Ragnar Úlfur Norðfjörð
 

Mjólkur ofnæmi (eggja ofnæmi)

Ofnæmi

Okkur til mikillar gleði kom fram í síðasta ofnæmisprófi að Úlfur er ekki með mjólkur, eggja eða önnur fæðuofnæmi lengur og má því borða allan mat, byrja rólega samkvæmt læknisráði. Hann mældist með kattarofnæmi.

Ragnar Úlfur er með ofnæmi fyrir mjólk! 

Það þýðir að hann má ekki borða neitt sem inniheldur mjólkurprótein.

Vegna fæðuofnæmisins þá má Ragnar Úlfur ekki fá aðra þekkta ofnæmisvalda fyrr nema að takmörkuðu leiti.

13. janúar 2010 OKKUR TIL MIKILLAR GLEÐI  

þá er Ragnar Úlfur ekki lengur með eggja ofnæmi. Hann má því fara að smakka mat (í litlu mæli til að byrja með) sem inniheldur egg. Hann er því miður enn með töluvert mjólkur ofnæmi og má alls ekki fá neitt sem inniheldur mjólkurprótein. Hann er farin að drekka soja mjólk (provamel kalkbætta) og líkar hún mjög vel. Við notum líka olivio viðbit á brauð fyrir hann (þetta er þykjustu smjör). Hann má nú fara að smakka fisk, en bara lítið til að byrja með samkvæmt ofnæmislækninum. Hann hefur smakkað mat sem inniheldur tómata og ekki orðið meint af, þannig að matseðillinn verður smátt og smátt fjölbreyttarri. Hann fer aftur í ofnæmispróf næsta haust.

 

 

 

Þekktir ofnæmisvaldar:

Prótín:

Flest prótín í fæðu geta valdið ofnæmi. Reyndin er hins vegar sú að tiltölulega fáar fæðutegundir valda stærstum hluta bráðaofnæmis. Í flestum þessum fæðutegundum eru það fleiri en eitt prótín sem geta valdið ofnæmi. Hér á landi eru þetta sömu fæðutegundir og annarsstaðar í heiminum:

  •       Mjólk
  •       Egg
  •       Fiskur
  •       Skelfiskur
  •       Jarðhnetur/trjáhnetur
  •       Sojabaunir
  •       Ertur
  •       Rækjur
  •       Hveiti

Mikilvægt er að lesa innihaldslýsingar allra matvæla og treysta ekki þeim matvælum sem ekki eru merkt á fullnægjandi hátt.

Matreiðsluáhöld sem notuð hafa verið í fæðu sem veldur ofnæmi hjá einstaklingi má ekki nota við meðhöndlun fæðu sem elduð er sérstaklega fyrir hann (Fæðuofnæmi. 1999:14. Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, barnalæknir og sérfræðingur í ofnæmis- og ónæmissjúkdómum).

Matur sem helst er hætta á að sé ofnæmisvaldandi.

  •     Glúteinrík korn (t.d. hveiti, hafrar og rúgur)
  •     Mjólkurvörur
  •     Egg
  •     Hnetur
  •     Jarðhnetur
  •     Sítrusávextir
  •     Tómatar
  •     Jarðaber
  •     Kiwi
  •     Baunir
  •     Soja/Tofu
  •     Laukur
  •     Hvítur sykur
  •     Svína- og nautakjöt
  •     Aukaefni (E-efni tilbúin efni)
  •     (Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða? 2007:14. Ebba Guðný Guðmundsdóttir).

Eggjaofnæmi

Ofnæmisvaldurinn er í eggjahvítunni. Það er hinsvegar aldrei hægt að treysta á að eggjarauðan sé ómenguð. Það hafa skapast hættuleg tilvik þar sem eggjarauðan var notuð í mat sjúklings með eggjaofnæmi.

Egg:

Albumin, binder, coagulant, emulsifier, globuline, lecitin, livetin, lyzozym, ovamucoid, ovovithellin, vitellin.

Egg finnast í:

Brauði, kökum, pasta, spaghetti, majónesi, ís, sósum og unnum kjötvörum, (Gríms fiskibollum).

 

Mjólk

Mjög lítið magn af mjólurprótínum getur valdið ofnæmiseinkennum hjá næmum einstaklingum. Jafnvel minnsta mjólkurmengun annarra matvöru eða innandað mjólkurduft getur valdið alvarlegum einkennum.

Mjólkurprótín finnst í:

Öllum mjólkurvörum, brauði (flest í lagi), kexi, kökum, bökum, unninni matvöru, sælgæti, súkkulaði, mörgum tegundum af morgunkorni, smjörlíki (flest í lagi) og ostum.

Innihaldsefni sem benda til þess að mjólkurprótín sé í matvöru:

Butter, carmel flavor, casein, caseinate, cheese, cream, curds, lactalbumin, milk, „high protein flavor“, lactose, „natural flavoring“, rennet casein, solids, sour cream, whey, yogurt.

Í einstaka tilfellum er mjólk notuð til að mýkja mat og er þá e.t.v. merkt sem „emulsifier“ eða „protein“. „vegatarian cheese“ þýðir aðeins að ostahleypir sem notaður var við framleiðsluna sé af jurtatoga (enginn mjólkurlaus ostur er til). Til er þurrmjólk sem búið er að meðhöndla þannig að prótínin eru niðurbrotin (Nutramigen) og er þessi mjólk yfirleitt alveg örugg (Fæðuofnæmi. 1999:14-15. Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, barnalæknir og sérfræðingur í ofnæmis- og ónæmissjúkdómum).

Innihaldsefni sem benda til þess að mjólkurprótín sé í matvöru:

Enskur list:

Butter, carmel flavor, casein, caseinate, chees, cottage cheese, cream, curds, lactalbumin, milk, high protein flavor, lactose, natural flavoring, rennet casein, Shortening,solids, sour cream, skimmed milk, whey, yogurt og í einstaka tilfellum er mjólk notuð til að mýkja mat go er þá e.t.v. merkt sem emulsifier eða protein.

Danskur Listi:

Animalsk fedtstof, animalsk protein, margarine, bagermargarine, inddampet mælk, kalcium kaseinat, kalium kaseinat, natrium kaseinat, lactalbumin, mælkebestanddele, mælkepulver/mælketorstof, ost, risbagemel, skummetmælkspulver, södmælkspulver, törmælk, valle, vallepulver/valleprotein (Ofnæmissíða Júlíans http://barnaland.is/barn/15361/vefbok/ ).

Matarlisti fyrir mjólkur og eggjaofnæmi

Þennan lista er að finna á heimasíðu astma- og ofnæmisfélagsins www.ao.is og á Ofnæmissíðu Júlíans http://barnaland.is/barn/15361/vefbok/ þar er einnig að finna uppskriftir sem eru eggja og/eða mjólkurlausar.

Munið að lesa vel á allar vörur sem keyptar eru líka þær sem eru á þessum lista. Matvælafyrirtæki geta breytt innihaldi vörunnar.

Ungbarnamatur:

  •       Brjóstamjólk
  •       Þurrmjólk sem heitir Nutramigen
  •       Korngrautar (ris, hirse, havre, bygg og fl) frá Holle, fást í Heilsuhúsinu og Fjarðarkaup.
  •       Gerber ungbarnagrautar. Lesa vel á allan annan pakkamat. Krukkumat þarf að lesa vel á sumt er í lagi t.d epli, perur, ferskjur og fl. en sumt ávaxtabland inniheldur mjólk.
  •       Gott er að sjóða og mauka sjálf ávexti, grænmeti, kartöflur, kjöt, kjúkling, fisk (eftir aldri barnsins) og bæta smá olíu út í. Gott er að frysta í litlum skömmtum. Þegar farið er að nota venjulegan hafragraut er gott að breyta til og setja smá kanil út í og eplamauk, stundum rúsínur

 

Matur:

  •       Grænmeti, allt t.d. gulrætur, blómkál, brokkál og fl.(soðið).
  •       Ávextir og ávaxtasafar allir.
  •       Sojamjólk til drykkjar og í alla matargerð og bakstur. ( Má fá)
  •       Sojajógúrt
  •       Grjónagrautur úr sojamjólk, gott að nota vanillusojamjólk til helminga. ( Má fá)
  •       Fiskur, allar tegundir. ( Má byrja að smakka í litlum skömmtum)
  •       Kjúklingur.
  •       Kjöt, allar feskar kjöttegundir, hamborgari, gott að búa til hakkbollur.
    Káess kjötvinnsla s:5870522-framleiðir kjötfars, bjúgu og fl. úr sojamjólkurpróteini (
    www.kaess.is). Verður að hringja og panta daginn áður.
  •       Kartöflumús úr pakka (frá Náttúra og fl. lesa vel).
  •       Danskar pylsur frá Pölsemesteren og Bratwurst frá SS.
  •       Lambanaggar, Sænskar kjötbollur og sælkerabollur frá Naggar (Norðlenska).
  •       Kjúklinganaggar og kjúklingabollur frá Móum.
  •       Allt kjötálegg frá Goða (Norðlenska) er í lagi, en lesa þarf vel á allt álegg t.d er mjólkurprótein í flest öllu frá SS.
  •       Kindakæfa, nestis kæfa, beikon kæfa og dönsk lifrarkæfa frá Goða.
  •       Skinka og Bacon lifrakæfa frá Ali.
  •       Eggjalaust majones frá GUNNARS ( ath eggjalaus kokteilsósa inniheldur mjólk).
  •       Eggjalaust remólaði frá GUNNARS
  •       Grænmetiskæfur frá Tartax (fást í Heilsuhúsinu, Fjarðarkaup og allavega ein teg. í Hagkaup).
  •       Kjúklingaálegg frá Holtabúinu.
  •       Pasta eggjalaust t.d frá Barilla.
  •       Nutana jurtasmjör eða Rapunzel(til bæði sólblóma og soja). Fást í Heilsuhúsinu og Fjarðarkaup.
  •       Smjörlíki, flest allt.
  •       Olíur t.d. olívuolía og ISIO4.
  •       Cherios, Honey nut Cherios, Korn flakes og Cocoa puffs.
  •       Flest öll brauð í lagi. Skoða heimasíðu Myllunnar.
  •       Pylsubrauð og hamborgarabrauð frá Myllunni.
  •       Flatkökur.
  •       Beyglur.
  •       Rúgbrauð frá ömmubakstri. ( passa sig á öðrum teg. innih. súrmjólk).
  •       Kringlur í lagi í sumum bakaríum t.d kornið en oft er notað mjólkurduft eða mysuduft t.d í bakaríum myllunnar þ.e í.Hagkaup, Nóatún og Bónus
  •       Snúðar m/glassúr í bakaríi Fjarðarkaups, Korninu Hjallabrekku Kóp. Kökuhúsið.
    Passa þarf að spyrja í bakaríum um snúða oft er notaður mjólkursykur t.d. hjá Bakarameistaranum.
  •       Ritz kex.
  •       Súkkulaði Póló(súkkulaðihúðað kókoskex frá Frón)
  •       Piparkökur(mildar og ljúffengar í kexpakka frá Frón)
  •       Hafrakex frá Frón
  •       Snap Jacks Fruit og Snap Jacks Country.
  •       Hrökkbrauð og bruður.
  •       Carr´s Table Water (vatnskex).
  •       Tom & Jerry kex frá Göteborgs.
  •       Catbury’s fingers noir kex.
  •       Piparkökur frá Góð kaup (Fæst í Hagkaup og Bónus).
  •       Nesquik kakómalt.
  • Bakstur:
    Góður bæklingur með eggjalausum uppskriftum er til og hægt er að nota sojamjólk eða Rice mjólk í staðinn fyrir mjólkina sem er í uppskriftunum. 
    Suðusúkkulaði.

Nammi:

  •       Konsum suðusúkkulaði.
  •       Rúsínur með konsum suðusúkkulaði frá Nóa-Síríus .
  •       Dökkar súkkulaðirússínur frá Góu.
  •       Hlaup/gúmmí.
  •       Lakkrís m/marsipan frá appollo.
  •       Snakk(flest allt nema ostasnakk).
  •       Saltstangir (ath. mjólk í saltkringlum frá Lorenz).
  •       Örbylgjupopp (passa sig á popp secret, það inniheldur léttmjólk).
  •       Rúsínur og döðlur.
  •       Frostpinnar án súkkulaðis t.d. frá kjörís (Leiftur, Stjörnu, Ananas).
    Frá Emmess (Ananas).
  •       Tímon og Púmba frostpinni frá Nestlé
  •       SunLolly klakar.
  •       Soja ís (súkkulaði, jarðaberja, vanillu). ( Eftir 2ja ára)
  •       Íssósa (súkkulaði og fl. lesa vel.) frá Emmess og Kjörís.

