Berglind Elva & Róbert Sindri
Berglind Elva & Róbert Sindri
 
 
 

mín ađ standa sig ;)

Árið ætlar að fara vel af stað hjá okkur mæðginum, ekki það að ég hefi yfir einhverju að kvarta frá árinu 2007 hehe

Róbert Sindri er svo duglegur að hjálpa til hér heima - svo erum við ofboðslega góðir félagar og það tel ég vera mjög mikilvægt.

Strákurinn er aldeilis búinn að fá útrás undanfarið í að sprengja og varla sést hér heima við í fjörinu. Ég er nú alveg búin að fá nóg af sprengjulátum - það keyrði um þverbak í gær hérna á þrettándanum, ég heyrði ekki í sjónvarpinu sama hvað ég hækkaði og sprengjulátunum ætlaði aldrei að linna. Er voða fegin að þessi tími er liðinn.

Svo er bara skóli og aftur skóli hjá okkur mæðginum. mánudaga - fimmtudaga taka skóli og vinna 1/2 sólahringinn, fer af stað rúmlega 7 og kem heim rúmlega 19 með því að fara beint í vinnuna. á föstudögum er ég búin fyrr í skólanum eða kl 12 þannig að það er voða ljúft. Ætla að reyna að vera dugleg að nota götin í skólanum til að læra svo ég þurfi ekki mikið að læra heima á kvöldin. Þá get ég eytt þeim tíma með syninum, þvottinn, tiltekt, eldamennsku og gera nesti... það er ljóst að tíminn fram á vor verður fljótur að líða

7. January 2008 - 09:59



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti