
Við mæðginin höfum ávallt nóg fyrir stafni - núna nýlega fór Róbert Sindri með skátunum upp að Úlfljótsvatni, þar sem hann eyddi helginni við leik og söng í góðum félagsskap. Hann var vígður inn í skátana og tilheyrir nú fálkahópnum í Skátafélagi Árbúa. Mjög stolt af stráknum og veit að þarna fær hann uppbyggilega fræðslu og sem höfðar til hans áhugamála.
Hjá mér er ávallt það sama - skóli og vinna, skóli og vinna en hef reyndar náð að skemmta mér smá, fór í dúndurafmælispartý til Steinunnar vinkonu minnar í janúar, hitti svo nokkrar stelpur úr SS og svo um síðustu helgi fór ég á árshátíð SS með mömmu og það var hrikalega gaman.
Það styttist svo í páskafrí en ég vonast til að eiga gott frí með syni mínum og fjölskyldunni fyrir austan ætlum að fara austur þann 14.mars og koma vonandi ekki í bæinn fyrr en 25. mars það er þó enn óráðið hvort Róbert Sindri verði fyrir austan allan þann tíma fer hugsanlega norður til föður síns og fjölskyldu yfir sjálfa páskahátíðina.
Auðvitað verður ekki slakað á í lærdómnum, þarf að lesa slatta í fríinu því þegar fríinu er lokið er rétt um mánuður í lokaprófin... trúi því eiginlega ekki hvað þetta hefur gengið hratt fyrir sig. alveg geggjað.
Það styttist svo í ferð okkar mæðgina ásmat mömmu og Anítu Þorgerðar til Helsinki, Finnlandi. Hlakka rosalega til.![]()
látum þetta duga í bili
Bestu kveðjur úr Árbænum
Berglind Elva og Róbert Sindri![]()
Skrifa athugasemd