Annað:

  •       Enginn mjólkurlaus ostur er til, sojaosturinn inniheldur smá magn af mjólk.
  •       Það er mjólk í kjötfarsi og flestum unnum kjötvörum, en hægt að panta frá Káess í s:5870522.
  •       Allur pakkamatur inniheldur einhver mjólkurduft t.d pakkasósur, best að gera sósur sjálfur úr teningum og þykkja með hveitijafning.
  •       Kentucky Fried chicken notar mjólkurduft í blönduna sem fer utan á kjúklingana.
  •       McDonald´s hamborgari án osts og franskar er í lagi.  Franskarnar eru steiktar sér í olíu þannig að ekkert smit á sér stað.
    Þeir sem þurfa að passa upp á smit geta hringt á undan sér á McDonald´s og látið vita þannig að einn starfsmaður sjái um pöntunina með viðeigandi ráðstöfun, ostur er ekki settur á hamborgara á pönnunni heldur þegar maturinn er kominn í öskjuna. Kjúklinganaggar, Kjúklingaborgarar, Kjúklingar og fiskborgarar innihalda mjólk og/eða egg.  Barnabox er frábær lausn í barnaafmæli.  Hægt er að hringja í Sigríði s:5517444 á skrifstofutíma ef vantar einhverjar upplýsingar um innihald, einnig er heimasíða md.is.

Uppskriftir:

"Hjördísarkökur"

100 gr smjör/smjörlíki

100 gr sykur

75 gr kókósmjöl

1 tsk lyftiduft

150 gr hveiti

70 gr súkkulaðibitar

70 gr haframjöl

180°c í ca 10 mín.

Spesíur

100 gr smjörlíki

500 gr hveiti

150 gr flórsykur

Hnoðað saman í lengjur, sett í ísskáp, skorið í litlar kökur og bakað við 200° þar til ljósbrúnar. Gott að dýfa í súkkulaði til helminga þegar þær kólna.

 

Súkkulaðikúlur:

3 dl hveiti

1 dl sykur

1 tsk lyftiduft

2 msk kakó

100 gr smjörlíki

vanilludropar

Hnoðað, rúllað í lengjur, mótaðar kúlur og bakað við 200°í 12 - 15 mín.

 

Muffins:

150 gr smjörlíki

1 dl sykur

- hræra vel saman og bæta svo út í:

1 dl eplamauk/1 þroskaður banani

3,5 - 4 dl hveiti

2 tsk lyftiduft

(má setja kakó í 1/2 af deiginu til tilbreytingar)

-hella í muffinsform, baka við 180°í u.þ.b. 15 mínútur.

 

Möndlukaka með glassúr:

100 gr smjörlíki

1 dl sykur

-Hræra saman þar til ljóst og létt

1/2 dl olía

3 dl hveiti

1,5 tsk. lyftiduft

1 dl ávaxtasafi

1 tsk möndludropar

-Öllu hrært saman í stuttan tíma. Sett í kringlótt form og bakað í miðjum ofni á 180° í ca. 30 mín.

Glassúr: Flórsykur, smá volgt vatn og vanilludropar. Skreytt að vild.

 

Kókóskúlur:

75 gr smjörlíki

1 dl sykur

1 msk vanillusykur

3 dl haframjöl

175 gr brætt súkkulaði (eða kakó)

2 msk vatn

- Öllu hnoðað saman, búnar til kúlur, velt upp úr kókosmjöli, kælt. (Ekki bakað).

Hjónabandssæla:

175 gr hveiti

175 gr haframjöl

150 gr sykur

160 gr smjörlíki

1 tsk natron (matarsódi)

-sulta

Deigið hnoðað saman, rúmur helmingur settur í kringlótt form, sulta yfir og loks afgangurinn af deiginu. Bakað við 180° þar til passleg bökunarlykt og litur er á kökunni.

Döðlubotni

60 gr smjörlíki/olía

130 gr púðursykur

1 tsk lyftiduft

1/2 tsk salt

85 gr hveiti

200 gr brytjaðar döðlur

Kakan bökuð við 180°c í 25-30 mín.

Hjúpur

Bræðið saman:

200 gr súkkulaði

20 gr smjörlíki

 

Vöfflur án eggja.

2 dl hveiti eða heilhveiti
1 msk sykur

1 tsk lyftiduft

2 tsk vanillusykur

1/2 tsk kardemomma (ef vill)

1 1/2 - 2 dl mjólk eða vatn.

