
það gerist nú ekki oft að þessi elska sé lasin, komumst að því áðan þegar ég fór með hann til doksa að við höfum ekki komið þangaði í 2 1/2 ár...
hann er sem betur fer bara með særindi í hálsi - enga streptokokasýkingu.. hvernig sem það á nú að skrifa þetta rétt.
Mér gengur bara prýðisvel í skólanum, -aðeins rúmar 4 kennsluvikur eftir og síðan taka við próf í 2 vikur ég ætti að taka 6 próf en eigi að taka aðeins 5 próf þar sem ég hef fengið gott á prófum í NÁT113. það er reyndar eini áfanginn sem býður upp á þennan möguleika.
Ég er búin að kynnast góðum manni sem er frá Svíþjóð - spennandi að vita hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir okkur tvö. Róbert Sindra líst bara mjög vel á Fredrik enda ekki hægt annað. Hann er bara ske,,tilegur, góður og yndislegur. Hvers manns hugljúfi.
En eg læt þetta duga í bili- ætla að horfa á ein DVD mynd með syninum áður en ég fer að skúra ;)
Hæ,hæ og takk fyrir lykilorðið ;-) Vonandi batnar þér fljótlega Róbert Sindri... Og Berglind mín ekkert smá dugleg í skólanum eins og þér er von og vísa, gangi þér rosalega vel í prófunum..
p.s. er að drepast úr forvitni og þarf að heyra meira um þennan Fredrik hmm... he.he.he.he...
Kv. Þórunn Sigþ.
hafa þá bloggfærslurnar færst hingað? :)
Gangi þér áfram vel duglega.. Jag håber att ni ha det jättefint du och Fredrik híh´hiíhí... Ég þarf greinilega að fara að lesa á sænsku aftur - úff man ekki hvernig þetta er allt skrifað - hrikalega sem maður er fljótur að ryðga!
Ha det bra allihopa. puss och kram