Óli Viðar og Ragnar Guðberg
 

Gestabók

Didda og Guðmann

Er að skoða myndirnar af þér Óli Viðar þú ert orðin svo stór strákur enda orðin 3 ára til hamingju með afmælið, biðjum að heilsa mömmu.

Skrifaš žann 21. August 2008 14:27.

Pabbi

Jæja elsku kallinn minn. Núna er mánudagsmorgun og ég er alveg að fara uppí flugstöð til að fljúga til Danmerkur. Mikið á ég eftir að sakna þín en það var gaman að hitta svona lengi á þig í gær uppí bústaðnum. Langt síðan að maður kom þangað síðast. Vertu nú góður og þægur hjá mömmu og fósturpabba þínum og líka afa og ömmu. Sjáumst svo í desember litli engillinn minn.

Skrifaš žann 14. July 2008 06:32.

Sólveig

eða ætti maður kanski bara að fara útá skagaströnd ef maður vill sjá þá vel? ;)

Skrifaš žann 7. July 2008 19:33.

Sólveig

hæ hæ
Til hamingju með afmælið um daginn, vonandi áttiru góðan dag.
það var æðislegt að sjá myndböndin af ísbjörnunum, við verðum greinilega að skreppa einhvern daginn til Álaborgar að skoða ísbyrnina þar, því þeir sjást ekki svona vel í köben og það eru bara mörgæsir hér í óðinsvé.
kveðja Sólveig og co

Skrifaš žann 7. July 2008 19:32.

Sirrý og Svala Rún

Elsku Óli Viðar, til hamingju með 3ja ára afmælið þann 1. júlí.
Vonandi hafðir þú það gott ;)

Biðjum vel að heilsa.
Sirrý og Svala Rún

Skrifaš žann 4. July 2008 14:52.

Asdis

Til hamingju með afmælið um daginn.
Kveðja frá Florida
Asdis, Sarah og Nathan

Skrifaš žann 3. July 2008 02:13.

ÓLÖF

ELSKU OLI VIÐAR TIL HAMINGJU MEÐ 3 ÁRA AFMÆLIÐN SJÁUMST Á EFTIR AMMA OG AFI

Skrifaš žann 1. July 2008 14:56.

Maja Hafnarfirði

Hæ hæ Óli Viðar Innilegar hamingjuóskir með 3 ára afmælið nú ertu orðin stór strákur við biðjum að heilsa ykkur öllum .Afmæliskveðjur Maja og Jón Hafnarfirði

Skrifaš žann 1. July 2008 13:16.

Pabbi

Alveg frábærar myndirnar frá Álaborg. Ég hló alveg helling þegar að ég skoðaði þær og þurfti að halda fyrir munninn til að vekja ekki Ölmu og Stínu og Sigga.
Mikið var svo gaman að vera með þér í dag og heyra þig segja pabbi í fyrsta sinn. Alma og Friðrik Rúnar sögðu að það hefði verið svo gaman að hitta á þig í dag og leika við þig.

Skrifaš žann 1. July 2008 01:34.

Rebekka og Ari Þór

Elsku fjölskylda
sendum ykkur okkar bestu kveðjur
knús og koss á alla
Rebekka og Ari

Skrifaš žann 27. June 2008 11:22.

Sólveig

Við samhryggjumst ykkur innilega vegna Settu ömmu ykkar, hún var yndisleg kona, alltaf svo góð, brosmild og glöð.

knús og kossar til ykkar.

Skrifaš žann 23. June 2008 18:44.

Sólveig

hæ hæ
gaman að sjá myndirnar af ykkur.
það væri gaman að fá ykkur í heimsókn, ætli við förum ekki annars fljótlega í Ikea í aarhus, við gætum kanski hist þar.
síminn hjá mér er 53492952
kveðja Sólveig frænka

Skrifaš žann 20. June 2008 09:07.

Maja Hafnarfirði

Hæ hæ þið öll í Álaborg gaman að sjá allar myndirnar Óli Víðar skemtir sér greinilega vel þarna orðin svo stór og myndarlegur vonandi verður áfram sól og sumar hjá ykkur bið að heilsa ykkur bless bless .Maja Hafnarfirði

Skrifaš žann 19. June 2008 07:39.

Asdis

Hi Óli og Guðbjörg.
Gaman að sjá ykkur í sólinni. Við elskum að vera í hitanum og á stöndinni það er geggjað hér.
Kveðja Ásdís og krakkarnir

Skrifaš žann 10. June 2008 04:50.

Maja Hafnarfirði.

Hæ Hæ Óli Viðar ég var að kíkja á myndirnar af þér þú ert mjög efnilegur hljóðfæraleikari.Flottar myndir úr sveitinni.Bið að heilsa ykkur öllum bless bless .Maja Hafnarfirði

Skrifaš žann 30. March 2008 10:15.

Júlía

Hæ hæ kæru mæðgin. Við erum á flakki á barnalandssíðum og ákváðum að kíkja við. Okkur vantar að vísu lykilorð til að skoða myndir en Bee movie þemað hérna á forsíðunni féll alveg í kramið hjá Ottó. Við fáum lykilorð hjá ykkur við tækifæri.

Hafið það gott í fríinu.

Kveðja, Júlía

Skrifaš žann 19. March 2008 11:02.