1 msk brætt smjörlíki eða matarolía.

Aðferð:

* bræðið smjörið við vægann hita.
* blandið þurrefnum saman.
* hrærið 1 1/2 dl af mjólk eða vatni saman við ásamt bræddu smjörlíki eða matarolíu.
* látið deigið bíða um stund og bætið mjólk/vatn í ef vill. Degið á að vera fremur þykkt.
* Bakið degið, berið fita á járnið ef þörf krefur.

Þetta er lítil uppskrift og ég 2 falda hana alltaf

Ég baka þetta oft í hádeginu um helgar og borða með smjöri og ost. Þá 2 falda ég uppskriftina og set 2 dl af hveiti og 2 dl af t,d múslí, haframjöl, eða einhverskonar grófu korni og þá verður þetta hollara og rosalega gott.

 

Kanilhringir.ca 30-35 stk.

125 gr smjörlíki

100 gr hveiti

1/2 dl kartöflumjöl

50 gr sykur.

Hnoðað. Geymt í kæli í sólarhring.

Flatt út og stungnar út kökur með gati í miðjunni eða notoð hakkavélina á hrærivélinni (eins og vanilluhringir) penslið með olíu og dreifið kanilsykri yfir.
Bakað neðst í ofni við 200 gráður í ca 8 mín

 

Piparkökur

200g sykur

200g síróp

6 msk vatn

500g hveiti

1 tsk kanill

1 tsk negull

1 tsk engifer

2 tsk matarsóti

100g smjörlíki

Hafið smjörlíkið við stofuhita ásamt öðru hráefni, setjið í hrærivélarskálina og vinnið rólega saman. Þegar deigið er vel blandað skal stöðva vélina strax, annars verður deigið klesst. Setjið deigið í plastpoka og geymið yfir nótt. Rúllið út deigið og setjið ávallt hveiti undir. Stingið út að eigin geðþótta. Þetta deig er mjög gott í piparkökuhús, stór hjörtu og alls konar stóra hluti til að geyma. Bakið deigið við 180-190 gráður. Smákökur bakast í ca. 10 mín., og stærri hlutir bakast lengur.

 

Smjörkökur

2 bollar smjörlíki

1 bolli púðursykur

1/4 tsk. salt

4 bollar hveiti

Smjörið verður að vera við stofuhita. Hitið ofninn á 150°C. Hrærið smjörið þar til það er orðið eins og þeyttur rjómi, í sér. Hrærið sykrinum út í. Saltið. Setjið hveitið út í, einn bolla í einu, hrærið eftir hvern bolla. Hnoðið deigið á borði sem búið er að strá hveiti á. Mótið kökur að þeirri lögun sem þið viljið. Sniðugt að nota kökujárn. Setjið á ósmurða plötu og bakið í 20 mín., eða þar til kökurnar eru orðnar ljósbrúnar.

Súkkulaðismjörkökur

1 bolli smjörlíki

3/4 bolli flórsykur

1½ bolli hveiti

nokkur saltkorn

1/3 bolli kakó

Hitið ofninn á 150°C. Smjörið verður að vera við stofuhita. Hrærið smjörið þar til það er orðið mjúkt. Hrærið flórsykrinum út í. Setjið hveiti, salt og kakó út í og hrærið vel. Ef deigið er mjög mjúkt þarf að kæla það í ísskáp í u.þ.b. 1/2 klst. Mótið kúlur úr deiginu og setjið þær á ósmurða bökunarplötu með svolitlu millibili. Fletjið kúlurnar með gaffli. Bakið í 20 - 25 mín. Takið úr ofninum, kælið og takið þá af plötunni.

 

Banana og döðlusmákökur (án eggja)

2 bananar, maukaðir

1 bolli döðlur, saxaðar

1/3 bolli matarolía

2 bollar haframjöl

1/2 bollar saxaðar valhnetur (?)

1/2 tsk. salt

1 tsk. vanilla

Hitið ofninn á 180ºc. Blandið saman banönum, döðlum og matarolíu. Bætið höfrum, hnetum, salti og vanillu út í; blandið lítillega. Látið standa í nokkrar mínútur. Setjið með teskeið á bökunarpappír á bökunarplötu. Bakið í 25 mín. eða þar til þær eru tilbúnar

 

Kókosdraumar (án eggja)

200 g smjör,

1 1/2 dl sykur,

1 tsk vanillusykur,

2 1/2-3 dl kókosmjöl,

2 tsk hjartasalt,

300 g (5 dl) hveiti

Hrærið smjör og sykur létt og ljóst. Blandið kókosmjöli og hjartasalti út í og að lokum hveitinu. Setjið deigið með teskeið á smurða bökunarplötu eða mótið úr því lengju og sneiðið hana niður. Bakið við 150°C í u.þ.b. 20 mínútur. Geymið í vel lokuðum plastpoka á köldum stað eða í frysti.

Ýmislegt:

  •       Hægt er að breyta flestum uppskriftum með því að setja hrísmjólk eða sojamjólk í staðin fyrir venjulega mjólk.
  •       Hægt er að nota soyjamjöl í staðin fyrir egg, þá 1 msk sojamjöl fyrir eitt egg og svo vökva í svipuðu magni og  eitt egg. best að setja vökvan síðast svo að deigið verði ekki of blautt.
  •       Hér er frábær síða hjá Myllunni fyrir þá sem eru með ofnæmi http://www.myllan.is/mb_ofnaemi.asp

Grein fengin af Vísindarvefnum

www.visindarvefurinn.is11.10.2004 | 10:22

Nýlegar rannsóknir sýna að algengi fæðuofnæmis er 2-8% hjá börnum og 1% hjá fullorðnum. Í sumum löndum eru þessar tölur þó sennilega eitthvað hærri. Fyrir fullorðna eru þetta mun lægri tölur en búist var við og virðist fæðuofnæmi ekki vera eins algengt meðal fullorðinna og talið hefur verið. Samkvæmt þessum nýju tölum er fæðuofnæmi hjá börnum hins vegar nokkru algengara en lengst af hefur verið álitið og á það einkum við um fyrsta aldursárið.

Áhugi vísindamanna á þessu fyrirbæri er mikill en fæðuofnæmi getur valdið alvarlegum veikindum og jafnvel dauða. Eins og tölurnar að ofan sýna er oft um að ræða ofnæmi hjá börnum sem eldist af þeim á unglingsárum eða snemma á fullorðinsárum. Algengustu orsakir ofnæmis meðal fæðutegunda eru kúamjólk, hænuegg, jarðhnetur, fiskur og skelfiskur en ýmiss konar kornmatur, sojabaunir og prótein úr frjókornum koma einnig við sögu.

Fæðuofnæmi og fæðuóþol lýsa sér oft með svipuðum einkennum en eru tvö ólík fyrirbæri. Fæðuofnæmi, eins og allt annað ofnæmi, stafar af eins konar ofvirkni í ónæmiskerfinu gegn vissum efnum og við það myndast mótefni í líkamanum. Þegar þessi mótefni tengjast ofnæmisvaldinum (í þessu tilviki efnum í fæðu) losna úr læðingi ýmis taugaboðefni og hormón sem valda einkennum frá húð (útbrot, kláði, ofsakláði), blóðrás (blóðþrýstingsfall), öndunarfærum (hósti, hrygla, nefrennsli, hnerrar, barkakýlisbjúgur og öndunarerfiðleikar) og meltingarfærum (ógleði, uppköst, samdráttarverkir, vindgangur, niðurgangur og ristilbólga).

Fæðuóþol stafar hins vegar oftast af því að ekki er hægt að brjóta niður viss efni í fæðunni vegna þess að líkamann skortir viðkomandi ensím (efnahvata), og af því hljótast ýmis óþægindi, sem í mörgum tilfellum eru þau sömu og verða við fæðuofnæmi.

Efnin sem valda fæðuofnæmi eru oftast frekar lítil prótein af þeirri gerð sem kallast sykurprótein (glýkóprótein). Þau þola vel hita, sýru og ýmislegt annað áreiti þannig að þau skemmast ekki við venjulega matreiðslu. Ekki er vitað hvers vegna þessi tegund próteina hefur svo mikla tilhneigingu til að valda ofnæmi.

  •       Í kúamjólk eru meira en 20 prótein af þessari gerð og vitað er að minnsta kosti fimm þeirra geta valdið ofnæmi. Þeir sem hafa ofnæmi fyrir kúamjólk hafa yfirleitt einnig ofnæmi fyrir mjólk úr geitum og kindum.
  •       Hænuegg eru einnig algengur ofnæmisvaldur, einkum hjá börnum. Lengi hefur verið talið að fólk hafi einkum ofnæmi fyrir hvítunni en síður rauðunni en ekki er vitað með vissu hvort þetta er rétt. Í eggjahvítu eru þekkt þrjú prótein sem geta valdið ofnæmi.
  •       Jarðhnetur eru einn kröftugasti ofnæmisvaldur sem við þekkjum meðal fæðutegunda. Þekkt eru tvö prótein í jarðhnetum sem valda ofnæmi.
  •       Mjólkur- og eggjaofnæmi eru algengust meðal barna og eldast oft af fólki (í u.þ.b. 40% tilfella) en það gerist ekki með jarðhnetuofnæmi. Þeir sem fá ofnæmi fyrir jarðhnetum sitja oftast uppi með það alla ævi.
  •       Nokkrar korntegundir geta valdið ofnæmi og í hveiti er vel þekkt eitt prótein sem hefur slíka eiginleika. Frjókorn blóma, trjáa og grasa innihalda efni af próteinfjölskyldu sem nefnast prófilín. Þessi efni geta valdið ofnæmi hvort sem þau eru borðuð eða fólk andar þeim að sér.
  •       Eitt af því sem hefur vakið athygli á síðustu árum er að fæðuofnæmi virðist stundum geta valdið ungbarnakveisu og ristilbólgu. Ungbarnakveisa stafar þó aðeins í 10-15% tilvika af fæðuofnæmi. Ristilbólga í börnum á fyrsta ári getur stafað af fæðuofnæmi og virðist álíka algeng hjá pelabörnum og brjóstabörnum en er venjulega vægari hjá brjóstabörnunum. Minna er vitað um hvort ristilbólga hjá fullorðnum getur stafað af fæðuofnæmi en ekki er útilokað að svo sé í vissum tilvikum.
  •       Enn sem komið er er besta meðferðin fólgin í því að forðast vandlega allan mat sem viðkomandi hefur ofnæmi fyrir en þetta kann að breytast á næstu árum. Þekkingu okkar á eðli fæðuofnæmis fleygir fram og með aukinni þekkingu opnast ævinlega fyrr eða síðar nýir meðferðarmöguleikar.

LISTI YFIR MJÓLKUR OG EGGJARLAUST FÆÐI. GÓÐ REGLA AÐ LESA ALLTAF UTAN Á UMBÚÐIRNAR ÞVÍ AÐ FRAMLEIÐENDURNIR GETA BREYTT INNIHALDINU.

ÁLEGG

Hangikjöt

Ítölsk Salamí (ALÍ)

Jurtasmjör í Heilsuhúsinu og Fjarðarkaup

Sardínur í tómatsósu (ORA)

Smurkæfa (GOÐI)

Spægipylsa (HEILSUHÚSIÐ)

Kindakæfa (ALI)

ÁVEXTIR/GRÆNMETI

ALLT LEYFILEGT

BRAUÐ

Beyglur fínar frosnar frá Samsölunni

Fjölskyldubrauð (MYLLAN)

Flatkökur (KÖKUGERÐI HP/ ÖMMUBAKSTUR)

Flour Tortillas (CASA FIESTA)

Hamborgarabrauð (MYLLAN)

Heimilisbrauð (MYLLAN)

BÖKUNARVÖRUR
Akra smjörlíki

Cocoa (CADBURY´S & HERSHEY´S)

Haframjöl

Hveiti

Kakóduft hreint

Ljóma smjörlíki (?)

Lyftiduft

Sykur

KJÖT/FISKUR

Fiskur (eftir 2ja ára)

Kjúklingur
Lambakjöt
Nautakjöt
Svínakjöt
Kjúklinga Nuggets (FERSKIR KJÚKLINGAR/MÓAR)

KRYDD

Grönsagsbulliogn Knorr

Nautakraftur (HONIG)

Soya sósa

Taco seasoning mix (CASA FIESTA)

Season All (MC CORMICK)


MORGUNKORN

Ceerios

Coco Puffs (GENERAL MILLS)

Kornfleks (KELLOG´S)

Havre Fras (QUAKER)

Honey Nut Cherrios (GENERAL MILLS)

Rice Krispis (KELLOGGS´S)

NIÐURSUÐUMATUR

ASPAS

ÁVEXTIR Í DÓS

BAKAÐAR BAURNIR (HENZ)

DICED TOMATO (HUNTZ)

GRÆNARBAUNIR

GULÆTUR

MAÍSKORN

STARDÍNUR Í TÓMATS(ORA)

TÓMATAR Í BASILIKU (ORA)

TÓMATAR CHOICE CUT ITAL.STYLE HERB(HUNTS)

TÓMATAR HEILIR/SAXAÐIR(ORA)

TÓMATAR PAPRIKU+LAUK(ORA)

TÓMATAR SVEPPI+HVÍTLAUK(ORA)

TÓMATARPÚRRA (HENZ/HUNTZ/SLOTS)

TÓMATSÓSUR CARLIC+HERBS(HUNTS))

TÓMATSÓSUR ITALIAN STYLE (HUNTS)

TÓMATSÓSUR SPECIAL (HUNTS)

WHOLE TOMATO (HUNTS)

STEWED TOMATOES (HUNT´S)

DRYKKIR

DJÚS

KÓKÓMALT (NESQUICK)

SOYAMÓLK (PROVAMEL) (Eftir 2ja ára)

VATN

FRYSTIVARA

BLOMBERGS POP UPS

FROSTPINNAR ÁN SÚKKULAÐIS

MCAIN FRANSKAR

SUN-LOLLY

ÞYKKVABÆJAR FRANSKAR

KEX

ABC BOKSTAV

BRAUÐ OSÖTADE FULLKORN(KRISPROLLS)

BRAUÐ VETE SKORPOR(KRISPROLLS)

COUNTRY SNAP JACKS (BURTONS)

HAFRAKEX DEGESTIVE (MCVITES)

HRÖKKBRAUÐ CRISPY THIN (KAVLI)

HRÖKKBRAUÐ FLATBRÖD (KAVLI)

HRÖKKBRAUÐ FLAV.HIGH FIBRE (RY VITA)

HRÖKKBRAUÐ FRUKOST (WASA)

HRÖKKBRAUÐ HUSMAN EKO(WASA)

HRÖKKBRAUÐ KORNA FLATBRÖD (KAVLI)

HRÖKKBRAUÐ LIGHT RYE (RY VITA)

HRÖKKBRAUÐ RAGE (WASA)

HRÖKKBRAUÐ SESAM (WASA)

HRÖKKBRAUÐ SPORT (WASA)

LU TUC CRACERS SESAME

LU TUC CRACERS NATURAL

MUMIN KEX

PIPARKÖKUR KUNG OSCAR (GÖTEBORG)

RITZ KEX

RÍS BRAUÐ(FRÓN)

SESAMKEX MEÐ TREFJUM (FRÓN)

TABLE WATER CRACKERS (JACOB´S)

TEKEX (FRÓN)

TEKEX BRAN CRACKERS (JACOB´S)

TEKEX CHOICE GRAIN (JACOB´S)

FINN CRISP (VAASANA&VASAN)

KRISPROLLS(PAGEN)

SNAKK

SALTSTANGIR (PAULY)

SALTSTANGIR (STAR SNACKS)

SHOE STRINGS (PIK NIK)

ÖRBYLGJUPOPP NATURAL (NEWMAN´S OWN)

ÖRBYLGJU POPP NATURAL (ORVILLE)

SÚPUR/SÓSUR

HUNT´S OLD COUNTRY SPAGHETTI SAUCE

KÍNASÚPUR (BLUE DRAGON)

PASTASÓSA MARINARA STYLE (NEWMAN´S OWN)

PASTASÓSA MARINAR W/MUSHROOMS(NEWMAN OWNS)

PASTASÓSA VENETIAN PASTA (NEWMAN´S OWNS)

PIZZA SÓSA (HUNTS)

SALSA DIP (CASA FIESTA)

SALSA SÓSA (NEWMAN´S OWN)

TÓMATSÓSA (HENZ, LIBBY´S, HUNTS)

TÓMATSÓSUR CARLIC+HERB (HUNTS)

TÓMATSÓSUR CHILI (HUNTS)

TÓMATSÓSUR ITALIAN STYLE (HUNTS)

TOMATSÓSUR SPECIAL (HUNTS)

PASTASÓSA (UNCLE BENS)

ÝMISLEGT

HRÍSGRJÓN

OLÍUR

PASTA ÁN EGGJA

SPAGETTI ÁN EGGJA