
Ótrúlegt hvað tíminn líður, hjá okkur mæðginum er allt gott að frétta. Tímamót hjá okkur báðum núna í vor þegar Róbert Sindri útskrifast úr grunnskóla og ég úr háskóla. Við erum þó hvergi nærri hætt því við höfum sótt um áframhaldandi nám. Róbert Sindri sótti um í MK og stefnir á að verða matreiðslumaður og ég sótti um meistaranám í HÍ í Náms og starfsáðgjöf þannig að það eru spennandi tímar framundan.
Í sumar höfum við bæði fengið sumarvinnu hjá SS, Róbert Sindri verður á Hvolsvelli og mun búa þar hjá mömmu en ég fer í afleysingar í söludeild SS. Vonandi komumst við í einhverjar útilegur og fjallgöngur í sumar. Það er allaveganna á stefnuskránni.
Þar til 2014.....
kveðja
Berglind Elva & Róbert Sindri
Skrifa athugasemd