Jóhann Frans Ólason
 

Jólahátíđin

Þá er maður búinn að upplifa fyrstu jólin. Við fjölskyldan vorum hjá ömmu og afa á Hornarfirði og Patrekur Darri stærsti bróðir minn var með okkur sem var frábært. Ég fékk mikið af frábærum pökkum, bæði mjúkum og hörðum en það skiptir mig engu máli enn sem komið er :) Auðvitað fór ég í mitt flottasta dress sem voru sparibuxur, hvít skyrta og vesti. Ég var líka í svona rauðum jólasveina náttfötum sem voru mikið notuð yfir jólin.

Annan í jólum komu Gunnar og Kristín hingað til okkur með hana Tinnu frænku. Tinna var ofboðslega góð við mig og var alltaf að gera ahhhh og kyssa mig. Þau voru hér alveg yfir áramótin sem var frábært

Á áramótunum sjálfum var mikið sprengt upp. Afi, pabbi og Gunni frændi sáu um að skjóta upp en mér fannst það nú ekki meira spennandi en það að ég svaf bara á meðan, og Tinna Ósk gerði það meira að segja líka. Á nýársdag fórum við að skjóta upp því sem skilið var eftir handa okkur sem sváfu og það var líka alveg nóg, ég veit að Ronja er alveg sammála okkur í því. Við tókum svo göngutúr í frábæru veðri fyrir utan kuldan sem var -10 gráður.

Við erum nú flutt á Silfurbrautina eftir að hafa verið í góðu yfirlæti hjá ömmu og afa yfir hátíðarnar. Þar er ég með mitt eigið herbergi en ætla nú samt að fá að gista aðeins lengur með mömmu og pabba. Björgvin Ingi og Patrekur Darri bræður mínir eiga svo eitt herbergi sem er orðið rosa fínt.

Mig langar að lokum að þakka fyrir kveðjurnar í gestabókinni. Það er svo gaman að lesa þær og vita að vinir okkar og fjölskylda er að fylgjast með manni

jóla og nýárskveðja

Jóhann Frans Ólason

7. January 2010 - 14:55



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti