Berglind Elva & Róbert Sindri
Berglind Elva & Róbert Sindri
 
 
 

2007 á enda

Sælt veri fólkið - það mætti segja mér að hér sé á ferðinni latasti höfundur vefdagbókar á barnanetinu. Biðst velvirðingar á hvað ég skrifa stopult hér inn.

Síðan hann Róbert Sindri átti afmæli hefur ýmislegt á daga okkar drifið. Ég búin að klára prófin, náði öllu og náði meira segja betri árangri en ég þorði að vona eftir að hafa verið svona lengi frá námi.  En sú gamla er alveg að standa sig...  Róbert Sindri fer svo í sín miðsvetrarpróf núna strax í byrjun janúar.  

við mæðgin vorum orðin ansi hreint leið á þessari rigningu og stanslausa roki, urðum því afar glöð þegar að jörð fór að hvítna rétt áður en klukkan sló inn jólin. Sem betur fer því eitthvað var djúpt á jólaskapinu þetta árið - en það kom á endanum - þökk sé snjónum og samverunni við fjölskylduna

Árið hefur farið ágætustu höndum um okkur mæðgin og horfum við bjart fram til ársins 2008. Næstu mánuði munu  skóli og vinna eiga hug okkar að mestu leyti en þegar líða fer að sumri styttist í ferðina okkar til Helsinki - en þar sem ég komast ekki með saumaklúbbnum s.l. haust þá varð ég að nýta miðann seinna og ætlum við að dvelja í viku í Helsinki 4.-11. júni n.k.  Ég vil biðja alla sem eitthvað eru að íhuga brúðkaup eða slíkt að halda það ekki á þessum tíma þ.e. ef það á að bjóða mér (Berglind Elvu) 

Svo er planið að fara til USA ef ég vinn í Lottó - ég spila því lottó á hverjum laugardegi í veikri von um að komast í heimsókn til litlu fjölskyldunnar í Seattle....

Annars erum við bara kát og hress - höfum sloppið vel við ljótar pestir og unum því glöð við leik og störf.

takk fyrir í dag - ég ætla svo að reyna að standa mig betur í skrifum á vefdagbókinni

31. December 2007 - 00:02



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti