Jóhann Frans Ólason
 

Vefdagbók

 

Áfram líđur tíminn

Nú er ég 10 mánaða gamall og orðinn rosalega stór strákur. Ég er auðvtað löngu farinn að skríða út um allt og rífa mig upp á fætur og ganga með borðum og svona. Mér finnst ekkert voðalega spennandi að vera kyrr og er því að láta mömmu og pabba elta mig út um allt. Það gengur annars allt eins og í sögu og í dag var áttunda tönnin mína að koma upp og er ég því kominn með fjórar uppi og fjórar niðri. Það styttist í það að maður fari að tala en ég get nú alveg sagt eitt orð hátt og greinilega og hvaða orð haldið þið að það sé??? Jú auðvitað mamma :) eða meira svona mammmmamammmamama. Já ég er nú svolítill mömmustrákur ennþá en samt rosa gaman hjá pabba mínum líka. Ég er nú oft í pössun hjá ömmu þegar mamma er að vinna og pabbi í skólanum. En þetta er nóg í bili en ég læt vita af mér fljótlega aftur því ég ætla að vera duglegri að skrifa hér inn.

Jóhann Frans

17. September 2010 - 22:52

 
 

Jólahátíđin

Þá er maður búinn að upplifa fyrstu jólin. Við fjölskyldan vorum hjá ömmu og afa á Hornarfirði og Patrekur Darri stærsti bróðir minn var með okkur sem var frábært. Ég fékk mikið af frábærum pökkum, bæði mjúkum og hörðum en það skiptir mig engu máli enn sem komið er :) Auðvitað fór ég í mitt flottasta dress sem voru sparibuxur, hvít skyrta og vesti. Ég var líka í svona rauðum jólasveina náttfötum sem voru mikið notuð yfir jólin.

Annan í jólum komu Gunnar og Kristín hingað til okkur með hana Tinnu frænku. Tinna var ofboðslega góð við mig og var alltaf að gera ahhhh og kyssa mig. Þau voru hér alveg yfir áramótin sem var frábært

Á áramótunum sjálfum var mikið sprengt upp. Afi, pabbi og Gunni frændi sáu um að skjóta upp en mér fannst það nú ekki meira spennandi en það að ég svaf bara á meðan, og Tinna Ósk gerði það meira að segja líka. Á nýársdag fórum við að skjóta upp því sem skilið var eftir handa okkur sem sváfu og það var líka alveg nóg, ég veit að Ronja er alveg sammála okkur í því. Við tókum svo göngutúr í frábæru veðri fyrir utan kuldan sem var -10 gráður.

Við erum nú flutt á Silfurbrautina eftir að hafa verið í góðu yfirlæti hjá ömmu og afa yfir hátíðarnar. Þar er ég með mitt eigið herbergi en ætla nú samt að fá að gista aðeins lengur með mömmu og pabba. Björgvin Ingi og Patrekur Darri bræður mínir eiga svo eitt herbergi sem er orðið rosa fínt.

Mig langar að lokum að þakka fyrir kveðjurnar í gestabókinni. Það er svo gaman að lesa þær og vita að vinir okkar og fjölskylda er að fylgjast með manni

jóla og nýárskveðja

Jóhann Frans Ólason

7. January 2010 - 14:55

 
 

Fluttur austur

Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan síðast. Eftir skírnina var farið í það að undirbúa fluttning austur á Hornafjörð. Það hefur því verið nóg að gera og að lokum fluttum við 16.des. Leiðin austur tók aðeins á þó að ég hafi nú sofið nánast alla leið austur því að ég vakti alla nóttina eftir að við komum og lét aðeins hafa fyrir mér ;) Við fengum fína íbúð og erum svona að dunda okkur í því að koma okkur fyrir en erum hjá ömmu og afa á meðan. Ég fæ mitt eigið herbergi hér og við vorum einmitt að setja saman hillur og kommóðu í dag. Bræður mínir fá líka herbergi og ætla ég að hjálpa þeim að gera það klárt. Við erum búin að kaupa og ganga frá öllum jólagjöfum en ég man ekki eftir því að hafa verið jafn tímalega með þær áður......bíddu þetta eru nátturlega fyrstu jólin mín núna :)

Þangað til næst

Gleðileg jól

Jóhann Frans

20. December 2009 - 23:49

 
 

Skírnin

5.des 09 verður lengi í minnum hafður. Ekki bara fyrir það að mama mín átti afmæli heldur var þetta skírnardagurinn minn. Ég bauð nánustu fjölskyldu minni heim í Vallengið og úr varð alveg yndælis dagur. Auðvitað var spennan í hámarki þegar að Ólafur Jóhann prestur spurði Patrek Darra bróðir minn hvað ég átti að heita og það fór kliður um stofuna þegar að hann sagði Jóhann Frans. Afi Jói var rosa stoltur af nafna sínum. Annars svaf ég bara megnið af deginum og rumskaði rétt aðeins til að sýna mig og fór svo bara að sofa aftur. Ég fékk alveg fullt af flottum gjöfum sem eiga eftir að nýtast mér vel og þakka ég kærlega fyrir þær allar.

Núna næstu daga verður svo nóg að gera hjá okkur fjölskyldunni. Pabbi minn á afmæli núna á morgun 7.des og svo erum við að fara að flytja austur. Við verðum því að pakka alla vikunu og reiknum með því að fara um 20.des austur. Ég ætla mér nú að vera duglegur að hitta ömmu og afa á Brúarflötinni og Helgu og Hörpu áður en ég flyt. Pabbi ætlar að setja inn skírnarmyndir í kvöld þannig að þið sjáið hvað þetta var huggulegt allt saman hjá ökkur

Þangað til næst

Jóhann Frans Ólason

6. December 2009 - 16:37

 
 

Fyrsta vikan

Ekki var fyrsta vikan lengi að líða. Ég stóðst 5 daga skoðunina með stæl og var eina barnið á ganginum sem grét ekki.......ja fyrr en pabbi fór svo að klæða mig.

Núna gengur mér roslalega vel að drekka hjá mömmu og nú ætla ég bara að fara að stækka. Ég sef líka aðeins betur á nóttunni sem betur fer fyrir mömmu og pabba þó að ég vakni nú alveg tvisvar þá er ég fljótur að sofna aftur.

Það hefur verið bullandi gestagangur og ég kynnst fullt af fólki. Núna um helgina var Björgvin Ingi bróðir minn í heimsókn og hann er sko skemmtilegur skal ég segja ykkur, ég á semsagt rosa hressa bræður.

Næstu helgi, 5.des sem er afmælisdagurinn hennar mömmu ætla ég að láta skíra mig. Við ætlum bara að hafa það hérna heima í Vallenginu og bjóða bara nánustu fjölskyldu.

Jæja ég ætla að fara að sofa í hausinn á mér núna en ég kem með nokkrar línur á næstu dögum.

Þangað til næst

Litli Prins Ólason

28. November 2009 - 23:45

 
 

Allt ađ gerast

Það hefur verið nóg að gera hjá mér síðan síðast. Ég hef verið í smá basli með það að drekka hjá mömmu en það er allt að koma núna og dagurinn í dag sá besti hingað til. Ég á það nefnilega til að taka bara nokkra sopa og hætta svo en málið er að drekka bara nóg og hvíla sig á eftir. 

Ég hef sofið alveg hreint ágætlega og sem eiginlega best á morgnana og daginn. Á kvöldin og nóttunni læt ég aðeins heyra í mér, ekkert mikið samt en nóg til að mamma og pabbi sofi ekki meira en þrjá tíma í einu :)

Hermína ljósa kom í dag kenndi mömmu að baða mig. Ég verð bara að viðurkenna það að það er ekki það skemmtilegasta sem ég geri en það á sjálfsagt eftir að venjast. Hermína tók svo blóðprufu og stakk mig í ilina. Ég fann bara smá til en grét ekki neitt. Hermína kemur svo í síðustu heimsóknina á morgun.

Amma Óla og Jói afi fóru austur í dag. Það var rosalega gaman að hafa þau hér þessa daga og ég á eftir að sakna þeirra en þau koma nú aftur eftir 2 vikur í skírnina mína sem verður 5.des á afmælisdegi mömmu minnar. Amma Mæja og afi Flóvent komu svo í heimsókn i gær og það var frábært að hitta þau. Ég er greinilega heppinn með ömmur og afa.

Á morgun förum við svo til barnalæknis í svona 5 daga skoðun. Þar verð ég mældur og vigtaður og sjálfsagt eitthvað potað og tosað í mann. Við eigum að mæta kl 09.45 sem er eiginlega slæmur tími því ég sef best á morgnanna.

Þangað til næst

Litli Prins Ólason

24. November 2009 - 23:12

 
 

Dagur tvö

Jæja þá er ég búinn að gista eina nótt heima.

Mér var aðeins illt í maganum í gærkvöldi og þessvegna sofnaði ég frekar seint. Mamma og pabbi voru samt rosa duglega að ganga með mig og mér leið eiginlega best bara í fanginu á þeim. Svo fannst mér líka rosa gott að vera hjá ömmu mæju og Patreki bróður. Ég sofnaði svo á milli mömmu og pabba um fjögur og svaf alveg fram á morgun.

Í dag hafa svo gestir verið að kíkja á okkur og ég hef hitt rosalega mikið af hressu fólki og fengið svo margar gjafir sem ég er svo þakklátur fyrir.

Annars hef ég mest verið að sofa og kúra og verið alveg góður í maganum í dag. Hermína ljósmóðir kom tvisvar til mín og var að hjálpa mér að ná tökum á því að ná mjölk úr mömmu. Það er bara ekki eins auðvelt og margir halda en ég er samt að verða rosa góður í því og drakk mjög vel undir kvöld. Þegar að ég er búinn að drekka vel finnst mér ekkert betra en að taka lúr.

Ég er nú búinn að vera í þessum spennandi heim í tvö daga og búinn að sjá svo mikið og hitta marga. Ég bið spenntur eftir næstu dögum.

Þangað til næst

Litli Prins Ólason

21. November 2009 - 22:14

 
 

Prinsinn mćttur

Klukkan 17.29 í gær, 19.11.09 mætti ég vel þreyttur erfitt nokkuð erfitt ferðalag í heiminn. Ég lét mömmu mína aðeins hafa fyrir mér en hún stóð sig eins og hetja og saman komumst við á endanum í gegnum þetta. Það var bara nokkuð gaman að hitta mömmu og pabba en ég fékk samt ekki að njóta þeirra neitt rosalega lengi því að mér var kippt inn á vökudeild því ég var ansi lúinn eftir ferðalagið mikla. Pabbi kom nú með mér þangað og var hjá mér á meðan ég var mældur og sprautaður. Ég fékk síðan að fara með pabba og hitta mömmu tveimur klukkutímum seinna. Ég var mikið glaður að hitta mömmu því það er nátturlega rosalegt að rífa mann svona í burtu þegar maður loksins hitti hana í fyrsta sinn. Ég hef haft það alveg rosalega gott og svaf eins og engill í nótt. Reyndar var ég aðeins að stríða mömmu og vildi ekki taka brjóstið alveg strax, maður er nú ekki sonur pabba síns fyrir ekki neitt hehe. Nú er það allt komið og ég á heimleið og hlakka mikið til í að sjá heimilið

þangað til næst

Litli Prins Ólason

20. November 2009 - 17:12