
Gleðilegt nýtt ár kæra fjölskylda :) Gaman að skoða allar nýju myndirnar - þið eruð greinilega í óða önn að koma ykkur fyrir. Gangi ykkur vel og heyrumst :)
Kveðja, Jóhanna
Gleðilegt ár, æðislegar myndir af ykkur:) Þú dafnar aldeilis flott litli kall og við hlökkum til að fá að hitta þig:)
Elsku frændi.. viltu þakka mömmu þinni og pabba kærlega fyrir nýju myndirnar og myndböndin.. Það er alveg ómetanlegt að fá að fylgjast með ykkur hérna.. :) Heyra yndislega hjalið þitt og sjá hvað þú ert orðinn stór og duglegur
Knús og kossar.. Helga frænka
Gleðilegt ár yndislegi litli sæti frændi :) Ofsalega gaman að skoða nýju myndirnar þínar.. þú ert orðinn svo stór og flottur strákur.. :)
Knús og kossar frá Helgu frænku og fylgifiskum ;)
Kæra fjölskylda gleðilegt nýtt ár og til hamingju með litla prinsinn, hann er alveg yndislegur. Flottar myndir af ykkur, gaman að geta kíkt á ykkur af og til. Biðjum að heilsa mömmu þinni og pabba.
Bestu kveðjur úr borginni.
Mikið rosalega eruð þið dugleg að setja inn myndir. Þarf að fara að taka ykkur til fyrirmyndar varðandi það :) ;) En áramótadressið hans Jóhanns Frans er alveg æðislegt. Og jólanáttfötin líka hehe.
Svo kannski tökum við einn göngutúr og fáum okkur kannski einn heitan kakó á leiðinni framhjá kaffihúsinu?
Sjáumzt! :)
Hæ sæti frændi minn. Voðalega ertu nú sætur. Ég er farin að sakna þín strax. Þegar ég skoðaði myndirnar þá sagði ég alltaf baaagn og þá var ég að sjálfsöguð að tala um þig. Svo fylgdi nú Ole...líka með. Hehehe....
r fv vghbjbijijghbhjbh zzzzzzzzzzzzz (Þetta var kveðja frá Tinnu Ósk sem var alveg óð í að fá að skrifa smá)
Knús á mömmu og pabba...
Gleðilegt nýtt ár sæti strákur :) Gaman að sjá nýjar myndir :)
Gleðilegt ár elsku Jóhann Frans til þín og fjölskyldunnar og takk fyrir það gamla. Nú er amma sko farin að bíða eftir myndum, er eitthvert áramótaslen í þeim gömlu?
Knús og kossar
amma
Jedúdda minn ef maður verður ekki bara sætari og sætari :*
Sakna ykkar endalaust mikið og get sko sagt ykkur að það vantar alveg heljarins heilan helling hérna í Grafarvoginum eftir að þið fóruð :S
En ég er ánægð að sjá á fínu myndunum ykkar að þið eruð að hafa það æðislegt þarna fyrir austan og ég hlakka mikið til að koma í mína fyrstu heimsókn :)
Fullt af jólakveðjum frá mér til ykkar allra
Knús á FALLEGU fjölskylduna mína :*
Þóra
Hæ hæ gaman að skoða myndir bara sætur strákur hér á ferð gangi ykkur bara rosalega vel knús til allra =)
mikið rosalega eru þetta dásamlegar jólamyndir.... Knús til ykkar allra frá Hörpu og Hinna :)
Elsku Guðrún Ása mín . til hamingju með litla sæta prinsin ykkar ! Hann er mjög líkur þér . Gleðileg Jól og kær kveðja til mömmu þinnar og pabba ( ömmu og afa ) kær kveðja frá okkur öllum Anna, Tóti og Arnar Már.
Gleðileg jól öll saman, flottar jólamyndir, hlökkum til að hitta ykkur:) kv.Sigr.Hrönn og co.
Innilega til lukku með litla kút, hann er yndislegur í alla staði. Leiðinlegt að hafa misst af ykkur. Við kíkjum nú við ef við eigum erindi í sveitina. Hafið það sem allra best yfir hátíðina.
jólaknús Auður frænka og co.
Sá er aldeilis flottur í jólafötunum. Hann hefur það alltof rólegt þarna fyrir austan, við ætlum að drífa okkur austur í fyrramálið svo Tinna Ósk stóra frænka getur farið að djöflast aðeins í litla frænda:)
Hæ elsku litli Jóhann Frans. Mikið er nú gaman að skoða myndirnar af þér og fjölskyldunni og lesa vefdagbókina þína. Þakkaðu pabba og mömmu fyrir hvað þau eru dugleg að vinna í síðunni þinni. Við kíkjum hér inn daglega og oftar en einu sinni en erum ekki eins dugleg að kvitta fyrir okkur. Kveðja til allra frá okkur.
Halló elsku litli kútur, ég sakna þín mikið og vona að ég sjái þig fljótlega aftur :) Hafðu það gott moli :*
Knús austur..... :*
Hæhæ. Það var gaman að fá ykkur í heimsókn í dag. Við vonum að heimsóknirnar verði fleiri :) Svo komum við nú líka í heimsókn bráðlega.
Æi eru þið farin??? Við sem áttum eftir að hittast, það verður þá að bíða betri tíma;) Kannski hittumst við fyrir austan í sumar, hver veit?? Hafið það sem allra best og gleðileg jól!
Þú ert nú meiri gullmolinn :) Hlökkum til að sjá ykkur :)
Það var gaman að fá að sjá ykkur öll í kvöld áður en þið haldið á vit ævintýrana fyrir austan:) Sjáumst hress aftur um jólin.
Kv. Fjölskyldan úr Buagakór
1 dagur !! Hlakka til ad sjá ykkur á morgun !!!!
Svakalega ertu mikill gullmoli!... Fæ alveg sting í magann að hugsa að þið séuð að flytja til Langtíburtistan!...
Hlakka mikið til að knúsa þig í kvöld..
Harpa Frænka
Ég óska ykkur innilega til hamningju með litla prinsinn. Var að frétta af síðunni og er búin að njóta þess að skoða myndirnar. Ég vona að allt gangi vel með litla gullið.
Kveðja,
Herta.
Hæhæ. Já ég ætlaði einmitt að fara að segja það sama og hún Begga varðandi það hvað þið eruð dugleg að setja inn myndir. Núna þarf maður að fara að spíta í lófana sé ég.
Hlakka til að sjá ykkur!
p.s. Góður Begga - fullmolinn haha :)
gullmolinn átti þetta nú að vera :)
Loksins kvitta ég fyrir innlitið. Kíki hér reglulega inn en er allt of léleg að skrifa í gestabókina.
Þú ert nú meiri fullmolinn. Æðislegar myndir og gaman að sjá hvað mamma þín og pabbi eru dugleg að setja inn myndir.
Til hamingju með fallega nafnið þitt.
Kveðja Begga og Benedikt Ísak
Til hamingju með nafnið. Hlakka til að sjá ykkur.
Knús
Rakel á Bakka