo koma  myndirnar úr brúðkaupi Þorbjargar og Gumma fljótlega. Læt þetta duga í bili.

3. September 2007 - 22:17