Berglind Elva & Róbert Sindri
Berglind Elva & Róbert Sindri
 
 
 

Páskafríiđ senn á enda

Við mæðgin búin að hafa það rosa gott - Róbert Sindri byrjaði fríið með mér hérna á Hvolsvelli, og var fram á þriðjudag - skellti sér svo norður á Blöndós til pabba síns og fjölskyldu yfir helgidagana í snjóinn og fjörið þar. hann er búinn að skemmta sér við ýmsa iðju og m.a. búinn að fara langleiðina upp á Hveravelli - þar sem fullt af fólki kom saman og lék sé í snjónum m.a. á snjósleðum og fjórhjólum.

Ég er svo aftur á móti búin að vera í huggulegheitum í mömmu&pabbakoti á Hvolsvelli og aðallega verið í slökun. Eitthvað hefur verið kíkt í skólabækur en ekki alveg jafn mikið og ég ætlaði. Við systurnar og foreldrarnir búin að eiga notalega stund.

Finnur bróðir skellti sér á sjóinn með stuttum fyrirvara og því aðeins Hilmar Tryggvi og pabbi hér í sveitinni af kk meðlimum fjölskyldunnar.  Magnea og Andrea lenntu í því skelfilega óhappi að 1 stk meri vatt sér upp á veg og í veg fyrirbílinn þeirra - bíllinn er ónýtur - það er aukatriði - þær sluppu betur en á horfðist líkamlega en vissulega er þetta skelfilegt að lífsreynsla sem gleymist ekki svo auðveldlega.

Læt þetta duga í bili - sjáumst hress

 

23. March 2008 - 13:59



Athugasemdir

Helga Dröfn

thihihii... páskar... Nú eru jól - hvar er fćrslan?

27. December 2008

Nafn


Texti