Elín Guðmanns

hæ hæ Óli Viðar Alltaf jafn gaman að skoða myndirnar af þér. Ég kíki reglulega við (en er voðalega löt að kvitta :o)
kv. Elín

Skrifaš žann 13. March 2008 15:25.

amma

Mikið ertu klár að spila á trommurnar og píanóið elsku Óli Viðar minn bið að heilsa ykkur . amma

Skrifaš žann 6. March 2008 23:10.

Alma Karen S. Snæland

Sæll frændi litli. Mikið er gaman að sjá hvað þú ert búinn að stækka en þú nærð mér nú samt ekki í bráð enda er ég orðin svakalega stór. Mamma mældi mig um daginn og þá var ég orðin 119 cm sem er náttúrlega rosalega mikið. Ég vildi að þú værir ekki svona langt í burtu svo við gætum leikið meira saman en það var gaman að hitta þig í sumar í bústaðnum í Húsafelli og leika við þig þar. Bless bless Óli Viðar og við sjáumst seinna. Kíktu á bloggsíðuna hennar mömmu og sjáðu myndir af mér þar.
Kær kveðja frá Ölmu Kareni.

Skrifaš žann 26. February 2008 23:37.

Auður og Raggi

Gaman að sjá hvað þú ert duglegur og brosmildur strákur. Vonandi hittum við þig í kvöld !

Skrifaš žann 26. February 2008 11:56.

Óli Pétur

Hæ hæ kallinn minn, voðalega finnst mér vera langt síðan ég sá þig síðast. Sem betur fer þá styttist óðum í að ég geti kíkt heim, bara tvær helgar í viðbót og nokkrir dagar. En mikið voðalega er alltaf gaman að heyra hvað þú ert góður við mömmu þína og duglegur að leika með boltana og bílana. Sakna rosalega að geta ekki leikið með ykkur...
kv. Óli Pétur pabbi

Skrifaš žann 25. February 2008 08:15.

Maja Hafnarfirði

Hæ hæ.Óli Viðar mikið eru flottar myndirnar af þér þú ert alltaf jafn brosmildur.Leiðinlegt að þú skulir vera lasinn en láttu þér nú batna fljótt bið að heilsa bless bless Maja

Skrifaš žann 5. February 2008 13:28.

Hæ hæ Óli Viðar
Vá hvað þú ert æðislegur strákur. Flottar nýju myndirnar af þér í snjónum. Bið að heilsa kv.Kristín

Skrifaš žann 29. January 2008 17:35.

Pabbi

Halló elsku kallinn minn. Mikið var gaman að sjá jólamyndirnar og líka myndirnar frá janúar. Greinilega verið mjög gaman um jólin hjá þér og ykkur öllum reyndar. Þú verður nú að vera góður við mömmu á meðan að Óli pabbi er ekki heima en þú ert nú altaf svo góður að það er ekki vandamál held ég. Núna er til píanó á nánast öllum stöðum nema bara hjá Ólu ömmu held ég fyrir þig að spila á. Enda ágætis tónlistargen í föðurættinni hehehe.
Vertu góður strákur við alla.
Sjáumst seinna kallinn minn.

Skrifaš žann 17. January 2008 01:35.

Ásdís

Hæ, Gugga og Óli Viðar!
Gleðilegt nýtt ár.
Það var frábært að hitta ykkur og fyrir krakkana að fá að leika sér saman.
Við erum komin til New Mexico núna og förum til Florida í ca. maí. Krakkarnir eru alveg að fíla það í botna að hafa allt dótið sitt aftur:p
Kveðja Ásdís, Sarah og Nathan

Skrifaš žann 12. January 2008 14:53.

Sússa og Ævar

Hæ sætasti frændi og gleðileg jól. Gaman að sjá allar myndirnar af ykkur. Ég vona að þú komist yfir að opna þetta fjall af jólagjöfum og verðir duglegur að æfa þig á trommurnar og gítarinn. Greinilega tónlistarmaður á ferð !
Bestu kveðjur til ykkar allra sjáumst á þrettándanum.
Sússa og Ævar

Skrifaš žann 29. December 2007 17:58.

Hulda Klara

Kæra fjölskylda
Gleðileg jól gott og farsælt ár.
Jólakveðja
Hulda, Jói og börn

Skrifaš žann 23. December 2007 15:17.

Maja

Hæ Óli Viðar mikið eru flottar myndirnar af þér þú ert altaf svo glaður og kátur bið að heilsa ykkur öllum.Bless bless Maja

Skrifaš žann 14. December 2007 09:57.

amma

Mikið ertu alltaf sætur litli ömmu drengur.Farðu nú snemma að sofa svo þú fáir eitthvað í skóinn.Góða nótt elsku Óli Viðar minn.Sé þig á morgun.Bið að heilsa amma og afi.

Skrifaš žann 11. December 2007 20:27.

Óli Pétur jólasveinn

Hæ Óli Viðar. Mikið rosalega eru flottar nýju myndirnar af þér og nýja útlitið á síðunni. Greinilegt að þú ert að komast í jólaskapið. Svo kemur fyrsti jólasveinninn í kvöld og þá held ég að verði nú aldeilis gaman. Síðan er bara tæp vika í að ég komi heim í jólafríið og þá held ég að verði nú aldeilis gaman. Hlakka til að sjá þig.
Kveðja

Skrifaš žann 11. December 2007 12:00.

1 2 3 4 5 6 7