

11. Febrúar 2011.
Mamma og pabbi voru í litlu stuði til að elda einn föstudaginn og voru mikið að pæla hvað þau ættu að borða í kvöldmatinn. Pabbi stakk upp á því að við færum bara út að borða. Veitingastaðurinn Madonna varð fyrir valinu og mamma segir við Thelmu Karen að klæða sig í skó og úlpu því við værum að fara út að borða.... eftir smá stund sáu mamma og pabbi Thelmu Karen brasa við að ýta stólum að útidyrahurðinni... þegar hún ætlaði svo að fara ýta eldhúsborðinu af stað spurði mamma hvað hún væri eiginlega að gera. "Nú.. þú sagðir að værum að fara út að borða mamma". Hún tók þessu doldið bókstaflega litla skottið.