Ólafur Gunnar, Völundur Ingi og Hákon Örn
Ólafur Gunnar, Völundur Ingi og Hákon Örn
 
 
 

Fyrstu árin

Fæðingin

Ég fæddist þann 20. september 2006 klukkan 12.19.
Fæðingin fór fram á Landspítala og Eva Laufey ljósmóðir og pabbi tóku á móti mér.
Viðstödd fæðinguna voru barnalæknir, önnur ljósmóðir og 2 læknanemar.
Hárið mitt var ljósbrúnt á litinn og augun blá
Þegar ég fæddist var ég 3725 grömm eða 15 merkur og 52 cm að lengd.
Fyrstu hríðir komu 06.30 og tók fæðingin um 7 klst.
Pabbi keyrði mömmu á spítalann.

Skírnin

Skírnin fór fram þann 12. nóvember í Lágafellskirkju.
Séra Ragnheiður Jónsdóttir skírði mig nafninu Ólaf Gunnar.
Ég er skírður í höfuðið á afa í móðurætt og langafa í föðurætt
Skírnarvottar voru allar ömmur og afar og Áslaug Harpa frænka
Veislan var haldin hjá ömmu og afa í Lækjarási og lukkaðist mjög vel

Afmæli

Fyrsta afmælið mitt var þann 20. september árið 2007.
Veislan var haldin heima.
Ég bauð 22 manns í afmælið.
Ég klæddist skyrtu og buxum í veislunni.

Jól

Fyrstu jólin voru þann 24. desember árið 2006.
Ég var hjá ömmu og afa í Noregi á aðfangadagskvöld.
Mér fannst voða gaman að syngja kringum jólatréð
Ég klæddist galla sem mamma prjónaði á aðfangadagskvöld.
Ég svaf 8 klst í einu eftir aðfangadagskvöldið
Ég eignaðist litla frænku á Þorláksmessu
Aðal jólagjöfin var að pabbi var hjá okkur.

Helstu viðburðir fyrstu árin

Fyrsta brosið 25. september, 5 daga gamall, næsta bros við 4 vikna aldurinn
Fyrsta hjalið um 4 vikna aldurinn
Velti mér fyrst frá maga yfir á bak 2 mánaða gamall
Velti mér frá bak yfir á maga rúmlega 4 mánaða
Sat með stuðningi 5 mánaða
Sat án hjálpar og alveg öruggur 7 mánaða
Stóð fyrst með stuðningi 7,5 mánaða
Byrjaði að skríða daginn eftir 7 mánaða afmælisdaginn
Fyrsta tönnin kom í ljós tæplega 6 mánaða
Fyrsta orðið var mere (meira)
Fyrstu sporin voru tekin 22. september 2007, tók 3 skref og hélt jafnvægi í 1 sek á eftir
Var farinn að standa allt að 10 sek um miðjan september 2007
Fór að labba út um allt 13 mánaða
Hætti á brjósti 1. feb 2008 (16. mánaða)

Hæð og þyngd

Við fæðingu var ég 52 cm og vó 3725 grömm.
2ja mánaða var ég 58,5 cm og vó 5680 grömm.
3ja mánaða var ég 63 cm og vó 6320 grömm.
4ra mánaða var ég ca 64 cm og vó 6770 grömm.
5 mánaða var ég 68,5 cm og vóg 7710 grömm.
6 mánaða var ég 69,5 cm og vóg 7820 grömm.
7 mánaða var ég 71,5 cm og vó 8440 grömm.
8 mánaða var ég 72 cm og vó 8640 grömm.
10 mánaða var ég 75 cm og vó 9280 grömm.
12 mánaða var ég 78 cm og vó 9800 grömm.
18 mánaða var ég 84,5 cm og vó 11000 grömm.

Mataræði

Ég byrjaði að borða fastan mat þann 20. mars og vildi þá helst borða graut
Uppáhalds maturinn minn fyrst um sinn var grautur, banani, kartöflur, epli, perur og nektarínur.
Ég var á brjósti frekar lengi og hætti á brjósti þann 1. feb 08.
Daginn sem ég hætti á brjósti var ég 16 mánaða og 1 vikna.