Ólafur Veigar
 

Börn í spordreka

Barn fætt í sporðdrekamerkinu er ákaft og sýnir mikla snerpu og oft leiðir það til að önnur börn misskilja sporðdrekann. Þessi börn eru ekki að reyna að vera hávær, þau hafa bara ákafa þörf fyrir að vita allt. Þau geta verið helst til áköf þegar þau eru að nálgast skólafélaga sína, en þau eru allavega hreinskilin. Þegar barn í sporðdreka hefur tekið ákvörðun um að gera eitthvað, þá er ekkert sem fær það ofan af því. Að reyna að fá sporðdreka til að skipta um skoðun er eins og að reyna að hreyfa kletta og fjöll. Sporðdrekinn er úrræðagóður og á auðvelt með að vinna úr staðreyndum. Þetta er sá einstaklingur sem þú leitar til þegar þú ert að athuga með hvað er að gerast í bænum eða ætlar að finna besta verðið á hjólum. Hugur barns í sporðdreka heillast af vísindum og rannsóknum svo þú skalt ekki draga úr ást þeirra á efnafræðitilraunum og áhöldum. Reyndu bara að halda barninu utan dyra þegar það er að gera efnafræðitilraunir sínar heima við. Barn í sporðdreka er leyndardómsfullt og oft er erfitt að segja til um hvernig því líður og hvað það er að hugsa. Þetta veldur því einnig að félagarnir vita ekki hvar þeir hafa sporðdrekann og verða óöruggir í kringum hann. Barn í sporðdreka á það til að verða afbrýðisamt út í aðra og oft getur skapast stríðsástand yfir leikföngum og á leikvellinum. Þeir sem gefa sér tíma til að kynnast barni í sporðdreka og hleypir honum að sér, eignast góðan og traustan vin um alla framtíð.

 

Sporðdrekin – sálargreind  

Sporðdrekinn er áttunda stjörnumerkið og stöðugt vatn.  Litli drekinn er eins og hin vatnsmerkin tilfinningaríkur en dulur og leyfir sér sjaldan að upplifa tilfinningarnar opinskátt jafnvel þótt ungur sé enda liggja þær ansi djúpt.  Hann er töluverður einfari í eðli sínu og finnst gaman að geyma leyndarmál og finna út það sem liggur undir yfirborðinu enda næmur á undiröldu heimilisins og leyndarmál fjölskyldunnar.  Litli drekinn getur verið mjög erfiður viðureignar, líkt og nautið, algjörlega óhagganlegur þegar hann er búin að bíta eitthvað í sig.  Tilfinningahitinn er mikill og gott fyrir foreldra að finna fljótt farveg fyrir orkuna því hún er sterk og getur valdið virkilegum vandræðum í samskiptum ef hún fær ekki útrás.  Ef sporðdrekabarnið fær áhuga á einhverju verður það mjög upptekið af áhugamáli sínu sem jaðrar oft við þráhyggju.  Áhugi þess á að komast til botns í því sem það tekur sér fyrir hendur á eftir að lita líf þess og framtíð og meðal annars stuðla að árangri þess í lífinu.  Litla drekabarnið er mjög sjálfstætt, en ekki láta blekkjast þótt ekki líti út fyrir þörf fyrir einn né neinn, því það er miklu háðari foreldrum sínum og systkynum en það virðist vera.   Sporðdrekabarnið er mjög trygglynt og treystir fólki ekki auðveldlega fyrir tilfinningum sínum, svo það er í rauninni mjög háð þeim fáu manneskjum sem það opnar sig fyrir.  En drekabarninu líður ekki vel að vera svo berskjaldað svo það reynir eftir fremsta megni frá unga aldri að hafa stjórn á þeim.  Mikilvægt er að það alist upp við öryggi og reglu og viti að hverju það gangi á heimilinu því allar óvæntar uppákomur og breytingar fara ílla í það.  Foreldrar þurfa að sýna mikla staðfestu í samskiptum sínum við litla drekann, því það virðir aðeins þá sem eru sterkari en það sjálft.  Lykilatriði í farsælu uppeldi er að foreldrar standi við orð sín og gefi ekki eftir í mikilvægum málum.  Slíkt stuðlar að öruggu barni sem þorir að opna sig fyrir umheiminum án þess að búast við svikum.