
Alltaf er gaman að grugga í bækur og greinar og reyna að átta sig á hvað á við. Það verður forvitnilegt að sjá hvort þetta eigi við hann Jökul Mána þegar fram líða stundir, við vitum um nokkur atriði sem passa nú þegar 
LJÓNIÐ
23. júlí - 22. ágúst
Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.
Einnig rákumst við á þessa sem er aðeins öðruvísi
:
Barn í ljónsmerkinu elskar að vera á sviði meira en nokkuð annað. Ef þú ert að leita að barni til að leika aðalhlutverkið í skólaleikriti þá skaltu ekki leita frekar því að ljónið er til! Barn í ljónsmerkinu er mjög skapandi og það er líklegt til að setja sjálft upp leikrit og þá sér það um allar hliðar sjálft, þ.e. leikmyndina, leikinn, tónlistina o.s.frv. Þar sem ljónið er ávallt í forystu, þá á barn í ljónsmerkinu marga vini, eða eru þetta fylgjendur? Allavega, þá fer það ekki fram hjá neinum hver ræður hér! Ljónið er gjafmilt og líkar vel að deila frægð sinni með félögum sínum. Þú getur bókað að þetta barn slær í gegn, hvernig á það annars að verða Lion King? Helstu kostir ljónsins eru bjartsýni og gott lundarfar. Þetta barn trúir því almennt að lífið sé yndislegt og að hlutirnir gangi upp fyrir það. Barn í ljónsmerkinu hefur andstyggð á gagnrýni og vill helst ekkert af henni vita. Ljónið er einnig mjög stolt og vill standa sig vel, svo að þegar það kemur fram fyrir áhorfendahóp þá leggur það sig 100% fram. Einnig þegar barn í ljónsmerkinu fer í skóla þá stendur það sig vel, því það vill alltaf vera best. Ljónið er vinsælt og sjarmerandi og þú getur treyst lífi og fjöri í kringum þessi börn.